Fréttatíminn - 13.01.2012, Blaðsíða 64
64 tíska Helgin 13.-15. janúar 2012
Stærðir
40-60.
Flott föt fyrir
flottar konur,
30-50% afsláttur af útsöluv
örum
Útsalan
er hafin
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
Klæðist Veru Wang-kjól í brúðkaupinu
Hin virta Vera Wang,
sem sérhæfir sig í hönnun
brúðarkjóla, mun birtast
áhorfendum þáttarins Gossip
Girl seinna í mánuðinum.
Þátturinn verður frum-
sýndur í Bandaríkjunum
þann 16. janúar og má þar
sjá Leighton Meester í
hlutverki Blair Waldorf máta
brúðarkjóla fyrir væntanlegt
brúðkaup sitt.
Þættirnir búa að færum bún-
ingahönnuðum sem aðeins
velja það besta fyrir unga
fólkið og er tíska þáttarins
löngu komin í sögubækurnar.
Hártoppurinn það
heitasta í Hollywood
Hárgreiðslur stjarnanna eru
oft úthugsaðar af stílistum
þeirra sem hafa puttann á
púlsinum hvað varðar tísku.
Nú virðast hártoppar vera
það heitasta í Hollywood
og klippa stjörnurnar á
sig topp sem hangir rétt
fyrir ofan augun. Toppurinn
virðist ekki vera klipptur með
reglustiku því oft er hann
heldur óreglulegur sem gefur
hárinu villtan blæ. Ekki er þó
nauðsynlegt að fórna síðu
hári fyrir þessa tísku, því eins
og góðvinkona okkar Kim
Kardashian gerði á gamlárs-
kvöld, er hægt að líma topp á
sig sem er í samskonar lit og
náttúrulegt hárið.
Kanye einbeitir sér að tískunni R apparinnn Kanye West þráir fátt heitar en að tískuheimurinn taki sig
alvarlega sem fatahönnuður. Því
ákvað hann að flytja til London
á nýju ári og stefnir hann á að
einbeita sér meira að fatalínunni
sinni þeirri sem hann vinnur nú
hörðum höndum að. Háskólinn
Central Saint Martins College,
sem staðsettur er í Lundúnum, er
söngvaranum innan handar og er
hann duglegur að leita þangað og
biðja bæði kennara og nemendur
um álit og aðstoð.
Fatalínan hans, Donda, sem fyrst
kom út í október selst vel að mati
rapparans og má búast við að hann
sýni vorlínuna í mars á tískusýning-
unni í París.
Fyrrum X Factor-dómarinn og söngkonan Cheryl Cole
Leikkonan
Rose Bryne
Raunveruleikastjarnan
Kim Kardashian
Útsalan hafin
Kvenfataverslunin
30-70%
afsláttur
af öllum vörum
Laugavegi 49 Sími 5522020