Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.01.2012, Side 64

Fréttatíminn - 13.01.2012, Side 64
64 tíska Helgin 13.-15. janúar 2012 Stærðir 40-60. Flott föt fyrir flottar konur, 30-50% afsláttur af útsöluv örum Útsalan er hafin Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460 www.belladonna.is Klæðist Veru Wang-kjól í brúðkaupinu Hin virta Vera Wang, sem sérhæfir sig í hönnun brúðarkjóla, mun birtast áhorfendum þáttarins Gossip Girl seinna í mánuðinum. Þátturinn verður frum- sýndur í Bandaríkjunum þann 16. janúar og má þar sjá Leighton Meester í hlutverki Blair Waldorf máta brúðarkjóla fyrir væntanlegt brúðkaup sitt. Þættirnir búa að færum bún- ingahönnuðum sem aðeins velja það besta fyrir unga fólkið og er tíska þáttarins löngu komin í sögubækurnar. Hártoppurinn það heitasta í Hollywood Hárgreiðslur stjarnanna eru oft úthugsaðar af stílistum þeirra sem hafa puttann á púlsinum hvað varðar tísku. Nú virðast hártoppar vera það heitasta í Hollywood og klippa stjörnurnar á sig topp sem hangir rétt fyrir ofan augun. Toppurinn virðist ekki vera klipptur með reglustiku því oft er hann heldur óreglulegur sem gefur hárinu villtan blæ. Ekki er þó nauðsynlegt að fórna síðu hári fyrir þessa tísku, því eins og góðvinkona okkar Kim Kardashian gerði á gamlárs- kvöld, er hægt að líma topp á sig sem er í samskonar lit og náttúrulegt hárið. Kanye einbeitir sér að tískunni R apparinnn Kanye West þráir fátt heitar en að tískuheimurinn taki sig alvarlega sem fatahönnuður. Því ákvað hann að flytja til London á nýju ári og stefnir hann á að einbeita sér meira að fatalínunni sinni þeirri sem hann vinnur nú hörðum höndum að. Háskólinn Central Saint Martins College, sem staðsettur er í Lundúnum, er söngvaranum innan handar og er hann duglegur að leita þangað og biðja bæði kennara og nemendur um álit og aðstoð. Fatalínan hans, Donda, sem fyrst kom út í október selst vel að mati rapparans og má búast við að hann sýni vorlínuna í mars á tískusýning- unni í París. Fyrrum X Factor-dómarinn og söngkonan Cheryl Cole Leikkonan Rose Bryne Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian Útsalan hafin Kvenfataverslunin 30-70% afsláttur af öllum vörum Laugavegi 49 Sími 5522020

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.