Fréttatíminn - 13.01.2012, Blaðsíða 37
viðhorf 37Helgin 13.-15. janúar 2012
Á síðastliðnu ári voru liðin sjötíu ár frá því að Reykja-víkurflugvöllur var tekinn
í notkun af breska flughernum, en
það gerðist í maí árið 1941. Var
þá liðið rétt eitt ár frá hernámi
Íslands. Flugvöllurinn átti eftir
að verða aðalmiðstöð íslenskrar
flugstarfsemi um rúmlega tveggja
áratuga skeið að lokinni annarri
heimsstyrjöldinni en varð þegar á
stríðsárunum miðstöð innanlands-
flugsins. Millilandaflug íslensku
flugfélaganna austur og vestur
um haf hófst frá Reykjavíkurflug-
velli um leið og friður komst á í
Evrópu og dafnaði þar fram undir
lok sjöunda áratugar síðustu aldar.
Blómlegt kennslu- og einkaflug
hófst jafnframt á Reykjavíkurflug-
velli að styrjöldinni lokinni og átti
stóran þátt í að gera Íslendinga að
flugþjóð. Þegar íslensku flugfélög-
in tóku stórar þotur í sína þjónustu
á sjöunda áratugnum færðist milli-
landaflugið í nokkrum áföngum til
Keflavíkurflugvallar nema flug til
Færeyja og Grænlands sem enn er
stundað frá Reykjavíkurflugvelli.
Í sjö áratugi hafa hinsvegar
verið uppi spurningar og oft
ágreiningur um framtíð Reykja-
víkurflugvallar. Margir bæjarbú-
ar, þar með talið borgarstjóri, voru
áhyggjufullir þegar herflugvöllur
var byggður í miðri Reykjavík.
Herflugvöllur var augljóslega skot-
mark, sem kynni að verða fyrir
loftárásum Þjóðverja. Þar var eðli
málsins samkvæmt geymt mikið
magn skotfæra og eldsneytis. Að
styrjöldinni lokinni fór þó að bera
meira á þeirri skoðun að landið
undir flugvellinum, sem oftast er
í heild sinni nefnt Vatnsmýrin, sé
svo verðmætt sem byggingarland
að ekki sé forsvaranlegt að hafa
þar flugvöll. Ýmsar hugmyndir
voru settar fram um að byggja
þyrfti nýjan flugvöll til að taka
við flugstarfseminni, sem fram
fór í Vatnsmýrinni. Árið 1967 var
birt niðurstaða umfangsmikillar
athugunar á byggingu nýs flug-
vallar á Álftanesi. Þótti mörgum
það vænlegur kostur. Ekkert var
þó aðhafst og nokkrum árum
síðar var landssvæðinu, sem til
greina kom fyrir nýjan flugvöll,
ráðstafað til að byggja íbúðarhús-
næði. Aðrir staðir voru skoðaðir
og var til dæmis Hvassahraun
sunnan Hafnarfjarðar nefnt til
sögunnar. Þar reyndist hins vegar
vera veðravíti og ekki fýsilegt að
flytja flugstarfsemina þangað jafn-
vel þótt eingöngu væri um innan-
landsflug að ræða. Á fyrri hluta
níunda áratugarins var þetta mál
enn kannað og sáu menn þá ekki
aðra raunverulega kosti í stöðunni
en að halda Reykjavíkurflugvelli
í Vatnsmýrinni eða flytja alla
starfsemina til Keflavíkurflug-
vallar. Þegar flugbrautir og annar
búnaður Reykjavíkurflugvallar var
í endurbyggingu um aldamótin
var enn á ný velt upp þeirri spurn-
ingu hvort ekki bæri að finna flug-
starfseminni nýtt aðsetur. Í frægri
kosningu árið 2001, sem rúm 37
prósent borgarbúa tók þátt í, féllu
atkvæði þannig að mjög naumur
meirihluti taldi rétt að loka flug-
vellinum. Þessi niðurstaða hefur
verið leiðarljós borgaryfirvalda
allar götur síðan. Þetta endur-
speglast meðal annars í aðalskipu-
lagi Reykjavíkur, þar sem gert er
ráð fyrir því að flugvellinum verði
lokað í áföngum og að fullu árið
2024.
Þrátt fyrir umfangsmikla út-
tekt, sem gerð var á Reykjavíkur-
flugvelli á árunum 2005 til 2007 í
samvinnu Reykjavíkurborgar og
samgönguráðuneytisins, hefur
lítið gerst í málefnum flugvallar-
Málþing
Reykjavíkurflugvöllur og innanlandsflugið
Þorgeir Pálsson,
prófessor við tækni- og
verkfræðideild HR
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA / FÆST Í APÓTEKUM UM LAND ALLT
LITLAR VÍTAMÍNTÖFLUR SEM GOTT ER AÐ GLEYPA
SJÁ NÁNAR Á VITAMIN.IS
EIN TAFLA Á DAG SYKURLAUSAR Icepharm
a
KEMUR HEILSUNNI Í LAG
ins. Mikil vinna fór þó í að reyna
að koma upp samgöngumiðstöð
á flugvellinum, sem mundi þjóna
bæði flugi og almenningssam-
göngum á landi. Eins og kunnugt
er tókst ekki að koma þessu verk-
efni á framkvæmdastig og var það
að lokum blásið af á síðastliðnu
ári.
Augljóst er að ekki getur gengið
að láta enn reka á reiðanum í mál-
efnum Reykjavíkurflugvallar og
þeirrar flugstarfsemi sem þar fer
fram. Nauðsynlegt er að hægt sé
að byggja upp viðunandi aðstöðu
fyrir innanlandsflugið, sem er
mikilvægur hluti af almennings-
samgöngukerfi landsins, í stað
bráðabirgðahúsnæðis frá stríðsár-
unum. Eitt af því sem kallar á
að nú séu teknar ákvarðanir um
málefni Reykjavíkurflugvallar er
að aðalskipulag Reykjavíkur er í
endurskoðun. Ljóst er að ákvæði
núverandi skipulags varðandi flug-
völlinn eru úrelt og óhjákvæmilegt
að endurskoða þau frá
grunni. Háskólinn í
Reykjavík efnir til mál-
þings fimmtudaginn
19. janúar þar sem sjö
fyrirlesarar, þar af
tveir erlendir, munu
halda erindi um mál-
efni innanlandsflugs
og flugvalla á Íslandi
og Reykjavíkurflug-
vallar sérstaklega. Þá munu sjö
einstaklingar taka þátt í pallborðs-
umræðum um þessi
málefni frá ýmsum
sjónarmiðum. Mál-
þingið verður haldið
á Icelandair Hótel
Reykjavík Natura og
hefst það kl. 13.00
næstkomandi fimmtu-
dag. Eru allir, sem
hafa áhuga á málefn-
um Reykjavíkurflug-
vallar, hér með hvattir til að sækja
málþingið.