Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.01.2012, Qupperneq 30

Fréttatíminn - 13.01.2012, Qupperneq 30
Þ að er með þéttu handa- taki sem ég heilsa Önnu Lovísu Þorláks- dóttur í miðbæ Reykja- víkur. Óvenju þétt. Því hefur löngum verið haldið fram á Íslandi að handatak segi mikið um fólk og í þessu tilviki á þéttleikinn vel við. Þessi tuttugu og tveggja árs gamla Hafnarfjarðarmær, sem átti afmæli í vikunni, virðist algjört orkubúnt. Ákveðin og kraftmikil ung kona. Það er hret úti og slabb á götunum og árið er rétt að hefjast. Margir hafa sett sér áramótaheit, en dæmin sýna að fæstir standa við þau. En Anna Lovísa hefur staðið við sitt frá í byrjun árs 2009. Fyrsta markmiðið var að komast í kjör- þyngd og næsta markmið var að fara á svið í fitness. Hvort tveggja hefur gengið eftir. Á rúmum tveimur árum hefur hún farið úr því að vera í hættulegri yfirvigt yfir í keppnisform í fitness. Þegar Anna Lovísa var aðeins 18 ára gömul var hún orðin 104 kíló, leið illa með sjálfa sig og heilsan var að gefa sig. Við hefjum samtal okkar þar. Fékk nóg af sjálfri sér „Ég leit í spegil einn daginn og ákvað að þetta gengi ekki lengur. Ég var hætt að geta spilað fótbolta, sem ég hafði stundað frá því ég var sex ára, af því hnén voru alltaf slæm, ég pústaði mig mörgum sinnum á dag við astma og sjálfs- myndin var í molum. Ég var ennþá bara í menntaskóla, en mér leið eins og lífið væri að sigla framhjá mér, þegar það átti að vera rétt að byrja,“ segir Anna Lovísa, sem segist alla tíð hafa verið þétt, eða þybbin, þó að hún hafi verið á kafi í íþróttum – komin í meistaraflokk í knattspyrnu aðeins fjórtán ára gömul. Það var ekki fyrr en hún hætti að æfa, sautján ára sem tók að stefna í óefni. „Matur var farinn að vera eitt af því fáa sem veitti mér einhverja vellíðan, þó að hún hafi auðvitað varað stutt. Ég borðaði til að láta mér líða betur og var kominn á þann stað að kæruleysið var alls ráðandi. Skítt með þetta, ég er hvort eð er of þung. En fólk sá svo sem ekkert utan á mér að mér liði illa. Ég var í hlutverki fyndnu feitu gellunnar þegar ég var á meðal fólks, en mér leið mjög illa. Bæði var allt orðið erfitt og mikið andlegt slen yfir mér og svo var ég með lélega sjálfsmynd,“ segir Anna Lovísa, sem þótti líka leiðinlegt að bera sig saman við bestu vinkonu sína, Söru Björk Gunnarsdóttur, sem er komin í atvinnumennsku í knattspyrnu. „Auðvitað langaði mig að geta jafn mikið og hún. Ég var kominn í meistaraflokk fjórtán ára og hafði allt mitt líf verið í fótboltanum. Það var allt í einu farið, eins og svo margt annað.“ Þegar Anna Lovísa Þorláks- dóttir var átján ára sýndi vigtin 104 kíló. Hún var andstutt og henni leið illa. Rúmlega tveimur árum síðar er hún komin í keppisform í fitness og tilveran hefur tekið á sig nýjan lit. Í viðtali við Sölva Tryggvason segir hún söguna að baki hamskipt- unum. Ljósmyndir/Hari Var meira en hundrað kíló en keppir nú í fitness Ég var í hlutverki fyndnu feitu gell- unnar þegar ég var á meðal fólks, en mér leið mjög illa. Bæði var allt orðið erfitt og mikið and- legt slen yfir mér. Sem fyrr segir fékk Anna Lovísa einfaldlega nóg í byrjun árs 2009 og ákvað að berja í borðið og segja hingað og ekki lengra. Astminn hvarf og sjálfstraustið kom „Ég byrjaði á að taka út hvítan sykur, hætta brauðáti, minnka einföld kolvetni í fæðunni og borða minni skammtastærðir. Ég fann mjög fljótt að ég var á réttri leið, þó að þetta hafi ekki gerst á neitt undraverðum hraða. Mér fór að líða betur og hélt mínu striki. Það má segja að ég hafi lést á mjög heilbrigðan hátt, ekki of hratt, þannig að húðin náði að aðlaga sig. Eftir tuttugu kíló fór pústið sem ég notaði við astmanum og ég hef ekki notað það síðan. En það var ekki fyrr en eftir um það bil ár sem ég áttaði mig almennilega á breyt- ingunni sem hafði orðið. Þá sá ég gamlar myndir og mér krossbrá. Margt feitt fólk er ekkert ósvipað þeim sem eru með átröskun að því leyti að það sér sig ekki jafnfeitt og það er. Ég sá aldrei hundrað og fjögur kíló í speglinum. Það var ekki fyrr en mamma sýndi mér um daginn myndir síðan um jólin 2008 að ég áttaði mig á hversu vonda stöðu ég var komin í. En það er ekki síður andlega sem mikil breyting hefur orðið. Maður treystir sjálfum sér betur og líður betur á allan hátt.“ Í apríl 2011 ákvað Anna Lovísa að taka næsta skref og skora sjálfa sig á hólm. Hún var þá nokkurn veginn komin í kjörþyngd og fór með vinkonu sinni að horfa á keppni í fitness. Sölvi Tryggvason ritstjorn@frettatiminn.is Framhald á næstu opnu 30 viðtal Helgin 13.-15. janúar 2012
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.