Fréttatíminn - 22.11.2013, Side 48
48 fjölskyldan Helgin 22.-24. nóvember 2013
Mamman veik og pabbinn drekkur
Ó , ég hlakka svo til um jólin,“ heyrði ég litla ljóshærða stúlku hrópa upp yfir sig með eftirvæntingu í rómnum við tvær aðrar dökkhærðar stúlkur sem hún var að tala við önnur þeirra með fallega bleika húfu. Ég var á gangi fram hjá barna-
skólanum í hverfinu mínu öslaði snjóinn upp fyrir kálfa og horfði vandlega niður fyrir
mig svo myndi ekki renna til í hálkunni undir snjónum. En við að heyra þessi eftir-
væntingar orð, hlátur og skríkjur út undan mér leit ég ósjálfrátt upp stoppaði og horfði
á stúlkurnar sem eru líklega um tíu ára aldur. Stúlkan sem í gleði sinni talaði um jólin
og önnur hinna töluðu ákaft um hversu spennandi allt þetta jólastand er. Allt fas þeirra
lýsti þeirri barnslegu gleði og áhyggjuleysi sem öll börn og unglingar eiga rétt á að
upplifa.
Þriðja stúlkan dró sig í hlé tók ekki undir gleði og áhyggjulaust tal stallsystra
sinna og gerði sig líklega að labba í burt með því að setja á sig skólatöskuna. Það
var enga eftirvæntingu eða tilhlökkun að sjá í fasi þeirrar stúlku og ég velti því
fyrir mér hvers vegna? En vinkonur hennar svöruðu þessari spurningu fyrir mig
án þess að ég hafi ætlað mér að liggja á hleri þegar stúlkan með skólatöskuna var
komin í nokkra fjarlægð frá þeim. „Hvað er eiginlega að? Hún getur aldrei talað
um eitthvað skemmtilegt, t.d. sagt okkur hvað hana langar í jólagjöf,“ segir dökk-
hærða stúlkan með bleiku húfuna. Þá svara sú ljóshærða sem af orðum hennar að
dæma þekkti hún betur stúlkuna sem var farin en hin. „Þetta er alltaf svona hjá
henni, mamma hennar er veik og liggur alltaf í rúminu og pabbi hennar drekkur
oft út af því og er reiður, maður má ekki koma heim til hennar. Hún og litli bróðir
hennar fá bara fínar jólagjafir frá ömmu sinni sem býr á Akureyri, þau eru nefni-
lega líka svo fátæk“.
Ég gekk áfram fram hjá skólanum og var hugsandi, börn og unglingar eru næm
á umhverfi sitt og líðan annarra og afgreiða hlutina oft á einfaldan hátt líkt og
stúlkurnar. Aðstæður vinkonunnar voru einfaldlega þær að hún bjó við veikindi og
fátækt þess vegna var hún svona fúl.
Ég sá fyrir mér litla stúlku sem var orðin fullorðin of fljótt vegna aðstæðna og
líðan sem einkenndist af drykkju foreldris. Ríkjandi líðan hennar eru áhyggjur,
kvíði, óöryggi, reiði, sektarkennd og ábyrgð sem ekki á að leggja á börn og unglinga
vegna veikinda foreldra.
Aðventan og jólin eru tími gleði og friðar, virðum börnin, unglingana og lífsgæði
þeirra. Áfengi og vímuefni eiga ekki samleið með hátíðum.
Höfundur er félagsráðgjafi og sérfræðingur um áfengis- og vímuefnamál jona@hi.is
Aðventan og jólin eru tími gleði og friðar, virðum
börnin, unglingana og lífsgæði þeirra.
Hátíðarnar og fjölskyldulífið
– saga úr núinu
Jóna
Margrét
Ólafsdóttir
ritstjórn@
frettatiminn.is
heimur barna
uppvöxtur örvun og þroski
Verðskuldað hrós og eðlileg örvun
eru lykilatriði í heilbrigðri mótun
sjálfsmyndar barna, rétt eins og
matur og drykkur eru nauðsynleg
líkamlegum þroska. Örvunin þarf
að taka mið af getu barnsins og
aðstæðum vera rétt tímasett og í
samræmi við verknað. Leggja þarf
áherslu á að uppalendur hlusti og
taki virkan þátt í lífi barnsins með
því að eiga með því samverustundir
og sýna áhuga á því sem barnið
tekur sér fyrir hendur.
Svo virðist sem fólk sem hefur
notið umhyggju, öryggis og aga
í uppvexti sínum og er jafnframt
hvatt snemma til að bera ábyrgð og
sýna öðrum virðingu, eigi auðveld-
ara með að takast á við ögranir
síðar á lífsleiðinni. Það leitast við að
finna lausnir, þorir frekar að leita
sér ráða og aðstoðar, lítur á sig sem
gerendur í eigin lífi og leggur sig
fram við að læra bæði af velgengni
og mistökum.
Ábyrgðarkennd, færni í sam-
skiptum og sjálfstæði á barnsaldri
eykur líkur á vellíðan og velgengni
á fullorðinsárum. Þau börn sem
njóta þessa í uppvextinum eru oftar
fær um að gefa og þiggja í sam-
skiptum, eru bjartsýnni og eiga
auðveldara með að setja mörk um
hvað þau vilja og hvað ekki í sam-
skiptum við aðra. Þeim gengur
einnig betur í námi og félagslegum
samskiptum. - dh
Verðskuldað hrós styrkir sjálfsmynd barna
HARPA SILFURBERG
Sunnudag 1.des kl. 17:00
Miðaverð kr. 1.500 / 3.500
StóRSvEIt
REykjavíkUR
Bogomil Font
&
Styrkt af
miðar á midi.is s harpa.is s í miðasölu Hörpu
Jólastuð fyrir alla fjölskylduna
Flutt verður öll tónlistin af hinum vinsæla geisladiski Majonesjól
sem kom út 2006. Tónlistin er í léttum dúr, full af glettni og jólahúmor.
Stjórnandi: Samúel J. Samúelsson
Ábyrgðarkennd, færni í samskiptum
og sjálfstæði á barnsaldri eykur líkur á
vellíðan og velgengni á fullorðinsárum.
Ljósmynd/GettyImages/NordicPhotos