Fréttatíminn - 13.01.2012, Qupperneq 44
44 ferðalög Helgin 13.-15. janúar 2012
V ið prófuðum þetta fyrst haustið 2010 og höfum síðan verið að auka fram-boðið hægt og bítandi og fjölga ferð-
unum, enda hefur fólk verið mjög ánægt, bæði
með þá staði sem við siglum til og ekki síður
með það sem NCL kallar Freestyle Cruising,“
segir Skúli Unnar Sveinsson, ferðaráðgjafi hjá
Norrænu ferðaskrifstofunni og fararstjóri í
skemmtisiglingunum.
„Freestyle Cruising er nokkuð öðruvísi
siglingarmáti en flest, ef ekki öll, skipafélög
eru með. Í stað þess að klæða þig í kjól og
hvítt á hverju kvöldi og mæta til kvöldverðar
á fyrirfram ákveðnum tíma við fyrirfram
ákveðið borð og alltaf í sama veitingasalnum,
getur fólk valið um vel á annan tug mismun-
andi veitingahúsa og borðað þar þegar hentar.
Klæðnaðurinn er einnig frjálslegri þó allir
séu auðvitað snyrtilegir, en karlar þurfa til
dæmis ekki að vera í jakkafötum með bindi
þegar farið er út að borða, heldur dugar að
vera í pólóbol og huggulegum buxum. Sama
á við um konurnar, þær þurfa ekki síðkjóla
öll kvöld,“ segir Skúli Unnar og bætir því við
að þetta fyrirkomulag hafi fallið farþegum
vel í geð: „Um borð í skipum NCL eru þrír til
fjórir alþjóðlegir veitingastaðir og síðan fullt af
smærri sérhæfðum stöðum eins og asískum,
sushi, teppanyaki þar sem kokkarnir elda fyr-
ir framan viðskiptavinina, amerískt steikhús,
ítalskur, franskur, mexíkóskur svo eitthvað
sé nefnt. Auk veitingastaðanna eru um tveir
tugir bara um borð, þar sem víða er leikin
lifandi tónlist, þannig að það má segja að það
megi finna mat og drykk á hverju horni.“
Auk þess að vera með fimm skipulagðar
ferðir í sumar sér Norræna ferðaskrifstofan
einnig um að panta siglingu fyrir einstaklinga
og hópa þó svo íslenskur fararstjóri sé ekki
með í för. „Skemmtisiglingar eru fyrir alla,
ekki bara eldra fólk eins og virðist hafa verið
ríkjandi skoðun, en Íslendingar sigldu nær
eingöngu um Karabíska hér á árum áður. Við
erum með ferðir um Miðjarðarhafið þar sem
fólki gefst kostur á að skoða mikla og forvitni-
lega menningu landanna sem liggja að hafinu,
en í hverri höfn er boðið upp á mikinn fjölda
mismunandi skoðunarferða. Síðan kemur fólk
um borð á ný síðdegis, fær sér sundsprett eða
fer í líkamsræktina, fer síðan „út“ að borða og
endar síðan kvöldið á að fá sér snúning á ein-
hverjum af skemmtistöðum skipsins. Sumir
þeirra eru opnir ansi lengi þannig að fyrir þá
sem vilja er hægt að dansa langt frameftir og
hvíla sig síðan bara í sólbaði daginn eftir ef
fólk nennir ekki að fara í land, en alltaf er siglt
á nóttunni og komið í nýja höfn að morgni
næsta dags,“ segir Skúli Unnar.
Skemmtiferðaskipin eru engin smá smíði
og má nefna að EPIC, nýjasta og stærsta skip
NCL er tæplega 156.000 lestir, 329 metra
langt og 40 metra breitt. Gríðarlega mikið er
lagt upp úr að gestir hafi það sem allra best
um borð en farþegar eru 4.100 talsins og 1.700
manna áhöfn. Hægt er að fá mismunandi her-
bergi, án glugga, með glugga og síðan með
svölum auk þess sem misstórar íbúðir eru
einnig í skipunum og sú stærsta tæpir 500
fermetrar þannig að allir ættu að geta fundið
sér gistingu við hæfi.
„Inni í verðinu sem fólk greiðir er flug fram
og til baka, hótelgisting fyrir og eftir sigl-
ingu, akstur milli staða erlendis, allur matur
um borð – og hann er ekkert smá mikill og
flottur – og öll skemmtidagskrá um borð auk
íslenskrar fararstjórnar. Það eru stór leikhús
um borð þar sem tvær sýningar eru á hverju
kvöldi, í sumum skipum er hægt að fara í
keilu, kylfingar geta slegið í net, hægt er að
spila pílu og pool, fara í borðtennis og auðvitað
reyna fyrir sér í spilavítinu og þannig mætti
lengi telja. Glæsileg líkamsrækt er opin allan
sólarhringinn og hægt er að fara í sannkallað
dekur í heilsulindinni. Það er eiginlega alveg
ótakmarkað sem hægt er að gera um borð í
skipunum og mikið lagt upp úr því að bjóða
upp á hina ýmsu viðburði þannig að það er
virkilega erfitt að láta sér leiðast. Þetta er al-
gjört sældarlíf,“ segir Skúli Unnar.
SkemmtiferðaSkip Algert sældArlíf
Skemmtisigling er ekki bara fyrir eldra fólk
Norræna ferðaskrifstofan býður í ár upp á fimm skipulagðar skemmtisiglingar,
fjórar í Miðjarðarhafinu og eina í Karabíska. Siglt er með skipafélaginu Norwegian
Cruise Line (NCL), en þetta er þriðja árið sem boðið er upp á siglingar með NCL.
Það má láta fara vel um sig á sóldekkinu á Jade. Íslenskir ferðamann leiddir um rústir Pompei á Ítalíu.
Epic er nýjasta og stærsta skipið í flota NCL.
H eimsferðir fagna 20 ára afmæli í mars á þessu ári og verða sérstaklega fjölbreyttar ferðir í boði hjá fyrir-tækinu í tilefni þess. Primera Air, systurfyrirtæki
Heimsferða, mun fljúga til Alicante, Billund í Danmörku,
Malaga (Costa del Sol), Mallorca og Tenerife í sumar. Þá má
nefna helgarferðir til Barcelona, Budapest, Ljubljana, Prag
og Sevilla á árinu.
Perla Miðjarðarhafsins – Mallorca – verður aftur í boði á
afmælisárinu. „Mallorca hefur verið ókrýnd drottning ferða-
manna undanfarin 40 ár, enda státar eyjan af heillandi um-
hverfi, fjölbreyttri náttúrufegurð, gullfallegum ströndum og
frábærri aðstöðu fyrir ferðamanninn,“ segir Tómas J. Gests-
son, framkvæmdastjóri Heimsferða.
„Við bjóðum áfram ferðir til Costa del Sol, sem er tvímæla-
laust vinsælasti áfangastaður Íslendinga í sólina, enda býður
enginn annar áfangastaður á Spáni jafn glæsilegt úrval gisti-
staða, veitingastaða og skemmtunar og Costa del Sol,“ bætir
hann við. Þess má geta að þaðan er örstutt að skreppa yfir
til Afríku og Gibraltar. Töfrar Andalúsíu hafa heillað alla þá
sem henni kynnast. Á Costa del Sol eru ferðamenn staddir í
hjarta fegursta hluta Spánar og innan seilingar er; Granada,
Sevilla og Cordoba, Jerez, Ronda og Cadiz.
Billund á Jótlandi er nýjung hjá fyrirtækinu en þaðan
liggja vegir til allra átta í Danmörku. Legoland- garðurinn
er staðsettur við flugvöllinn í Billund og því ákjósanlegt að
heimsækja hann leggi menn leið sína til Billund.
„Beint flug til Alicante hefur hlotið ótrúlega góðar við-
tökur og við höfum því bætt við flugum og erum að skoða
möguleika á að fljúga þangað í haust,“ segir Tómas.
Þá má og nefna að Heimsferðir bjóða uppá fjölbreyttar
sérferðir og siglingar. „Við erum meðal annars með ferð til
Vínarborgar og Györ, þýsku borgarinnar Dresden, göngu-
ferðir og margar aðrar spennandi ferðir eru í undirbúningi.
Einnig erum við alltaf með ferðir fyrir eldri borgara.“
Heimsferðir hafa boðið uppá gríðarlega vinsælar golf-
ferðir til Suður-Spánar undanfarin ár og er árið 2012 engin
undantekning. „Þessar ferðir eru að mestu uppseldar en örfá
sæti eru laus nú í lok apríl og byrjun maí til Costa Ballena og
Novo Sancti Petri.“
Spennandi sumarleyfisferðir til Tyrklands verða einnig
í boði á árinu, eins og á liðnum árum, en að sögn Tómasar
verða þær kynntar sérstaklega í næstu viku.
HeimSferðir 20 árA
Spennandi afmælisár hjá Heimsferðum