Fréttatíminn - 13.01.2012, Side 60
Barist við krabba
Í myndinni 50/50, sem verður frumsýnd
um helgina, leika Joseph Gordon-Levitt
og Seth Rogen félagana Adam og Kyle
sem vinna saman á útvarpsstöð. Þegar
Adam greinist með banvænt krabbamein
færist drungi yfir létta tilveru hans. Kær-
astan treystir sér ekki til þess að ganga í
gegnum stríðið við meinið með honum og
lætur sig hverfa. Kyle bregst hins vegar
ekki og stendur þétt við hlið vinar síns í
þessari sannsögulegu mynd.
Aðrir miðlar: Imdb: 8.1, Rotten Tomatoes:
93%, Metacritic: 72%
A Little Bit of Heaven
Nokkuð öflugur hópur leikara kemur saman
í þessari rómantísku gamanmynd sem
fjallar um ástina í skugga dauðans. Kate
Hudson, Kathy Bates, Treat Williams,
Whoopi Goldberg og Gael García Bernal
láta öll til sín taka í sögunni af Marley;
gáfaðri og glaðlyndri konu sem gengur
allt í haginn í leik og starfi. Hún hefur átt í
nokkrum ástarsamböndum en hefur ekki
viljað binda sig og hefur aldrei orðið ást-
fangin í alvöru. Þegar hún kemst að því að
hún eigi aðeins nokkra mánuði eftir breytist
allt og hún verður yfir sig hrifin af lækninum
sem flutti henni dauðadóminn.
Aðrir miðlar: Imdb: 5.9, Rotten Tomatoes:
5%, Metacritic: 75%.
Tinker Tailor Soldier Spy er klassísk
njósnamynd og nokkuð dæmigerð „whod-
unnit“ ráðgáta þar sem lítið fer fyrir slags-
málum, græjum og skotbardögum að hætti
James Bond þótt sagan hverfist um njósn-
ara í Leyniþjónustu hennar hátignar. Hér
eru gráir og guggnir menn í forgrunni.
Hálfgerðar skrifstofublækur sem er tam-
ara að nota hausinn en hendurnar í störfum
sínum.
Þeir sem þekkja sögur John lé Carré um
njósnarann George Smiley og hafa séð sjón-
varpsmyndirnar sem gerðar voru eftir Tin-
ker Tailor Soldier Spy og Smiley´s People í
byrjun níunda áratugarins, þar sem aldr-
aður Alec Guiness lék Smiley, vita nákvæm-
lega að hverju þeir ganga hér og verða ekki
fyrir vonbrigðum. Aðrir gætu látið hæga at-
burðarásina fara í taugarnar á sér en slíkur
pirringur er þá byggður á misskilningi.
Sænski leikstjórinn Tomas Alfredsonm,
sem komst á heimskortið með hinni frá-
bæru blóðsugumynd Låt den rätte komma
in, hefur traust tök á flókinni sögunni og
frábærum leikhópnum. Þar fer Gary Old-
man fremstur í flokki sem Smiley og gerir
tilkall til Óskarsverðlauna fyrir magnaðan
en lágstemmdan leik þar sem látbragð veg-
ur þyngra en töluð orð. John Hurt, Colin
Firth og Mark Strong gefa svo lítið eftir í
sínum hlutverkum.
Smiley hefur hér það verkefni að afhjúpa
njósnara Rússa innan MI6 þótt ekki sé laust
við að hann liggi sjálfur undir grun. Hægt
og rólega fikrar hann sig að skúrknum og
teflir flóknar refskákir í huganum á meðan
hann þrengir hringinn.
Allt er þetta sett fram og útfært með
miklum ágætum þannig að myndin ber
lengdina vel og lúmsk spennan magnast
eftir því sem á líður þótt flestir sem eru
sæmilega skólaður í njósnafræðunum ættu
að vera búnir að finna svikarann áður en
Smiley leysir gátuna.
Þórarinn Þórarinsson
60 bíó Helgin 13.-15. janúar 2012
S jónvarpsþættirnir um Prúðuleikana urðu 120 talsins. Þeir gerðust í leik-húsi þar sem boðið var upp á dans- og
söngatriði, leikþætti og uppistandsgrín auk
þess sem skyggnst var á bak við tjöldin þar
sem Kermit froskur var iðulega í miklu fári
við að láta sýninguna ganga og halda á sama
tíma hinni ástleitnu Svínku í hæfilegri fjar-
lægð. Mennsk gestastjarna mætti í hvern þátt
og eftir því sem þeir urðu vinsælli sótti þekkt
fólk það fastar að fá að koma í heimsókn.
Meðal þekktra gesta í þáttunum voru Elton
John, Diana Ross, Roger Moore og Stjörnu-
stríðsleikarinn Mark Hamil ásamt vélmenn-
unum C-3PO og R2-D2.
The Muppets er fyrsta Prúðuleikaramynd-
in sem Disney er með puttana í frá Muppet
Treasure Island kom út. Söguþráður The
Muppets kallast á við deilurnar um framtíð
tónleikastaðarins NASA í Reykjavík þar sem
hér taka heitustu aðdáendur Prúðuleikarana
sig til og smala saman gömlu prúðuleikur-
unum til þess að bjarga gamla Prúðuleikara-
húsinu sem viðskiptajöfur ætlar sér að rífa til
þess að bora eftir olíu á byggingarreitnum.
Walter er ungur maður sem fæddist sem
brúða. Hann býr með mennskum bróður
sínum Gary en í æsku urðu þeir forfallnir
Prúðuleikara-aðdáendur þegar þeir horfðu á
sjónvarpsþættina. Þegar Gary býður kærustu
sinni, Mary, í ferð til Los Angeles til þess að
halda upp á að þau hafi verið saman í tíu ár
býður hann Walter með – fyrst og fremst svo
Walter geti heimsótt gamla Prúðuleikarahús-
ið og skoðað sviðsmynd þáttanna sem hann
heillaðist af sem barn.
Í Los Angeles kemst Walter af því að olíu-
baróninn, Tex Richman, er við það að kaupa
leikhúsið með það fyrir augum að rífa það.
Bræðurnir eru í framhaldinu upplýstir um að
til þess að bjarga leikhúsinu þurfi að snara
fram tíu milljónum dollara til þess að bjarga
því úr klóm Richmans. Leiðin liggur þá á fund
Kermits sem hangir hálf þunglyndur í villu
sinni. Fregnirnar af yfirvofandi örlögum leik-
hússins fá töluvert á hann og hann ákveður
að halda nýja Prúðuleikara-sýningu til þess
að safna fénu sem þarf til þess að bjarga leik-
húsinu.
Walter, Kermit, Gary og Mary leggja síðan
upp í smalaleiðangur. Fossa finna þau í Las
Vegas þar sem hann skemmtir með Prúðu-
leikaraeftirhermunum Moopets, Gonzo er
orðinn umsvifamikill pípulagningamaður
en ákveður að snúa baki við fyrirtækinu og
ganga til liðs við sína gömlu félaga. Tromm-
arann Dýra finna þau svo á reiðistjórnunar-
námskeiði. Hann slær einnig til en stuðnings-
fulltrúi hans, leikarinn Jack Black, varar hann
við því að koma nálægt trommum. Svínka er
sú eina sem kærir sig ekki um að snúa aftur
en hún ritstýrir efni um föt í yfirstærðum hjá
Vogue í París.
Þegar hópurinn hefur tryggt sér sjónvarps-
stöð til þess að senda söfnunarþáttinn frá
byrjar hasarinn fyrir alvöru. Vitaskuld þarf að
tryggja gestastjörnu og ganga frá fleiri laus-
um endum og þetta er hægara sagt en gert.
Þegar Richman áttar sig á því að Prúðuleikur-
unum gæti tekist að bjarga húsinu fer hann á
fulla ferð við að reyna að skemma fyrir þeim
og allt reynir þetta brölt verulega á samband
Gary og Mary sem og samband bræðranna.
Þar sem alvanalegt er að Prúðuleikararnir
lifi og hrærist innan um manneskjur af holdi
og blóði er vitaskuld ekkert óeðlilegt við
söguþráðinn þannig að hér koma leikarar og
brúður saman eins og ekkert sé sjálfsagðara.
Jason Segel, úr How I met your Mother, leikur
Gary auk þess sem hann er einn handrits-
höfunda myndarinnar. Amy Adams leikur
Mary, kærustuna hans, en gamli harðjaxlinn
Chris Cooper leikur auðmanninn illa. Gaman-
leikarinn Jack Black leikur svo sjálfan sig í
myndinni.
Aðrir miðlar: Imdb: 8.0, Rotten Tomatoes: 96%,
Metacritic: 75%.
Prúðuleikarnir Mættir aftur
Sjónvarpsþættirnir The Muppet Show, eða Prúðuleikararnir, sem runnir voru undan rifjum brúðu-
meistarans Jim Henson, nutu mikilla vinsælda á árabilinu 1976 og 1981 þegar Kermit froskur,
fröken Svínka, Fossi björn, sænski kokkurinn og fleiri fyrirbæri voru fastagestir á skjám víða.
Prúðuleikararnir hafa einnig látið til sín taka í fjölda bíómynda og eru nú mættir á hvíta tjaldið á
nýjan leik eftir 12 ára hlé í The Muppets.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
bíó
Líf í gömlum tuskum
fruMSýndar
Margaret Thatcher var formaður
breska Íhaldsflokksins og forsætis-
ráðherra Bretlands, fyrst kvenna, frá
1979 til 1990. Hún var grjóthörð hægri
manneskja og talaði fjálglega gegn
Sovétríkjunum og uppskar fyrir vikið
viðurnefnið Járnfrúin.
Vinsældir hennar dvínuðu á fyrstu
árunum í Downingstræti 10 í skugga
kreppu og mikils atvinnuleysis en efna-
hagsbati og Falklandseyja-stríðið öfluðu
henni vinsælda á ný sem skiluðu sér í endurkjöri árið 1983. Hún hélt meirihluta
þriðja kjörtímabilið 1987 en hrökklaðist frá völdum í nóvember 1990.
The Iron Lady, í leikstjórn Phyllidu Lloyd, er saga Járnfrúarinnar rakin og
skyggnst á bak við pólitísk tjöldin þar sem Thatcher gegndi einnig hlutverki
eiginkonu, móður og húsmóður. Meryl Streep bregður sér í hlutverk Thatcher
og þykir gera þeirri gömlu svo frábær skil að þegar er farið að spá því að hún
kræki í þriðju Óskarsstyttuna vegna frammistöðunnar. Sá ljúfi leikari Jim
Broadbent leikur Dennis, eiginmann hennar, sem stóð hæverskur og utangátta
í skugga frúarinnar. En saga Thatcher er rakin í endurliti sem hefst þegar hún
fer í gegnum ýmsa muni á heimilinu að Dennis látnum.
Aðrir miðlar: Imdb: 5.9, Rotten Tomatoes: 57%, Metacritic: 52%.
Þegar
hópurinn
hefur
tryggt
sér sjón-
varpsstöð
til þess
að senda
söfnunar-
þáttinn
frá byrjar
hasarinn
fyrir al-
vöru.
BíódóMur tinker tailor Soldier SPy
Streep tæklar Thatcher
Kermit froskur
safnar saman
öllum gömlu
félögunum til
þess að bjarga
gamla Prúðu-
leikarahúsinu
með dyggum
stuðningi
mannfólksins
Gary og Mary.
Dennis og Maggie fagna á góðri stundu.
Smáralind 201 Kópavogur
Hverafold 1-3 112 Reykjavík 511 1710
svanhvit@svanhvit.is www.svanhvit.is
Opnunartími
Hverafold:
Virka daga 8:00–18:00 og
föstudaga 8:00–18:30
Opnunartími
í Smáralind:
Virka daga 11:00–19:00 og
laugardaga 11:00–18:00
SKYRTUTILBOÐ!
330 kr. skyrtan
– ef komið er með þrjár eða fleiri í einu.
Gráir karlar í svikulum heimi