Fréttatíminn - 13.01.2012, Page 12
M
ouhamde Lo situr álútur við
eldhúsborð í blokk í Vestur-
bænum. Kaffibollinn er
hálfur. Mouhamde virkar
hæglátur, jafnvel feiminn. Við
hlið hans er túlkur sem þerrar ennið og þiggur
kaffi eftir að hafa arkað eftir hálfruddum gang-
stéttum úr miðborginni. Fyrir framan hann
gekk Haukur Hilmarsson, talsmaður No Bor-
ders-samtakanna, til fundar við Fréttatímann.
Túlkurinn hefur samþykkt að
þýða spurningarnar til Mouham-
des úr ensku yfir á móðurmál
hans, sem er volof.
Þann 19. desember 2010 kom
Mouhamde til landsins. Hann
kunni ekki ensku en hrafl í
frönsku, rétt nægjanlega svo
spyrja megi til vegar. Ferðinni
var ekki heitið til Íslands, heldur
Kanada á fölskum skilríkjum.
Hann kom frá Noregi þar sem
honum hafði verið synjað um
dvalarleyfi. Norsk stjórnvöld ætl-
uðu að senda hann aftur heim til
Máritaníu. Ákvörðun sem Mou-
hamde áfrýjaði en flúði svo áður
en málið var aftur tekið fyrir.
„Í Máritaníu bíður hans ekkert
nema áþján,“ segir Eva Hauks-
dóttir, móðir Hauks. Hún stendur við eldhús-
bekkinn. Þau mæðgin, Eva og Haukur, hafa
bæði vakið athygli eftir bankahrunið. Hann
fyrst fyrir að draga Bónuspoka að húni á Al-
þingishúsinu. Hún fyrir margvíslega beitta og
nýstárlega gagnrýni á yfirvöld.
Eftir krókaleiðum að Mouhamde
Blaðamaður spyr ekki hver býr þar sem viðtalið
fer fram og skildi símann eftir úti í bíl. Flest
öll samskipti hingað til verið undir fjögur augu
við Hauk. Ekki með hjálp nútímatækninnar.
Þau hafa áhyggjur af því að fylgst sé með þeim.
Símar þeirra jafnvel hleraðir. Kannski ekki að
ófyrirsynju; þau fylgdust með Saving Iceland,
samtökunum sem börðust gegn Kárahnjúka-
virkjun og voru undir eftirliti njósnara breskra
yfirvalda. Löggan hér heima fylgdist með
ferðum meðlima samtakanna á þeim tíma og
símhleranir í landinu eru jú staðreynd.
Bæði eru þau róttæk í skoðunum. Þau fylgja
ekki meginstraumnum eða ríkjandi skoðunum.
Þau eru virk í ýmsum hreyfingum. Ekki alltaf
þeim sömu, en stundum. Eva er til að mynda
ekki í No Borders-samtökunum sem Haukur
tók þátt í að stofna hér á landi.
Hún þekkir þó sögu Mouhamde
út og inn, enda setið með honum
löngum stundum, kennt honum
latneska skrifmálið og ensku sem
Mouhamde kann nú betur en
frönsku – þótt hann sé aðeins á
byrjunarreit. En ekki aðeins það
heldur hefur Eva einnig kennt
Mouhamde undirstöðuna í talna-
reikningi.
Eva og Mouhamde hafa einnig
setið við tölvu, skoðað myndir og
meðal annars út frá þeim púslað
ævisögu hans saman, þeirri sem
hún birti á vef sínum pistilinn.is.
Hún lýsir afleiðingum sem gætu
fylgt verði hann sendur aftur til
Máritaníu:
„Hugsanlega verður höndin
hoggin af honum, því hann stal kameldýri og
seldi til að komast úr landi,“ segir hún. „Hugs-
anlega verður hann hýddur, geltur... kannski
drepinn. Hann var þræll í heimalandi sínu, þótt
þrælahald hafi verið bannað árið 1981 og gert
refsivert 2007 í Máritaníu. Kæmist hann undan
fyrri eiganda gæti hann hugsanlega lifað sem
aðrir leysingjar. Hlutskipti þeirra er hins vegar
ekki gott. Fátækt er mikil.“
Þrátt fyrir þessa átakanlegu lýsingu Evu og
Mouhamde sjálfs á því sem þau segja hann eiga
yfir höfði sér á að senda hann frá Íslandi. Yfir-
völd ákváðu að Mouhamde skildi fara aftur til
Í rauninni er
næsta skref
aðeins það að
almenningur
leggist á árarnar
með okkur og
kalli eftir því að
mál Mouhamdes
verði skoðað hér
á landi.
Eva Hauksdóttir
Mouhamde hírist hjá vinum
á flótta frá yfirvöldum
„Mig langar að njóta réttinda,“ segir hinn 23 ára gamli Mouhamde Lo, sem að sögn var þræll í Máritaníu, flúði
allslaus í gegnum eyðimörk til stórborgar í heimalandinu, fór þaðan á opnum báti til Spánar, ferðaðist
landleiðina til Berlínar í Þýskalandi og svo til Óslóar í Noregi. Þar var hann færður í flóttamannabúðir.
Hann keypti falsað vegabréf og flugmiða til Kanada þegar Norðmenn ætluðu að senda hann heim.
Hann var handtekinn hér á landi þegar hann millilenti á leiðinni til fyrirheitna landsins.
VaLEnsía
BErLín
OsLó
KEfLaVíK
Máritanía
no Borders vill
afnám landamæra
Haukur Hilmarsson er einn þeirra sem
kom No Borders-samtökunum á fót hér á
landi í ársbyrjun í fyrra. „Samtökin starfa
í Evrópu og Bandaríkjunum. Þetta eru
laustengdir hópar með það að markmiði
að styðja innflytjendur og flóttamenn. Hér
á landi einbeitum við okkur að flótta-
mönnum þar sem við höfum ekki bolmagn
til að gera bæði. Hugmyndafræðin byggir
á anarkískri hugmyndafræði um algert
afnám allra landamæra,“ segir Haukur.
Spurður hversu margir séu í sam-
tökunum segir Haukur þá fáa. Hins vegar
eigi þeir marga bandamenn sem styðja
málstaðinn. „Við tökum markmið okkar
alvarlega, þótt við vitum að við munum að
öllum líkindum ekki ná því á líftíma okkar.
En, þetta er ekki einhver útópía í okkar
huga heldur er alvara á bakvið það að
þjóðríki sé ónýt stofnun og öll þjóðernis-
kennd og höft á ferðafrelsi er glæpsamleg.“
- gag
sK
ip
rú
ta
fLugVéL
framhald á næstu opnu
Haukur Hilmarsson og mótmæli sem No Borders
stóðu að til stuðnings Mouhamde Lo í júlí í fyrra-
sumar. Myndirnar eru úr frétt mbl sjónvarps frá þeim.
Fréttatíminn spyr
um stöðu máls
Mouhamde Lo?
Svar
iðnaðarráðu-
neytisins:
„Hér verður ekki
fjallað frekar um
málið eftir ákvörð-
un ráðherra og því
ekki frekari fréttir
af því héðan.“
Mouhamde Lo er 23 ára og býr til skiptis hjá fólki sem vill að hann fái dvalarleyfi hér á landi og geti komið sér hérfyrir til framtíðar.
M
yn
d/
H
ar
i
12 úttekt Helgin 13.-15. janúar 2012