Fréttatíminn - 22.11.2013, Qupperneq 56
56 prjónað Helgin 22.-24. nóvember 2013
Kaðlahúfa Góð Gjöf í jólapaKKann
Guðrún
Hannele
Henttinen
hannele@
storkurinn.is
Það fer kólnandi og húfuvertíð
löngu hafin. Húfur geta verið
alla vegana í laginu og klætt
fólk misjafnlega. En ein rök
heyrir maður oft hjá konum
og það er að þær mega ekki
vera það þröngar að hárið
klessist niður. Þetta snið er
einmitt þannig að húfan á að
sitja þétt um höfuðið neðst
svo hún haggist ekki í vindi en
er laus að öðru leyti og gefur
hárinu nægt rými. Húfan
klæðir einnig yngri dömurnar
og þetta gæti orðið góð gjöf í
jólapakkann.
KAÐLAHÚFA Á
YNGRI OG ELDRI
DÖMUR
Stærð
S - M - L
Passar höfuðstærð 51 – 56 –
61 cm.
Ummál neðst á húfunni 45 –
49 – 53 cm (teygist)
Garn
ARTESANO British Wool DK
Blue Faced Blend 2-3-3 x
50 g hespur
Litur á mynd: Minni húfa
05 blágræn – stærri húfa
01 svart
Prjónfesta
22L og 30 umf = 10cm í slétt-
prjóni með prjónum nr 4.
Prjónar
40cm hringprjónn og
sokkaprjónar nr 4.
Kaðlaprjónn
Prjónamerki.
Orðalykill
L = lykkja, lykkjur
umf = umferð
endurt = endurtakið
S = slétt
B = brugðið
s = saman
Sz = slétt lykkja prjónuð snúin,
prjónað aftan í hana
auk:1SV = útaukning, 1 lykkja
aukin út með því að prjóna
þverbandið á milli snúið,
hallar til vinstri.
úrt: 2Ss = úrtaka, 2 L prjón-
aðar slétt saman
úrt: 2Bs = úrtaka, 2 L prjón-
aðar brugðnar saman
K = kaðall
A = kaðlaprjónn settur aftur
fyrir
F = kaðlaprjónn settur fram
fyrir
Dæmi um kaðal:
K2/2A = Kaðall 4L - hallar
til hægri = 2 L settar á
kaðlaprjón, kaðlaprjóninn
settur aftur fyrir, 2L prjón-
aðar sléttar af vinstra
prjóni, 2 L prjónaðar
sléttar af kaðlaprjóni.
HÚFAN
Húfan er prjónuð í hring. Hér
birtist uppskriftin í skriflegu
formi en ef einhverjum finnst
þægilegra að prjóna eftir
mynsturteikningu þá fæst hún
í Storkinum.
Fitjið upp 99-107-115L með
40cm hringprjóni nr 4. Skiptið
yfir í sokkaprjóna þegar
lykkjum fækkar á prjónunum í
úrtökunni.
Tengið saman í hring, gætið
þess að ekki snúist uppá.
Setjið merki við upphaf um-
ferðar.
Prjónið 5 umf slétt.
Útaukning : 5S, auk:1SV,
*2S, auk:1SV. Endurt frá *
þar til 6L eru eftir. Prjónið
slétt út umf = 144-156-
168L.
1. umf: [1B, 1Sz+1Sz, 1B] 12-
13-14 sinnum.
2. umf: [1B, 2S, 1B] 12-13-14
sinnum.
Endurt síðust 2 umf 1-2-2
sinnum í viðbót.
Hefjið mynsturprjón:
Prjónið næstu 26 umf eftir
mynstri. Mynsturkaflinn
sem lýst er er endut 12-13-
14 sinnum yfir hverja umf.
1. umf: 1B, auk:1SV, 1Sz+1Sz,
2B, 1Sz+1Sz,2B, 1Sz+1Sz,
auk:1SV, 1B = 168-182-
196L.
2., 4. og 6. umf: 4S, 2B, 2S,
2B, 4S.
3. umf: K2/2F, 2B, 1Sz+1Sz,
2B, K2/2A.
5. umf: 4S, 2B, 1Sz+1Sz,
2B, 4S.
7. umf: Eins og 3. umf.
8. umf: *2B, [2S, 2B] x 3,
endurt frá * út umf.
9. umf : 2B, K2/2F, auk:1Sv,
1Sz+1Sz, auk:1SV, K2/2A,
2B = 192-208-224L.
10. umf: 4B, 8S, 4B.
11. umf: 4B, K2/2A, K2/2F,
4B.
12., 13 . og 14. umf: Eins og
10. umf.
15. umf: Eins og 11. umf.
16. umf: 4B, 2S, 4B, 2S, 4B.
17. umf: 2B, K2/2A, 4B,
K2/2F, 2B.
18. umf: 4S, 8B, 4S.
19. umf: K2/2F, 8B, K2/2A.
20., 21. og 22. umf: Eins og
18. umf.
23. umf: Eins og 19. umf.
24. umf: 2B, 2S, 8B, 2S, 2B.
25. umf: 2B, K2/4F, 4B,
K2/2A, 2B.
26. umf: Eins og 10. umf.
Eingöngu stærðir M og L:
Endurt 11. til 26. umf einu
sinni enn.
Úrtaka á kolli:
Úrtakan er gerð í 2. hverri
umf og mynstrið er endurt
12-13-14 sinnum yfir umf
eins og áður.
1. umf: 4B, K2/2A, K2/2F, 4B.
2. umf: 4B, 8S, 2B, úrt:2Ss =
180-195-210L.
3. umf: 4B, 8S, 3B.
4. umf: Úrt:2Bs, 2B, 8S, 3B =
168-182-196L.
5. umf: 3B, K22A, K2/2F, 3B.
6. umf: 3B, 2S, 1B, úrt:2Bs,
1B, 2S, 3B = 156-169-182L.
7. umf: 1B, K2/2A, 3B, K2/2F,
1B.
8. umf: 1B, 2S, 2B, 2Bs, 3B,
2S, 1B = 144-156-168L.
9. umf: K1/2A, 6B, K2/1F.
10. umf: 3S, 2B, úrt:2Bs, 2B,
3S = 132-143-154L.
11. umf: 3S, 5B, 3S.
12. umf: 3S, 1B, úrt: 2Bs, 2B,
3S = 120-130-140L.
13. umf: K1/2A, 4B, K2/1F.
14. umf: 2S, 2B, úrt:2Bs, 2B,
2S = 108-117-126L.
15. umf: 2S, 5B, 2S.
16. umf: 2S, 1B, úrt:2Bs, 2B,
2S = 96-104-112L.
17. umf: K1/1A, 4B, K1/1F.
18. umf: 1S, 2B, úrt:2Bs, 2B,
1S = 84-91-98L.
19. umf: 1Sz, 5B, 1Sz.
20. umf: 1S, 1B, úrt:2Bs, 2B,
1S = 72-78-84L.
21. umf: 1Sz, 4B, 1Sz.
22. umf: 1S, 1B, úrt:2Bs, 1B,
1S = 60-65-70L.
23. umf: 1Sz, 3B, 1Sz.
24. umf: 1S, úrt:2Bs, 1B, 1S =
48-52-56L.
25. umf: 1Sz, 2B, 1Sz.
26. umf: 1S, úrt:2Bs, 1S ==
36-39-42L.
27. umf: 1Sz, 1B, 1Sz.
28. umf: 1S, úrt:2Ss = 24-
26-28L.
29. umf: Allar L slétt.
30. umf: * Úrt:2Ss, endurt frá
* út umf =12-13-14L.
31. umf: Allar L slétt.
Slítið frá og þræðið endann
í gegnum L sem eftir eru.
Gangið frá endum. Skolið
úr ylvolgu vatni með ullar-
þvottalegi og leggið flata til
þerris.
Þýðing og staðfæring:
Guðrún Hannele
hannele@storkurinn.is
Ullin hlýja og góða
T he Campaign for Wool er alþjóð-legt verkefni sem prinsinn af Wales, Charles ríksarfi í Bretlandi er mál-
svari fyrir. Markmiðið er að vekja neytendur
til umhugsunar um gæði og mikilvægi ullar.
Ullin hefur einstaka eiginleika, er nátt-
úrulegt hráefni og styður við sjálfbærni.
Þátttakendur í verkefninu eru ullarbændur,
tískuhönnuðir, seljendur, framleiðendur,
handverksfólk og innanhúsarkitektar.
The Campaign for Wool verkefnið hefur
einnig unnið að kynningu á mikilvægi og
fjölbreytileika ullarinnar fyrir almenna neyt-
endur. Verkefnið byrjaði árið 2010 og hefur
551 1200 | HVERFISGATA 19 | LEIKHUSID.IS | MIDASALA@LEIKHUSID.IS
Hámark
4 dósir
á mann með
an
birgðir end
ast!
frábært
tilboð!
– fyrst og fre
mst
ódýr og snjöl
l
1989 kr.dósin
Verð áður 2995 kr. dósin
Quality Street, 1,25 kg
33%afsláttur 4
C A B L EBeret
Anniken Allis Page 00
meðal annars skilað þeim
árangri að verð á ull til bænda
í Bretlandi hefur þrefaldast
síðan þá. Á hverju ári er sett af
stað Wool Week <http://www.
campaignforwool.org/event-
item/wool-week-uk-2013-3/>
eða ullarvika þar sem er
boðið upp á fjölda viðburða og
notkunarmöguleikar ullarinn-
ar skoðaðir frá öllum hliðum.
Hér slóðin fyrir þá sem vilja
fylgjast með viðburðum:
www.campaignforwool.org.
Mjög mörg lönd taka þátt í
þessu verkefni.
Meðal þeirra tískuhönnuða
sem voru með þegar fyrstu
ullarvikunni var hleypt af
stokkunum voru Yves Saint
Laurent, Alexander McQueen
and Vivienne Westwood. Við
sem seljum garn frá Bretlandi
höfum orðið vör við breyt-
ingar því úrval garns sem er
framleitt úr breskri ull hefur
stóraukist. Bretar rækta mjög
margar tegundir af fé, ýmist
fyrir ullina, kjötið er hvoru
tveggja. Ein tegund heitir
Blue Faced Leicester og hún
gefur af sé mjúka, gljúpa og
auðvitað hlýja ull. Þeir hafa
lagt mikla vinnu í vöruþróun
á þessari ull og núna er hægt
að fá hana með „superwash“
eiginleika eða að hægt er
að þvo hana í vél við 30°C.
Margir breskir dreifingarað-
ilar fyrir garn hafa tekið þessa
ull inn í vörulínuna sína, til að
styrkja breskan ullariðnað en
líka vegna góðra gæða. Ullin í
húfunni sem fylgir í dag er ein-
mitt úr þessari góðu bresku ull
sem er hönnuð af náttúrunni til
að halda á okkur hita og hrinda
frá vatni. Kjörið fyrir okkur
hér þar sem snjóar og rignir til
skiptis.
Húfan er tilvalin jólagjöf og hentar bæði yngri og eldri.
KaðlaHúfa – uppsKrift