Fréttatíminn - 30.03.2012, Blaðsíða 44
Ofurfæði-æði
Bls. 4
Alvöru ofurfæða
Ofurfæða hefur meira af næringarefnum en gengur og gerist í annarri fæðu.
Naturya er með úrval af lífrænun og ná�úrulegum vörum sem hentugt er að
nota í uppskri�ir, bakstur og þey�nga. Þær blása nýju lífi í þi� daglega mataræði
og veita heilbrigða uppörvun sem aðeins ná�úran ein getur vei�.
C-vítamín • andoxunarefni • tre�ar • magnesíum • járn • D-vítamín
Omega 6 • Omega 3 • amínósýrur • blaðgræna • steinefni • kalk
Kalíum • kalsíum • B2 vítamín • karó�n • kolvetni
Ofurfæði hefur notið gríðarlegra vinsælda undanfarin misseri en það inniheldur
meira af næringarefnum en gengur og gerist í annarri fæðu. Ofurfæði er upplagt
í ýmiskonar matargerð, svo sem bakstur og þeytinga. Hér að neðan er fróðleikur
um vinsælustu tegundirnar og hugmyndir um notkun þeirra.
Grænn ofurþeytingur
2 tsk bygggras-/spirulina-/chlorella-/hveitigrasduft
blandað út í nýkreistan safa – notið safapressu.
2 lífræn epli
4 stórar lífrænar gulrætur
1 sellerí stöngull
Græna duftinu hrært í nýkreista safann og njótið.
Einfaldar bananapönnukökur
með lucuma sætu
1 banani
1 tsk mulin hörfræ
1 vistvænt egg
1 msk möndlusmjör frá Rapunzel
1 msk möndlumjöl frá Horizon
1 tsk bourbon vanilla frá Rapunzel
1 teskeið lucuma frá Naturya
1 msk kókosmjöl frá Rapunzel
Stappið bananann með gaffli. Blandið öllu hráefninu
saman. Steikið á pönnu upp úr kókosolíu. Ljúffengt
með lífrænu hlynsírópí og ferskum jarðaberjum.
Acai duft
Einstaklega ríkt af andox-
unarefnum og 1-2 teskeiðar
í þeytinginn er góð leið til að
auka næringargildi hans til
muna. Acai berin innihalda
einnig omega fitusýrur og
aminosýrur.
Hveitigrasduft
Gott að blanda í nýkreistan
safa eða þeyting. Hveitigrasið
hefur sýrustillandi og hreins-
andi áhrif á líkamann enda
ríkt af blaðgrænu, fjölmörgum
vítamínum og 8 aminosýrum.
Bygggrasduft
Inniheldur 25x meira af
potassium en banani, 10x
meira af kalki en kúamjólk,
45x meira af B2 vítamíni en
kál og 5x meira járn en spínat.
Bygggrasduft er frábært í
heilsuþeytinginn.
Spirulina duft
Spirulina hefur verið ræktuð
í opnum ferskvatnstjörnum í
margar aldir. Gott að blanda
í drykki eða þeytinga. Inni-
heldur 64% prótein, mikið af
blaðgrænu og er mjög ríkt af
vítamínum, sérstaklega B12
og steinefnum.
Chlorellu duft
Chlorella er ræktuð í opnum
ferskvatnstjörnum. Mjög hollt
og gott að blanda Chlorellu
duftinu við drykki eða hræra
út í græna þeytinga. Inniheldur
mikið af próteini, er lífrænt og
glútenlaust.
Lucuma duft
Upplagt til að nota sem
sætuefni í bakstur, eftir-
rétti eða þeytinga. Lucuma
ávöxturinn er mjög trefja- og
steinefnaríkur. Best er að nota
Lucuma með annarri sætu
eins og döðlum, hunangi eða
hlynsírópí.
Chiafræ
Stútfullt af næringu eins og
trefjum, omega-3 fitusýrum og
próteini. Chia fræin henta vel í
morgungrautinn, bæði er hægt
að blanda þeim saman við
hafragrautinn eða búa til graut
úr þeim. Chia fræin eru soðin
í nokkrar mínútur eða lögð í
bleyti þar til þau tútna út og
mýkjast.
Hampduft
Frábært út á morgungraut eða
jógúrt til að auka næringargild-
ið. Einnig er mjög gott að nota
hampduftið í heilsuhristinginn.
Hampduft er ríkt af omega
6 og 3 fitusýrum, próteini og
snefilefnum.
Maca duft
Gott að nota í heilsuhrist-
inginn, í bakstur, súpur og
fleira. Það er næringarríkt,
veitir aukna orku og jafn-
vel talið hafa jákvæð áhrif á
fyrirtíðaspennu, frjósemi og
talið auka kynorku. Þá
inniheldur Maca ríkulegt magn
af steinefnum, B1, B2, B12, C
og E vítamínum ásamt því að
vera mjög trefjaríkt.
Kakó nibs
Innihalda ríkulegt magn af
andoxunarefnum og stein-
efnum. Kakó nibs er hægt að
borða ein og sér eða sem eftir-
rétt með ferskum berjum. Gott
er að setja örlitla sætu yfir þau
eins og agavesíróp. Frábær
í heilsuhristinginn og vinsæl
í hráfæði eftirrétti.
NOW – ómissandi
til að viðhalda orku
og góðri heilsu
„Ég æfi tvisvar á dag allan
ársins hring,“ segir Ragna
Björg sem þessa dagana æfi r
fyrir Ólympíuleikana í London
2012. „Og þá er algjörlega
nauðsynlegt að hugsa vel um
heilsuna og hvað maður lætur
ofan í sig.
Hversu stórt hlutverk spila
fæðubótarefni í þinni þjálfun?
„Þau spila mjög stórt hlutverk.
Þau gera mér kleift að ná sem
mestu út úr hverri æfi ngu og
gefa mér auka orku til að geta
æft eins mikið og ég geri.“
Hvers vegna notar þú NOW
vörurnar?
„Ég verð að gera strangar
kröfur til þess sem ég neyti
svo að árangurinn skili sér
enda stefni ég hátt og því
leitast ég við að nota hrein
fæðubótarefni, sem eru í senn
án sætuefna á borð við aspar-
tame og Acesulfam K, litar-
efna, ódýrra uppfylliefna, rot-
varnar- og bragðefna. Það er
einmitt þess vegna sem ég vel
NOW umfram önnur vörumerki
í þessum bransa. Virknin er
einstök og þau hjálpa mér að
ná árangri,” segir Ragna.
Betri árangur
Ragna segist hafa tekið
fæðubótarefnin í átta ár og
hún sé ekki í vafa um að þau
hafi hjálpað henni mikið við
að ná árangri og viðhalda
góðri heilsu. „Oft er maður
dauðþreyttur eftir fyrri
æfi nguna en þá blanda ég mér
prótein- og kolvetnablöndu
sem er samblanda af Dextrosa
og Carbo Gain og er þá alveg
tilbúin í slaginn á seinni æfi ng-
unni og ekkert þreytt daginn
eftir.
Slökun og einbeiting
Ég tek svo inn EVE fjölvítamín
og Magnesíum citrate sem
hjálpar mér að ná slökun
eftir mikið álag og kemur í veg
fyrir harðsperrur. Acidophilus
góðgerlablanda og D-vítamín er
einnig alltaf til í skápnum
mínum sem og omega-3 olíur
sem hjálpa mér að viðhalda
einbeitingu sem skiptir mig
gríðarlega miklu máli,” seg-
ir Ragna. Þetta eru grunn
bætiefnin sem hún notar að
staðaldri.
Borðar lífræna fæðu
„Ég er í engum vafa um að góð
og hrein fæðubótarefni eins og
frá NOW geti aðstoðað mann
við að ná árangri og viðhalda
heilbrigði. Ég spái mikið í hvað
ég læt ofan í mig og hef vanið
mig á að neyta lífrænnar fæðu
í meiri mæli en áður því ég vil
takmarka magn þeirra efna
sem gætu mögulega haft áhrif
á heilsu mína og líðan. Þess
vegna henta NOW fæðubót-
arefnin mér einstaklega vel.
Einnig er ég heppin að
LIFANDI markaður hefur stutt
við bakið á mér og ég borða
þar nánast á hverjum degi.
Það vita allir íþróttamenn sem
vilja ná árangri að það skiptir
öllu að vera í topp formi bæði
líkamlega og andlega til að ná
langt. NOW hefur gríðarlega
stranga gæðastaðla og leitast
við að nota hráefni sem eru
ekki genabreytt og kemísk og
velur lífræn hráefni þegar
mögulegt er.”
Ragna Björg Ingólfsdóttir, áttfaldur íslandsmeistari í einliðaleik í
badminton, keppti á Ólympíuleikunum í Peking 2008 og hefur sigrað
mörg alþjóðleg mót. Hún segir fæðubótarefnin frá NOW algjörlega
ómissandi til að viðhalda orku og góðri heilsu.
Krydd fyrir framandi matargerð
HÁMARKS
ÁRANGUR
Grunnpakkinn frá NOW inniheldur
þau lykil næringarefni sem flestir
fá ekki nóg af, jafnvel þó þeir neyti
fjölbreyttrar fæðu.
„Ég vel NOW vegna þess
að þær eru framleiddar
og prófaðar samkvæmt
ströngustu gæðastöðlum
og innihalda ekki vafasöm
auk- og fyllingarefni sem
geta dregið úr árangri.
Ég set markið hátt, þess
vegna vel ég NOW.“
G æ ð i • H r e i n l e i k i • V i r k n i
Ragna Ingólfs,
landsliðskona í badminton
og ólympíufari.
Grunnpakki NOW Frábær viðbót