Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.01.2012, Page 38

Fréttatíminn - 13.01.2012, Page 38
Ég geri ekki öllu meiri kröfur til sveitar- félagsins míns en að þokkalega fært sé heim og önnur smáósk, sem ég veit að breytir ekki gangi himintungla, er að kallarnir í áhaldahúsinu sæki til mín jólatréð eftir þrettándann. Í þeim efnum hefur Kópavogur staðið sig eftir atvikum þokkalega. Í hálkunni og manndrápsklakanum, sem verið hefur á götum og gangstétt- um að undanförnu, kom sandbíll heim götuna þegar verst lét um liðna helgi. Fært varð þar með hverri fólksbílspútu og hægt var að stíga út úr slíkri án þess að hætta væri á falli með beinbrotum eða öðru verra. Áður hafði gatan verið bærilega rudd enda snjóalög meiri á höfuðborgarsvæðinu en verið hefur lengi þótt Norðlendingar og ýmsir aðrir brosi eflaust í kampinn þegar þeir heyra af vandræðum fólks sunnan heiða í 20-30 sentimetra snjó eða afleiddum klaka. Ég er ekki jafn viss um göngustígana í því sæla sveitarfélagi. Áramótaheiti um dag- legar göngur var nefnilega frestað fram yfir klaka. Það verður að hafa það þótt fitulag aukist þangað til. Betri er bumba en brot, eins og máltækið segir. Kópavogsstjórar létu þau boð út ganga að fyrrverandi jólatré yrðu sótt svo fremi að íbúar drösluðu þeim út fyrir lóða- mörk. Það gerði ég samviskusamlega og fjarlægði meira að segja seríurnar og jólakúlurnar áður en ég kom trénu fyrir á lóðarhorninu. Fyrir klóka stjórnmála- menn er þetta afar skynsamleg aðgerð og tryggir jafnvel endurkjör þegar þar að kemur. Litlu hlutirnir skipta nefnilega máli. Óreyndir stjórnendur bæjarfélaga geta flaskað á þessu. Auðvitað veit ég að þjónusta sveitar- félaga snýst um margt annað en þetta tvennt, heitt og kalt vatn, frárennsli, leik- og grunnskóla, gatnalýsingu, menningar- starfsemi, félagsþjónustu og almennings- samgöngur svo eitthvað sé nefnt. Fyrir það borgum við með útsvarinu og treyst- um því að þeir sem kosnir eru til þjónustu á fjögurra ára fresti fari bærilega með þá aura. En meginatriðið er þó að við komust að heiman og heim. Við búum norður undir heimskautsbaug og því má búast við því að það snjói annað slagið að vetrarlagi og jafnvel að klaki myndist. Bifreiðaeig- endur eru góðfúslega beðnir að búa bíla sína vel til vetraraksturs en þó er fremur mælst til þess að þeir sleppi dekkjanögl- um. Þeir fara illa með malbik. Þess í stað hafa sveitarstjórnir á höfuðborgarsvæð- inu heitið því að fært sé. Auðvitað getur tekið tíma að ryðja, salta og sandbera en ef snjórinn og klakinn er viðvarandi í margar vikur ætti að gefast tími til að sinna vörnum. Um síðustu helgi var talsvert kvartað undan því í höfuðborginni sjálfri að hálkuvörnum væri lítt sinnt. Asahláku gerði og akvegir og gangbrautir þar voru sem gler. Lífshættulegt var að fara um. Ofsagt er að borgaryfirvöld hafi rokið til þegar ástandið var sem verst. Hvorki var saltað né sandborið. Þörfin var ekki talin knýjandi, það var jú helgi. Ekki er víst að allir hafi haft skilning á rólegheitunum, að minnsta kosti ekki þeir sem spólandi sátu í vögnum sínum og þorðu ekki út á glerið – svo ekki sé minnst á þá sem reyndu göngu og brutu bein. En það var ekki bara skortur á hálku- vörn í Reykjavík sem gerði íbúunum lífið leitt. Yfirvöld í því stóra sveitarfélagi vildu heldur ekki sækja jólatré þeirra. Sjálfsagt þykir það dýrt en varla dýrara á haus en í Kópavogi eða Hafnarfirði. Þjóð- hagslega, svo gripið sé til þess frasa, má líka draga í efa að gáfulegt sé að beina 50 þúsund fólksbílum í Sorpu með eitt tré í hverjum í stað þess að borgarstarfsmenn sæki stertina á vörubíl heim í hverfin. Það er því gott að búa í Kópavogi, eins og Gunnar I. Birgisson veit manna best, jafnvel þótt aðrir hafi tekið við meirihluta- keflinu af honum. Þar með er ekki sagt að klaki á akbrautum og gangstéttum hafi ekki angrað þessa næstu nágranna höfuðborgarbúa í tíðinni undanfarið en sandbílar sáust að minnsta kosti í Kópa- vogshverfum um síðustu helgi. Bæjar- kallarnir sýndu lit. Svo hirtu þeir jólatrén, því má ekki gleyma. Þetta er rétt að hafa í huga detti ein- hverjum í hug að sameina þessi tvö stærstu sveitarfélög landsins. Sennilega myndu Kópavogsbúar fella slíka hug- mynd þótt ekki væri nema fyrir tregðu stóra grannans í norðri að sækja brúkuð jólatré. Eins falleg og þau eru við upp- setningu er ekkert aðlaðandi við þurr tré á þrettánda. Hvernig á venjulegt fólk að koma notuðu jólatré í Sorpu? Ekki er hægt að ætlast til þess að fjöldinn eigi pikköppa eða kerrur. Notað jólatré af meðalstærð kemst ekki fyrir í skotti fólksbíls. Það er ekki hægt að pakka því saman eins og við kaup þegar það heldur barrinu. Fáum dettur heldur í hug að troða því í aftur- sæti heimilisbílsins og flytja það þannig á áfangastað. Hætt er við að gumpur far- þega verði þá aumur af barrnálastungum fram á vorjafndægur. Mín vegna mega kosningaloforðin vera aðeins tvö og þau má syngja svo þau setj- ist í minni líkt og herstöðvaandstæðingar sungu á árum áður: „Ísland úr Nató – her- inn burt!“ Þess í stað komi: „Sandburð á klakann – tré-in burt!“ Betri er bumba en brot Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL É AFSLÁTTUR Útsala! Allt á að seljast! 30% Lioness: Hidden Treasures Amy Winehouse 21 Adele Haglél Mugison Meira en 6.500.000 lög! My Head Is An Animal Of Monsters And Men Te ik ni ng /H ar i 38 viðhorf Helgin 13.-15. janúar 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.