Fréttatíminn - 13.01.2012, Síða 33
Stjórn Viðlagagatryggingar Íslands hefur sett sér reglur um styrkveitingarnar sem má nálgast á
heimasíðu félagsins, www.vidlagatrygging.is undir „Forvarnir“.
Heimilt er að veita styrki til eftirfarandi:
1. Rannsókna.
2. Framkvæmda til að varna eða draga úr tjóni vegna náttúruhamfara.
3. Fræðslu og þjálfunarmála landssamtaka sem eru með samstarfssamning við
Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra um skipan hjálparliðs.
Styrkumsókn skal fylgja greinargerð þar sem lýst er á hvern hátt umrætt verkefni stuðli að því að
efla forvarnir eða draga úr tjóni á tryggðum eignum vegna náttúruhamfara. Einnig skal fylgja tíma-
og kostnaðaráætlun. Styrkumsókn skal fylgja staðfesting á fjárframlagi frá öðrum styrktaraðilum
verkefnisins eða vilyrði um fjárstyrk eða fjárframlag frá öðrum aðilum eftir því sem við á.
Athygli er vakin á því að styrkveitingar eru aðeins afgreiddar einu sinni á ári. Afgreiðsla styrkveitinga
fer fram í mars ár hvert. Umsóknum skal skilað skriflega í bréfpósti. Öll tilskilin fylgigögn þurfa að
berast með umsókn, að öðrum kosti eru umsóknir ekki teknar til umfjöllunar.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2012.
Umsóknir skulu sendar til:
Viðlagatrygging Íslands, v/styrkumsóknar, Borgartúni 6, 105 Reykjavík
Umsóknir um
styrkveitingar 2012
Borgartúni 6 • 105 Reykjavík
Sími 575 3300 • Bréfsími 575 3303
Viðlagatrygging Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna sem
ætlað er að varna eða draga úr tjóni af völdum náttúruhamfara
skv. 21. gr. laga nr. 55/1992.
Óraunverulegt að standa á bikini í stóra salnum í Háskólabíói
„Ég ákvað að láta á það reyna hvort ég gæti keppt í nóvember.
Bæði vegna þess að mig langaði til þess og líka vegna þess að ég
var hrædd um að ef ég setti mér ekki markmið myndi kannski allt
fara í sama farið aftur, þar sem ég var ekki vön því að standa í stað
í þyngd. Það var bæði erfitt og skemmtilegt að undirbúa sig undir
mótið. Það reynir mjög mikið á mann vikurnar fyrir mót og ég
gæti til að mynda ekki keppt þrisvar til fjórum sinnum á ári eins og
sumir gera.“
Í undirbúningnum fékk Anna Lovísa endanlega staðfestingu á
því að einföld kolvetni og mjólkurvörur væru ekki fyrir hana.
„Ég tók alltaf minn nammidag einu sinni í viku og þá var ég
orðin svo hrein að ég fann áhrifin af sykrinum og mjólkinni. Ég
var þung í maganum og fékk brjóstsviða og ógleði daginn eftir
nammidagana. Þetta er mjög misjafnt á milli einstaklinga. Ég hætti
að borða kolvetni fjórum vikum fyrir mót og fannst það ekkert
hræðilega erfitt. En svo voru að keppa með mér stelpur sem hættu
kolvetnum í eina viku og voru ítrekað næstum lentar í árekstrum,
af því að heilinn í þeim virkaði varla,“ segir Anna og hlær.
Þegar ég bið hana að lýsa tilfinningunni að standa á sviði í
fitness keppni eftir að hafa glímt við alvarlega offitu stendur ekki á
svörum
„Þetta var eiginlega óraunverulegt. Ég sem þorði ekki einu sinni
í sund stóð allt í einu á bikini í stærsta salnum í Háskólabíói. Ég
var næstum hætt við rétt áður en ég steig á svið, en þegar þetta var
afstaðið leið mér eins og ég hefði farið í fallhlífarstökk. Þess vegna
langar mig að gera þetta aftur. Síðast keppti ég fyrir sjálfa mig, en
núna langar mig að keppa af alvöru.
Hún segist meðvituð um að það sé hætta á annars konar öfgum í
vaxtarrækt og fitness.
Hræðslan við lóðin er misskilningur
„Ég þarf að læra að finna jafnvægið og halda mér í eðlilegri þyngd
og held að það muni takast. Ég verð að passa mataræðið, því ég
mun alltaf eiga auðvelt með að fitna. En það er svo mikill misskiln-
ingur að halda að það þurfi að vera leiðinlegt að borða hollan mat.
Þegar manni líður betur fer manni að finnast maturinn góður og
lærir líka að halda í fjölbreytnina.“
Anna Lovísa æfir núna yfirleitt fimm sinnum í viku, en eykur
það upp í sex til átta skipti fyrir mót. Hún æfir nær eingöngu með
lóð og segir það algengan misskilning hjá konum að þora ekki að
styrkja vöðvana af ótta við að verða stórar. Að sama skapi þýði ekk-
ert að borða of lítið, því þá hrynji brennslan niður í ekki neitt. Sjálf
hefur hún gert þessi mistök og talar því af reynslu. Hún mælir með
því að þeir sem vilji taka á offitu tali við fagaðila og á eitt ráð fyrir
konur sem vilja koma sér í form: „Stelpur, ekki vera hræddar við
lóðin!“
Áfram veginn í nýjum CAPTIVA
Sérfræðingar í bílumBílabúð Benna - Tangarhöfða 8 - 590 2000 • Njarðarbraut 9 - Reykjanesbæ - 420 3330 • Bílaríki - Glerárgötu 36 - Akureyri - 461 3636Chevrolet salurinn er opinn alla virka daga frá 10 til 18 og frá 12 til 16 á laugardögum - benni.is
Það er ekkert sem stöðvar vinsældir Chevrolet Captiva hjá Íslendingum og engin tilviljun
að hann var einn söluhæsti sportjeppi síðasta árs.
Fólk veit að Captiva er hlaðinn staðalbúnaði, býr yfir afburða togkrafti og er þrælfallegur.
Komdu í reynsluakstur og kynntu þér hvað sölumenn okkar eru tilbúnir að gera fyrir þig.
Eigum Ca
ptiva til
afgreiðs
lu strax !
viðtal 33 Helgin 13.-15. janúar 2012