Fréttatíminn - 13.01.2012, Page 22
G
amlinginn sem skreið
út um gluggann og
hvarf kom nýlega
út í Þýskalandi þar
sem hún rokselst en
á heimsvísu hefur hún selst í 1,5
milljónum eintaka. „Þessar viðtökur
sem bókin er að fá eru dásamlegar,
“ segir Carina Brandt hjá Pontas-
útgáfunni í Barcelona í samtali við
Fréttatímann. Brandt setti sig á
sínum tíma í samband við Jonas-
son þar sem hún vildi prófa að gefa
Gamlingjann út víðar en í Svíþjóð.
„Bókin er á toppnum á Íslandi og
í Þýskalandi og er nú í öðru sæti í
Hollandi, “ segir Carina sem svo
sannarlega veðjaði á réttan hest.
Óvæntar vinsældir
Vinsældir bókarinnar í Svíþjóð
komu höfundinum og flestum öðr-
um á óvart og segja má að vanþekk-
ing Jonasar á sænska bókamarkað-
inum hafi skilað sér í þessum miklu
alþjóðlegu vinsældum. Þar sem höf-
undurinn var óþekktur og viðfangs-
efnið og tónninn í bókinni er býsna
sérstakur taldi sænskur útgefandi
Jonasar að bókin yrði mjög erfið
í kynningu. Hún fékk hins vegar
bestu auglýsingu sem hægt er að
hugsa sér þegar en hún fór að spyrj-
ast vel út frá manni til manns. Ekki
ósvipað og gerðist hér á Íslandi þar
sem bókin laumaði sér á markaðinn
í kilju og fór síðan á fleygiferð.
Jónas sjálfur sá ekki fyrir sér að
bókin ætti erindi út fyrir Sviþjóð
sagði hann útgefanda sínum að
láta það eiga sig að reyna að koma
bókinni á framfæri við erlend for-
lög. Hann stóð í þeirri meiningu að
útgefendur myndu hafa samband að
fyrra bragði ef þeir kærðu sig um
að gefa bókina út. Því leið og beið
þar til Carina setti sig í samband
við Jonas. Faðir hennar hafði lesið
Gamlingjann og bent henni á að
hafa auga á Jonasi. Hún sendi hon-
um því tölvupóst, gerðist umboðs-
maður hans og skömmu síðar var
bókin komin á fleygiferð í Evrópu.
Forlög börðust um útgáfuréttinn og
á nokkrum mánuðum hafði Carina
selt bókina á fimmtán tungumálum
og nú hefur þýðingarétturinn verið
seldur til 30 landa.
Sorglegasta öld sögunnar
Gamlingjanum hefur verið líkt við
kvikmyndina Forrest Gump, með
Tom Hanks, og það er síður en svo
úr lausu lofti gripið þar sem Jonas
segir frá ævintýrum Alans Karls-
sonar sem forðar sér frá hundrað
ára afmælisvæslu sinni með því að
skríða út um glugga á elliheimilinu
og fara á flakk. Á ferðum sínum
rifjar hann upp ævi sína sem er sam-
ofin sögu 20. aldarinnar en á vegi
hans urðu ekki ómerkari menn en
Maó formaður, Winston Churchill,
Stalin og Harry Truman svo fáeinir
séu nefndir. Jonas segir sjálfur, í við-
tali sem Lasse Winkler átti við hann
fyrir Svensk Bokhandel, að hug-
myndin hafi verið að láta gamlingj-
ann vafra í gegnum sorglegustu öld
sögunnar.
Jonas Jonasson stendur á fimm-
tugu. Eftir farsælan feril sem
blaðamaður, fjölmiðlaráðgjafi og
sjónvarpsframleiðandi ákvað hann
að hefja nýtt líf, seldi allar eigur
sínar í Svíþjóð, skrifaði handritið að
Gamlingjanum og flutti til smábæjar
við Luganovatn í Swiss við landa-
mæri Ítalíu. Hann hefur nú flutt sig
aftur um set og býr einn með syni
sínum og hænum í sænskri sveita-
sælu þar sem hann vinnur að sinni
næstu bók.
Gramur við að sjá Gump
Hugmyndin að Gamlingjanum er
þó ekki jafn ný af nálinni. Jonas
segir hugmyndina að bókinni hafa
verið byrjaða að gerjast í kollinum
á honum strax árið 1994. Hann hafi
því orðið hundfúll þegar hann sá
Forrest Gump í bíó á sínum tíma.
Á meðan aðrir í salnum hlógu varð
Jonas stöðugt gramari þar sem
honum fannst að hugmynd sinni
hefði verið stolið.
Gamlinginn Alan Karlsson
skreið þó ekki úr huga Jonasar og
hugmyndin hélt áfram að malla
þar. Og þegar Jonas brann út í fjöl-
miðlastarfi sínu og losaði sig undan
allri ábyrgð í Svíþjóð sleppti hann
þeim gamla lausum. „Eftir því sem
vandamálin hlóðust upp hjá mér í
vinnunni því frjálsari fannst mér
Alan Karlsson vera til þess að gera
hvað sem honum sýndist,“ segir
Jonas. Hann hafði átt farsælan feril
sem blaðamaður á Expressen og
ráðgjafi hjá TV4 auk þess sem hann
stofnaði og rak framleiðslufyrir-
tækið OTW. Starfsmenn OTW voru
aðeins tveir í upphafi en þegar Jonas
seldi öll hlutabréfin og yfirgaf skút-
una störfuðu þar 100 manns.
Útbrunninn á fjölmiðlum
Jonas tók saman föggur sínar og
flutti með son sinn til Sviss þaðan
sem hann fylgdist með Alan Karls-
syni hefja sigurför sína, auk þess
sem sá gamli færði Jonasi nýtt líf í
tvennum skilningi. „Þegar ég hætti
í fjölmiðlunum var ég algerlega
úrvinda og galtómur. Mér fannst ég
ekki vera neitt og það mikilvægasta
fyrir mig við útkomu bókarinnar var
að þá var ég orðinn rithöfundur. Ég
fann það strax að ég hafi fengið nýtt
sjálf, meira að segja áður en bókin
var komin í hillur verslana. Sölutöl-
urnar eru mér því ekki jafn mikil-
vægar og margur myndi ætla.“
Jonas segist ekki hafa fylgst neitt
sérstaklega með velgengni bókar-
innar. Hann láti hverjum degi nægja
sína þjáningu og eigi fullt í fangi
með að vera einstæður faðir. Eftir
nær þriggja ára dvöl á landamærum
Sviss og Ítalíu sneri hann aftur heim
með syni sínum og þeir búa nú í
sænskri sveit þar sem Jonas vinnur
að sinni næstu bók.
Gamlinginn á hvíta tjaldið
Gamlinginn er þó hvergi nærri horf-
inn út úr lífi Jonasar. Frekari land-
vinningar eru nánast óhjákvæmi-
legir og gengið hefur verið frá
samningum um gerð kvikmyndar
byggðri á bókinni. Hinn virti,
sænski leikstjóri Felix Herngren
hefur tekið verkið að sér en aðkoma
hans að myndinni réði úrslitum um
að Jonas sló til. Ráðgert er að tökur
á myndinni hefjist í sumar.
„Það er ofboðslega skemmtilegt
að njóta þess trausts að fá að gera
bíómynd upp úr þessari stór-
kostlegu sögu,“ segir Herngren í
ScreenDaily International. „Gaml-
inginn náði tökum á mér frá fyrstu
síðu. Hún er húmorískt meistara-
verk sem verður að kvikmynda.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Hundrað ára sænskur Forrest Gump
Sænska skáldsagan Gamlinginn
sem skreið út um gluggann og
hvarf var mest selda bókin í
Svíþjóð árið 2010 og sá gamli
er nú lagður af stað í sigurför
um heiminn. Bókin hefur selst
í 20.000 eintökum á Íslandi og
var ein allra vinsælasta bókin
á landinu í fyrra. Bókin er sú
fyrsta eftir Jonas Jonasson
sem byrjaði að skrifa í tilvistar-
kreppu og er býsna sérstakur
náungi. Hann býr ásamt syni
sínum og hænum í sænskri sveit
og stendur í harkalegri for-
ræðisdeilu við barnsmóður sína.
Jonas Jonasson stendur í
harkalegri forræðisdeilu
við Alex Toja, kínversk-
indónesíska barnsmóður
sína. Saman eiga þau
soninn Jonathan sem
elst upp hjá föður sínum.
Undirskriftum hefur verið
safnað á Netinu þar sem
skorað er á Jonas að skila
barninu umsvifalaust til
móðurinnar. Tóninn er
harður en þó er reynt að
höfða til gæsku rithöf-
undarins og hann hvattur
til að virða mannréttindi
barnsins og leyfa því að
kynnast menningu móður-
fjölskyldunnar.
Alex býr í Gotlandi og
byrjaði að læra sænsku í
janúar í fyrra. Stuðnings-
fólk hennar telur Jonas
beita fyrir sig spilltum
embættismönnum og
hagnýta sér tungumála-
örðugleika og vanþekkingu
móðurinnar á sænska
kerfinu. Þá er hann sak-
aður um rasisma þar sem
hann hafi sagt að Toja hafi
ekki náttúrlega tengingu
við Svíþjóð, landið þar sem
Jonathan fæddist og býr í.
Skorað er á almenn-
ing að sniðganga bækur
Jonasar, væntanlega
kvikmynd og allar afurðir
verka hans þar til hann skili
barninu til móður sinnar.
Þessi áskorun hefur, eins
og dæmin sanna, þó ekki
borið mikinn árangur þar
sem Gamlinginn hefur
slegið í gegn hvar sem
hann hefur drepið niður
fæti.
Útgefandi Jonasar á
Íslandi er JPV og hefur for-
lagið ekki farið varhluta af
þessu en í fyrra streymdu
tölvupóstar til JPV þar
sem vakin var athygli á
stöðu forræðisdeilunnar.
Póstarnir voru staðlaðir
og því líklegt að þeir hafi
allir verið sendir í gegnum
undirskriftasíðuna.
Samkvæmt heimildum
Fréttatímans ollu skeytin
ekki neinu uppnámi þar á
bæ enda tíðkast víst ekki
að útgefendur skipti sér af
einkalífi höfunda.
Jonas Jonasson gafst upp á starfi sínu við fjölmiðla. Hann seldi eigur sínar og yfirgaf Svíþjóð en sleppti um leið gamlingjanum
lausum en saga hans hafði gerjast í kolli hans frá árinu 1994 eða áður en Gump kom fram á sjónarsviðið. Mynd/Gabriela Corti.
Deilan um drenginn
22 úttekt Helgin 13.-15. janúar 2012