Fréttatíminn - 13.01.2012, Síða 42
I llt blóð er hlaupið í baráttuna um útnefningu forsetaefnis Repúblíkanaflokksins í
Bandaríkjunum. Í aðdraganda
forkosinganna í New Hampshire
í vikunni kepptust andstæðingar
Mitt Romneys við að níða af
honum skóinn um leið og þeir
tóku til við að klóra augun hver
úr öðrum. Neikvæð kosninga-
barátta er komin á fullt skrið
með tilheyrandi undirróðri. Newt
Gingrich sagði að Barak Obama
dygði að hlæja Romney út úr bar-
áttunni hlyti hann útnefninguna;
Romney væri vingull sem ætti
ekkert í forsetann – væri ekki
einu sinni einlægur íhaldsmaður
heldur félagshyggjumaður í
felulitum. Reiðin hefur bullsoðið
í æðum Gingrich eftir að stuðn-
ingsmenn Romneys gerðu vonir
hans um góðan árangur í Iowa
að engu með viðamikilli auglýs-
ingaherferð þar sem Gingrich,
fyrrum forseti Bandaríkjaþings,
var sagður siðlaus hræsnari og
innmúraður í Washingtonvaldið.
Gingrich kallaði Romney á móti
Wall Street-svikahrapp af verstu
sort, hrægamm og lygara. Rom-
ney stóð þó árásirnar af sér í New
Hampshire og vann forkosning-
arnar þar með yfirburðum. Ron
Paul landaði öðru sæti. Næst
verður kosið í Suður-Karólínu og
svo í Flórída. Allra handa ásak-
anir fljúga þvers og kruss. Ron
Paul spurði hvort Jon Huntsman
hafi kannski verið heilaþveginn
af kommúnistunum í Kína þar
sem hann var sendiherra, hvort
hann gengi erinda Kínverja
fremur en að gæta hagsmuna
Bandaríkjanna? Rick Santorum
sagði Ron Paul aldrei hafa unnið
ærlegt handtak en allir gátu
frambjóðendur repúblíkana tekið
undir með Rick Perry sem sagði
að Barak Obama væri andamer-
ískur sósíalisti sem græfi undan
heilagri hugsjón feðra Banda-
ríkjanna.
Því þær virka
Lélegir, ófyrirleitnir leikmenn
sem ekki hafi færni til að nappa
boltanum af fimum andstæðingi
eiga það til að hjóla í manninn.
En ástæða þess að stjórnmála-
menn leggjast svo lágt að beita
neikvæðum aðferðum er einföld:
Þær virka. Í kosningarannsókn
bandaríska sálfræðingsins Drew
Westen kemur fram að afstaða
kjósenda ráðist fremur af tilfinn-
ingum og óljósum hugmyndum
en útreiknuðum hagsmunum.
Hægt er að skilgreina nei-
kvæða kosningabaráttu með
ýmsum hætti en í öllum tilvikum
snýst hún um að ná fram ávinn-
ingi með því að sýna andstæð-
inginn í neikvæðu ljósi fremur en
að upphefja eigið ágæti: semsé
að hljóla í manninn í stað þess að
fara í boltann. Greina má nokkrar
meginaðferðir. Í fyrsta lagi hrein-
ræktaðar árásarauglýsingar þar
sem einvörðungu gallar andstæð-
ingsins eru dregnir fram, í öðru
lagi andstæðuauglýsingar þar
sem kostum eigin frambjóðanda
er stillt upp gagnvart göllum
andstæðingsins og í þriðja lagi
allra handa undirróður þar sem
óþægilegum upplýsingum um
andstæðingsins er lekið í fjöl-
miðlum.
Líka á Íslandi
Íslendingar hafa ekki með öllu
farið varhluta af neikvæðum
aðferðum en brögðum úr síðast-
nefnda flokknum er einkum beitt
hérlendis. Einnig eru til dæmi
um neikvæðar auglýsingar. Til að
mynda gegn Albert Guðmunds-
syni undir lok áttunda áratugar-
ins og svo gegn Alfreð Þorsteins-
syni og Sigrúnu Magnúsdóttur,
fulltrúum Framsóknarflokksins
í Reykjavíkurlistanum, fyrir
borgarstjórnarkosningarinar
árið 1994. Rætnustu auglýsing-
arnar beindust gegn Ólafi Ragn-
ari Grímssyni fyrir forsetakjörið
1996. Þá má nefna auglýsingar
Jóhannesar Jónssonar í Bónus
gegn Birni Bjarnasyni í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins árið 2007.
Rannsóknir kosningasálfræð-
inga benda til þess að fólk muni
betur eftir neikvæðum stjórn-
málaauglýsingum en jákvæðum
og að þær laumi efasemdum og
ótta að í brjóstum kjósenda. Því
sé best að höfða til lægri hvata
fólks. Í handbók bandarísks
kosningaráðgjafa er einnig bent
á ýmsar hættur samfara slíkum
auglýsingum, að sverðið reynist
tvíeggja og hitti fyrir þann sem
beiti því. Heppilegra er talið fyrir
áskoranda að beita neikvæðum
auglýsingum en þeim sem fyrir
er í embætti. Einkum og sér í
lagi ef andstæðingurinn hefur úr
mun meira fé að spila og nýtur
forskots í fjölmiðlum.
Þó svo að flestir frambjóðend-
ur fordæmi neikvæðar auglýsing-
ar og þykist hafa á þeim ímugust
birtast þær sífellt fyrr í barátt-
unni. Kannski er það kaldhæðn-
islegt, en frambjóðendur rétt-
læta einkum neikvæðar aðferðir
með vísun í að hafa orðið fyrir
þeim sjálfir – að þeir hafi verið
nauðbeygðir til að svara í sömu
mynt. Frambjóðendurnir víkja
sér gjarnan undan ábyrgð með
því að vísa á stuðningssjóði sína
(e. super pact) sem ausa ómældu
fé í auglýsingar en framboðið má
samkvæmt bandarískum lögum
ekki hafa formleg samskipti við
sjóðina.
Neikvæðar auglýsingar
í stjórnmálabaráttu ná
nánast alla leið aftur til
stofnunar Bandaríkjanna.
Fyrir forsetakjörið árið
1828 réðust stuðningsmenn
John Quincy Adams til
að mynda með offorsi á
Andrew Jackson, sögðu
að móðir hans væri vændis-
kona og að konan hans
stæði í grimmu framhjá-
haldi. Síðan hafa neikvæðar
auglýsingar orðið órofa
þáttur í allri kosningabar-
áttu í Bandaríkjunum. -eb
Framhjáhald og vændi
42 heimurinn Helgin 13.-15. janúar 2012
Stjórnmál neIkvæðar auglýSIngar
Árið 1988 birtu repúblíkanar aug-
lýsingu gegn Mickahel Dukakis
þar sem George Bush eldri flytur
þau skilaboð að sem ríkisstjóri
í Massachusetts hafi Dukakis
komið upp eiginlegum hringdyr-
um í fangelsum ríkisins þannig að
glæpamenn snúi nú viðstöðulítið
aftur út í samfélagið í stað þess
að taka út tilhlýðilega refsingu.
Í niðurlagi auglýsingarinnar,
sem sýnir sérdeilis skuggalega
glæpóna steyma úr fangelsunum,
segir Bush að Bandaríkjamenn
megi ekki við því að taka viðlíka
áhættu á landsvísu. -eb
Hringdyr glæpamanna
Neikvæðar auglýsingar geta hæglega
snúist í höndum þess sem þeim beita.
Frægasta dæmið var í Kanada fyrir þing-
kosningarnar 1993. Íhaldsflokkuirnn birti
auglýsingar þar sem andlitslömun leiðtoga
Frjálslynda flokksins, Jean Chrétien, var
dregin fram og hann sýndur sem eins-
konar afskræmingi, sem yrði þjóðinni til
háðungar út á við. Fyrst um sinn virtist
herbragðið ætla að heppnast en svo reis
hneykslunaraldan í slíkar hæðir að Íhalds-
flokkurinn var svo gott sem þurrkaður út
af þingi, hélt aðeins tveimur þingsætum af
þeim 154 sem flokkurinn hafði áður.
Með líku lagi varð öldungardeildarþing-
maðurinn Elizabeth Dole í Norður Karólínu heimaskíts-
mát í kosningunum árið 2008 eftir auglýsingaherferð
gegn áskorandanum Kay Hagan sem sökuð var um
trúleysi - sem þykir óhugsandi fyrir kjörinn fulltrúa í
Norður-Karólínu. Hagan snéri vörn í sókn, benti á að
hún væri rennisléttur sunnudagaskólakennari og sýndi
fram á virka kirkjusókn áður en hún réðist á Elizabeth
Dole fyrir að hliðra sér hjá því að ræða bágborið efna-
hagsástandið – Dole varð í kjölfarið að horfa á eftir þing-
sætinu í hendur Hagan. -eb
BandaríkIn neIkvæð koSnIngaBarátta
Illt blóð hlaupið
í baráttuna
Neikvæðar auglýsingar hafa fylgt stjórnmálabaráttu í Bandaríkjunum frá upphafi – því þær
virka. Í vikunni fór allt í bál og brand á milli forsetaframbjóðenda Repúblíkanaflokksins.
Jean Chrétien.
Íhaldsmenn
reyndu að nota
andlitsfötlun
hans gegn
honum.
heimurinn
dr. Eiríkur Bergmann dósent og forstöðu
maður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst
eirikur@bifrost.is
Andrew Jackson: Stuðningsmenn
John Adams sögðu móður hans
vera vændiskonu.
Stúlkan og kjarnorkuváin
Mickahel Dukakis
Mitt Romney, Ron Paul og Newt Gingrich vilja verða forsetaefni Repúblíkana-
flokksins. Ljósmynd/Nordicphotos GettyImages
Skuggalegasta auglýsingin er
líkast til sú sem stuðningsmenn
Lyndon B. Johnson beindu gegn
Barry Goldwater árið 1964, á
hátindi kalda stríðsins. Sakleysis-
leg stúlka í sumarkjól sést tína
blöð af baldursbrá í friðsælum
haga. Myndavélin dregst smám
saman að augasteini barnsins,
svo sortnar allt um stund áður
en bomban springur: Kjarnorku-
sprengjusveppurinn bólgnar út í
auga barnsins og heimurinn ferst.
Viðsjár veraldarinnar séu slíkar að
ekki sé hægt að treysta óreyndum manni eins og Goldwater
fyrir stjórnartaumunum. -eb
Seinni tíma auglýsing sem vísar í hina skugga-
legu auglýsingu fylgismanna Lyndon B. Johnson.
Vesælt frægðarmenni
Fyrir kosningarnar 2008 birti
John McCain nánast einvörðungu
neikvæðar auglýsingar gegn
Barak Obama. Í einni sagði hann
Obama vera glysgjarnt frægðar-
menni sem velktist um glamúr-
heima með Paris Hilton og Brit-
ney Spears en væri hreint ekki í
stakk búinn til að stjórna landinu.
Í annarri sagði að Obama væri
reiðubúinn til að tapa stríði til að
vinna kosningar.
Hillary Clinton hafði áður
slegið þennan tón í forkosning-
unum, í alræmdri auglýsingu þar
sem hún fær símtal klukkan þrjú
um nótt með vofeiflegum tíðindum. Gefið er í skyn að
Obama sé ekki treystandi til að bregðast rétt við óvæntri
ógn – síðar varð hún utanríkisráðherra í stjórn Barak
Obama. -eb
Hillary og
Obama kepptu
um útnefningu
Demókrata-
flokksins.
Tvíeggja sverð
HÁSKÓLINN Á BIFRÖST
Velkomin á Bifröst
www.bifrost.is
Nýir tímar í fallegu umhverfi