Fréttatíminn - 22.11.2013, Page 84
Í takt við tÍmann Íris Lóa Eskin
Gengur í pallíettujakka af ömmu sinni
Íris Lóa Eskin er 19 ára nemi í Flensborg sem sendi á dögunum frá sér sitt fyrsta lag,
Hypnotized. Lagið hefur vakið mikla athygli og hafa yfir fjórtán þúsund manns kíkt á það á
Youtube. Íris er „húkkt“ á hot yoga.
Staðalbúnaður
Ég geng í gallabuxum, samfestingum, skyrtum,
jökkum og flottum skóm við. Ég kaupi
mér eiginlega aldrei föt á Íslandi
en ef ég geri það þá er það yfir-
leitt í Gallerí 17. Ég versla oftast í
útlöndum, það eru mikið flott-
ari föt þar og aðeins ódýrari
en hér. H&M er alltaf voða
vinsæl og svo er Urban Out-
fitters í miklu uppáhaldi
en ef ég ætti að velja mér
mína uppáhalds flík
þá væri það pallíettu
„vintage“ jakkinn sem
hún amma mín átti.
Ég geng mjög mikið
í Jeffrey Campbell
skóm, ég þarf
aðeins að fara að
breyta til þar.
Hugbúnaður
Ég stunda
nám við Flens-
borgarskólann í
Hafnarfirði og
út- skrifast þaðan
í vor. Síðan er ég á fullu
að semja og taka upp tónlist með
upptökustjór- anum og snillingnum
Agga Friðbertssyni. Mér finnst það endalaust
gaman! Svo auðvitað kíkir maður stundum út með
vinkonum sínum svona af og til. Ég reyni að fara
sem oftast í ræktina þegar ég hef tíma. Ég er orðin
„húkkt“ á hot yoga, mér finnst það æði. Annars
æfði ég listskauta í mörg ár. Ég er ekki mikil sjón-
varps manneskja en ég á mína uppáhalds bíómynd
og þætti. Uppáhalds myndin mín er The Holiday,
það er eiginlega vandræðalegt hvað ég horfi oft á
hana. Ég kann hana bókstaflega utan að. Þættirnir
sem ég horfi á eru Suits, Game of Thrones, Sex
and the City, Desperate Housewives og svo auðvit-
að Vampire Diaries.
Vélbúnaður
Ég á MacBook Pro tölvu sem ég gæti ekki verið án
og ég á iPhone. Ég nota Facebook, Instagram og
Snapchat en ég hef enn ekki prófað Twitter.
Aukabúnaður
Ég elska ítalskan mat, það er eiginlega það besta
sem ég fæ. Uppáhalds staðurinn minn er einmitt
Ítalía á Laugaveginum, ég hef farið þangað alveg
síðan ég var lítil. Áhugamálin mín eru að semja
tónlist, vera með fjölskyldu og vinum og njóta lífs-
ins. Í sumar fór ég til Hawaii að heimsækja pabba
minn. Ég hef farið þangað núna þrisvar sinnum og
þessi staður kemur mér alltaf jafn mikið á óvart!
Annars finnst mér líka alltaf gaman að fara til Bo-
ston þar sem amma mín á heima, og London er í
miklu uppáhaldi.
Íris Lóa Eskin hefur vakið mikla
athygli á netinu fyrir fyrsta lag
sitt, Hypnotized. Hún ætlar að
láta frekar að sér kveða í tónlist-
inni í framtíðinni.
Ljósmynd/Hari
appafEngur
QuizUp
Það er kannski að bera í bakka-
fullan lækinn að fjalla um QuizUp
sem er orðið umtalaðasta appið á Ís-
landi þrátt fyrir að hafa aðeins verið
aðgengilegt í 2 vikur. Ástæðan er
vitanlega sú að þetta er algjörlega
frábært app, komið ofar á listann í
iStore en hið geysivinsæla Candy
Crush og því umtalað víða um heim,
en það kveikir einnig á þjóðarstolt-
inu að framleiðandi QuizUp er ís-
lenski leikjaframleiðandinn Plain
Vanilla Games.
Afskaplega einfalt er að spila
leikinn og mjög svo ávanabindandi.
Hægt er að velja úr miklum fjölda
flokka og keppa við bæði vini og
ókunnuga hvaðanæva úr heimin-
um. Spilaðar eru 7 umferðir og sá
sem svarar flestu rétt vinnur. Eftir
því sem á líður safnar fólk sér síðan
hinum ýmsu heiðursnafnbótum.
Ég þorði aldrei að prófa Candy
Crush því ég hafði heyrt af virtu
fólki sem var gjörsamlega orðið háð
leiknum. Ég prófaði þennan því mér
fannst þetta einmitt vera virðulegur
spurningaleikur. Ég viðurkenni hér
með: Ég er háð QuizUp.
-eh
84 dægurmál Helgin 22.-24. nóvember 2013