Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.01.2012, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 13.01.2012, Blaðsíða 2
Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@ frettatiminn.is Beutelsbacher rauðrófusafi nn er gerjaður og við það myndast L+ gerlar sem eru uppbyggjandi fyrir meltinguna. Hann er gerður úr nýuppteknum Demeter rauðrófum og er pressaður á mildan hátt til að varðveita gæðin. Fæst í öllum helstu matvöruverslunum Mikill áhugi á Pennanum Ég borðaði til að láta mér líða betur. Anna Lovísa Þorláksdóttir Síða 30 Hreiðar Már veðsetti fyrir 110 milljónir Hreiðar Már Sigurðsson, fyrr- verandi forstjóri Kaupþings, hefur veðsett einbýlishús sitt í smáíbúðar- hverfinu. Um er að ræða tvö lán frá MP banka upp á 55 og 54 milljónir en þau voru bæði tekin undir lok síðasta árs. Áður var eignin, sem er stórglæsilegt 300 fermetra hús, laus við veð- skuldir. Fyrir dyrum hjá Hreiðari Má er mál sem slitastjórn Kaupþings hefur höfðað gegn starfs- mönnum bankans vegna persónulegra ábyrgða þeirra á lánum sem bankinn veitti þeim til kaupa á hlutabréfum í bankanum sjálfum. Auk þess er Hreiðar Már til rannsóknar hjá embætti sér- staks saksóknara en hann sat í gæsluvarðhaldi í eina viku í maí 2010 í tengslum við rannsóknir embættisins á málefnum Kaupþings. -óhþ Fjölmargir aðilar hafa sett sig í samband við Arion banka eftir að Penninn, sem er í eigu Eignarbjargs, dótturfélags bankans, var auglýstur til sölu. Þetta staðfestir Pétur Richter í fyrirtækjaráðgjöf Arion banka í samtali við Fréttatímann. Í fyrsta stað þurfa áhuga- samir fjárfestar að skila inn trúnaðaryfirlýsingu og staðfestingu á fjárhagslegu bolmagni og hæfi. Að sögn Péturs verða þó gögn um fyrirtækið ekki afhent fyrr en endurskoðaður ársreikningur Pennans fyrir árið 2011 liggur fyrir. Gert er ráð fyrir að hann verði tilbúinn áður en febrúar er allur. -óhþ Átta prósent Hagabréfa hafa skipt um hendur Á þeim átján virku dögum sem Hagar hafa verið skráðir í Kauphöll- ina hafa rétt tæplega átta prósent bréfa félagsins gengið kaupum og sölum. Alls hafa verið viðskipti með rúmlega 95 milljónir hluta af þeim rúmlega 1200 milljónum hluta sem eru í félaginu. Stærstu eigendur félagsins sem og stjórnendur þess hafa ekki getað selt sín bréf vegna skuldbindandi samkomulags við Ar- ion banka. Langmest voru viðskiptin fyrstu þrjá dagana, 16. til 18. janúar, en þá skiptu liðlega 53 milljónir hluta um eigendur. Gengi bréfanna hefur aukinheldur hækkað verulega frá því í hlutafjárútboði í byrjun desember. Þá var gengið 13,5 en við lokun Kauphallar á miðvikudag var gengið skráð í 16,95. -óhþ É g get ekkert tjáð mig um þetta og vísa til bréfsins sem ég skrifaði innan-ríkisráðherra. Þú verður að fá það hjá ráðuneytinu,“ segir Áslaug Þórarins- dóttir, sýslumaður í Búðardal, í samtali við Fréttatímann þegar hún var innt nánar eftir óánægju hennar með afskipti starfsmanna innanríkisráðuneytisins af ættleiðingamáli sem voru á hennar forræði á liðnu sumri. Ás- laug taldi afskipti starfsmannanna vega að sjálfstæði embættisins gagnvart æðra stjórn- valdi sem og starfsheiðri hennar sjálfrar og við það gæti hún ekki unað. Hún fór einnig fram á það að miðstöð ættleiðinga, sem hefur verið á forræði sýslumannsins í Búðar- dal frá ársbyrjun 2007, yrði flutt frá embætt- inu eins fljótt og kostur væri. Í bréfi Áslaugar kemur fram að hún hafi afgreitt um 700 ættleiðingarmál frá árinu 2007 og í skýrslu ráðuneytisins frá 2010 sé það sérstaklega til- tekið að sýslumaður hafi unnið verkefnin af heilindum og fagmennsku. Áslaug rekur í bréfinu aðkomu skrifstofu- stjóra í innanríkisráðuneytinu að máli sem varðaði ættleiðingu barns frá Kína á liðnu sumri. Sýslumanni barst umsókn um for- samþykki ættleiðingarinnar 6. júní 2011 og sama dag var það sent til umsagnar barna- verndarnefndar í umdæmi umsækjenda. Föstudaginn 1. júlí fékk Áslaug sýslumaður símtal frá skrifstofustjóra í innanríkisráðu- neytinu sem spurðist fyrir um málið. Sama dag eftir símtalið barst sýslumanni umsögn barnaverndarnefndar þar sem mælt var með því umsækjenda yrði veitt forsamþykki. Vegna verulegrar neikvæðrar eiginfjárstöðu umsækjenda ákvað sýslumaður að senda málið til umsagnar Ættleiðingarnefndar eins og gert hafði verið í mörgum slíkum málum þar á undan. Var málið sent til Ætt- leiðingarnefndar strax mánudaginn 4. júlí. Stuttu fyrir hádegi föstudaginn 8. júlí barst tölvubréf frá skrifstofustjóranum ásamt bréfi frá framkvæmdastjóra félagsins Íslensk ætt- leiðing þar sem farið fram á að afgreiðslu málsins yrði flýtt. Í símtali sýslumanns við skrifstofustjórann kom fram sú ósk skrif- stofustjórans að málið yrði afgreitt strax án úrskurðar Ættleiðingarnefndar. Svo fór þó ekki og treysti nefndin sér ekki til að meta umsækjandann traustan. Sá úrskurður var kærður til ráðuneytisins og þótti sýslumanni sá frestur sem honum var veittur til koma at- hugasemdum að of skammur. Í svarbréfi ráðuneytisins tæplega tveimur og hálfum mánuði eftir að Áslaug sendi sitt bréf er því algjörlega hafnað að afskipti ráðu- neytisins og starfsmanna þess hafi verið óeðlileg. Málið hafi verið þess eðlis að hraða þurfti afgreiðslunni. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir í samtali við Frétta- tímann að aðkoma ráðuneytisins hafi verið fagleg, formleg og eðlileg að hans mati. „Ég er sáttur við vinnubrögð ráðuneytisins. Hún verður að svara fyrir það hvað fær hana til að láta jafn stór og sver orð falla. Mér þykir það miður en þetta er að mínu mati fullkomlega eðlileg framganga. Ég yfirfór málið og end- anum er þetta mín ábyrgð,“ segir Ögmundur sem flutti Miðstöð ættleiðinga yfir til sýslu- mannsins í Reykjavík nú um áramótin eftir beiðni frá Áslaugu.  Útgáfa Könnun CapaCent sýnir auKinn lestur frÉttatímans Konur kunna vel við Fréttatímann Er lesinn af yfir 100 þúsund manns að jafnaði í hverri viku. Samkvæmt glænýrri könnun Capacent á lestri blaða jókst lestur Fréttatímans á síðustu þremur mán- uðum síðasta árs. Aukningin var mest meðal kvenna á höfuðborgar- svæðinu en 58 prósent kvenna á því svæði lesa Fréttatímann að jafnaði í viku hverri. Fréttatíminn er lesinn af 67 prósent kvenna á aldrinum 25 til 80 ára á höfuðborgarsvæð- inu, sem er einn helsti markhópur blaðsins. Í sumum hópum er svo komið að Fréttatíminn er meira lesinn en Fréttablaðið. Þetta á sérstaklega við um íbúa vestan Elliðaár sem eru líklegri til þess að lesa Fréttatímann en aðrir. Í könnun Capacent kemur fram að 55 prósent höfuðborgarbúa lesa Fréttatímann að jafnaði í viku hverri sem er talsverð aukning frá síðustu könnun. Það fer því saman að dreif- ing er góð og áhugi á blaðinu eykst. Jón Kaldal, ritstjóri Fréttatímans, segir starfsmenn blaðsins þakkláta vegna þessa aukna byrs. „Fréttatím- inn er í hverri viku lesinn á lands- vísu af um 104 þúsund lesendum að meðaltali, sem er heldur meiri fjöldi en horfir að jafnaði á vinsælasta dagskrárlið vikunnar í sjónvarpi. Við erum að sjálfsögðu mjög ánægð og þakklát yfir þessum mikla áhuga á blaðinu,“ segir Jón. Áður hefur komið fram í könn- unum að fólki líkar vel við Frétta- tímann og að hann er lesinn um helgar en ekki einungis flett við morgunverðarborðið daginn sem blaðið kemur út. Nánar má skoða könnunina á capacent.is Hún verður að svara fyrir það hvað fær hana til að láta jafn stór og sver orð falla.  stjórnKerfið Deilur milli sýslumanns og ráðuneytis Gafst upp á ættleiðingum vegna afskipta ráðuneytis Sýslumaðurinn í Búðardal baðst undan því að sinna ættleiðingarmálum eftir afskipti innanríkis- ráðuneytisins. Ráðherra fékk bréf þess efnis þar sem afskiptin af einu máli voru gagnrýnd og til þess fallin að draga sjálfstæði og starfsheiður sýslumanns í efa. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra. Ljósmynd/Hari 2 fréttir Helgin 13.-15. janúar 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.