Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.03.2012, Blaðsíða 22

Fréttatíminn - 30.03.2012, Blaðsíða 22
Sími 570 2400 · oryggi.is Stöndum vaktina allan sólarhringinn Sérfræðingar Öryggismiðstöðvarinnar kynna nýjar vörur, hjúkrunarrúm og rafskutlur. Iðjuþjálfi verður á staðnum og veitir ráðgjöf. Allir velkomnir. PIPA R\TBW A • SÍA • 121020 Opið hús hjá Öryggismiðstöðinni, Askalind 1, í dag, föstudaginn 30. mars, kl. 9–17 V alur Óskarsson trúir því að hann hafi fundið orsök þess að hann hefur glímt við al- varlegt þunglyndi eins og móðir hans gerði einnig síðustu misseri lífs síns. Valur var þá kennsluráð- gjafi um tölvur og tölvunotkun hjá Reykjavíkurborg. Hann hneig út af þegar hann kom heim úr vinnu og glímdi við minnimáttarkennd og örvæntingu yfir því að geta ekkert gert fyrir móður sína. „En mig lang- aði.“ Þunglyndið dró úr honum alla orku. „Ég var gjörsamlega búinn.“ Valur, sem einnig hefur starfað sem skólastjóri Laugaskóla í Döl- um, yfirkennari Selásskóla og skóla- stjóri Hamraskóla í Grafarvogi og loks tölvuumsjónarmaður í Borga- og Rimaskóla, leitaði til fyrrum starfsfélaga í Samtökum líffræði- kennara – enda hafði hann kennt líf- fræði. Þeir geymdu fyrir hann gögn þegar hann fór að leita að orsökum veikinda sinna. „Ég vissi allan tímann að félagar mínir voru að reyna að rífa mig upp og hjálpa mér. Í þrjú ár köstuðum við á milli okkar hugmyndum. Ég hélt að ég hefði rambað á eitthvað sem hjálpaði aðeins mér, en nú trúi ég að þetta ráð gagnist líka öðrum.“ Valur bar saman einkenni sjúk- dóma og fyrir tilviljun varð honum litið á lýsingar sykursýki og þung- lyndis á svipuðum tíma. Hann hélt að hann hefði gert mistök og væri að tvílesa sama textann. Einkennin voru í megin- atriðum eins; fyrir utan þorsta sykursjúkra. Frumur án glúkósa „Sykursjúkir veikjast vegna þess að insúlín kemur ekki glúkós - anum í frumurnar. Ef sykursjúkir verða veikir vegna þess að frumur þeirra vantar næringu, hlýtur það sama að gilda um þunglynda,“ sagði hann við sjálfan sig og hélt vangaveltum sínum áfram. „Hvað gerist á spítala þegar fólk kem- ur veikt inn? Læknar hengja upp poka með einu næringunni sem frumurnar vilja; glúk- ósa.“ Hann velti þessu fyrir sér þar til eitt kvöldið að hann fékk eina af nokkr- um hugljómunum sínum. Þetta voru skondnar hugsanir, sem tengdust jafnvel pitsusendlum sem báru í hann mat, og fengu hann til að hugsa um upptöku frumna á glúk- ósa: „Það er ekki sendillinn/insúl- ínið sem skiptir máli. Ef hann kæmi án matarins/glúkósans væri ekkert gagn að honum. Þannig vil ég skýra þetta út,“ segir þessi fyrrum grunn- skólakennari á einföldu máli. „Og ef ég einfalda þetta enn: Ef sykursjúkir væru með glás af insúlíni en engan mat; batnaði þeim þá? Nei.“ Frétt um að önnur vatnsæðin í dælukerfi Siglfirðinga væri biluð leiddi hann áfram að lausn sinni: „Auðvitað, það eru tvær dælur í lík- amanum. Að sjálfsögðu getur önnur þeirra, jafn- vel báðar, bilað. Og það átti ég að vita því ég hafði legið á spítala því önnur dælan bilaði,“ segir hann. „Ég lá á spítalanum í þrjár vikur árið 1995 af því að þarmatoturnar hættu að virka. Það heit- ir þarmalömun,“ segir hann. „Ég borðaði ekki snitti í þrjár vikur.“ Nið- urstaða læknanna var að dæla öllu úr görnunum. „En jafnframt var ég alltaf með nær- ingu í æð og glúkósinn fór því fram hjá þarmakerfinu. Eftir þessar þrjár vikur sögðu þeir mér að meltingar- vegurinn væri að lagast.“ Kornsírópið lamar Eins og margir þekkja getur glú- ten skaðað þarmatoturnar og Valur telur að þær geti orðið hálfóvirkar af öðrum efnum, en þær gegna sínu hlutverki við frásog úr fæðunni. „Það virðist vera sem efni stoppi frásogið og manni líði því stundum vel og stundum illa. Ég tel að ég hafi fundið efnið sem hefur þessi áhrif.“ Það var tilviljun að Valur ramb- aði á efnið fyrir aðeins tveimur mánuðum. Þá fannst honum hann fá staðfestingu á því hvers vegna hann veiktist hastarlega, í tvígang, eftir ferð með barnabörnum sínum í berjamó. Hann tíndi upp í sig ber og varð veikur. „Mér leið svo illa og hugsaði: Það getur ekki verið slæmt að borða ber. Síðan hefur mér fundist margt benda til þess.“ Í greininni sem kom Val á sporið svarar Yrsa B. Löve ofnæmislæknir því á mbl.is hvort agave-sýróp sé hollara en sykur. „Hún segir fólki að fara að passa sig á frúktósa/ ávaxtasykri,“ segir hann. „Hún segir að frúktósi sé álíka svakaleg- ur fyrir lifrina og alkóhól. Lifrin búi til litlar fitusameindir úr frúktós- anum og geti valdið fitulifur. Hún bendir á kornsíróp og að það lækki insúlín í blóði. Ég hafði þá lengi velt því fyrir mér hvort þetta efni gæti verið HFCS eða High fructose corn syrup.“ Kornsíróp ser víða í unn- inni fæðu. En hvernig læknaðist Valur af þunglyndinu? Hann hefur útbúið drykk; engan nýaldardrykk held- ur afsprengi gamals húsráðs sem hann fékk hjá starfsmanni geð- deildar þegar hann lá þar inni. Hann hellir sjóðandi vatni yfir 1/4 bolla af nýmjólk en aukalega bætir hann í hana rétt framan á teskeið af þrúgusykri og drekkur hægt. Að undanförnu hefur Valur próf- að drykkinn til. Hann hefur komist að því að það er ekki sama hvenær hann neytir drykkjarins. „Gera þarf ráð fyrir að eitthvert efni sem lamar þarmatoturnar sé í kvöld- matnum. Þegar það fer fram hjá lagast toturnar aftur. Þá er hægt að drekka drykkinn og glúkósinn, sem frumurnar þurfa, kemst á leið- arenda.“ Fastar frá kvöldmat Nú fastar Valur frá kvöldmat og vaknar upp klukkan þrjú á nótt- inni til að drekka drykkinn. „En það má ekki klikka á því að gefa honum góðan frið til að virka.“ Val- ur segir að hjá sér taki það fjórar klukkustundir. Á fimm sólarhringum var hann orðinn góður. Baugarnir, sem prýddu hann lítið, hurfu. „Síðan gerðist nokkuð ótrúlegt. Ég fann fyrir tilfinningum,“ segir hann. „Ég hafði síðustu fimm ár verið að taka lyf sem heitir Venlafaxin. Margir segja að það sé ekki hægt að venja sig af því, fráhvarfsein- kennin séu svo mikil. Eftir viku á drykknum ákvað ég að sleppa því og fara í vinnuna. Ég fann engan mun. Ég væri að ljúga ef ég segð- ist ekki hafa fundið mun á fjórða degi,“ segir hann. „Þegar mínar gömlu, þreyttu og bólgnu frumur fóru að taka við sér aftur, fylgdi því töluverður sárs- auki. Einfaldast er því væntanlega að nota verkjalyf á meðan þetta gengur yfir.“ Valur var á tvenns konar þung- lyndis- og kvíðastillandi lyfjum en er hættur á báðum. „Ég var 94 kíló fyrir mánuði. Ég er 81 kíló í dag. Samt fór ég að borða tvöfalt. Það er einföld skýring á þessu. Ef frumur hafa ekki fengið næringu þá hætta þær að virka. Á meðan safnar lifrin til mögru áranna. Nú þegar frum- urnar fá aftur næringu batnar þeim og lifrin sækir það sem hún hefur geymt. Þar sem ég vissi þetta gat ég verið rólegur yfir þyngdartap- inu. Ég væri ekki veikur. Ég væri að læknast,“ segir hann. „Þetta tókst mér fyrir barnabörn- in, fyrir mömmu gömlu. Eins og staðan er núna er ég bara að vinna með þetta gamla húsráð. En í fram- tíðinni vonast ég til að fundnar verði aðrar leiðir svo að fólk þurfi ekki að vakna upp á nóttinni.“ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is Framhald á næstu opnu. „Ég læknaði sjálfan mig“ Líffræðingurinn Valur Óskarsson gróf í þekkingarbrunn sinn og fann það sem honum finnst skýra ástæðu þunglyndis sem hann hefur glímt við í þónokkur ár. Leiðin að lausninni er ævintýralega einföld. Kannski of góð til að vera sönn? Niðurstaðan er þó mikil framför í lífi Vals. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir hlustaði á hann. Valur Óskarsson læknaði sjálfan sig af þunglyndi. Mynd/Hari Á fimm sólarhring- um var hann orðinn góður. Baugarnir, sem prýddu hann lítið, hurfu. 22 úttekt Helgin 30. mars-1. apríl 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.