Fréttatíminn - 30.03.2012, Blaðsíða 24
Sá sem
hefur reynt
þetta getur
veitt upp-
lýsingar til
að hindra
að fólk falli í
sömu pytti á
leiðinni.“
Þú velur
og draumasófinn þinn er klár
GERÐ (yfir 90 mismunandi útfærslur)
STÆRÐ (engin takmörk)
ÁKLÆÐI (yfir 2000 tegundir)
Sófinn þinn útfærður eftir þínum óskum
Íslensk
framleiðsla
Mósel
30% afsláttur af völdum sófum
H Ú S G Ö G N
Basel
Patti verslun | Dugguvogi 2, 104 Reykjavík | Sími: 557 9510 | Netfang: patti@patti.is | vefsíða: patti.is
Verslun okkar er opin:
Virka daga kl. 9-18
Laugardaga kl.11-16
Sunnudaga lokað
Telur vellíðan Vals
ekki líffræðilega og
hvetur fólk til að hafa
samráð við lækni
Ó trúleg áhrif. Ég hefði ekki trúað því að þetta gerðist á svona stuttum tíma,“ segir
Áslaug Bragadóttir, starfsmanna-
stjóri á Barnaverndarstofu. Hún
hefur glímt við þunglyndi en los-
aði sig úr viðjum lyfja um áramótin
vegna aukaverkana. Hún hafði þó
ekki fundið sig fyrr en hún prófaði
að fylgja því ráði Vals Óskarssonar
að neyta þrúgusykurs klukkan þrjú
að nóttu til. Fréttatíminn talaði við
hana tíu dögum eftir að hún hóf að
vakna um miðjar nætur. Hún borðar
ekkert eftir klukkan sjö á kvöldin.
„Ég veit að Valur er skynsamur
maður og ákvað að trúa honum.
Þetta virkar á mig en ég get auð-
vitað ekki lofað því að það sama
eigi við um aðra. Tilfellið er að á
ekki lengri tíma er líðan mín mjög
breytt.“
Áslaug segir þunglyndinu ekki
aðeins fylgja depurð, heldur einnig
ofboðslegt einbeitingarleysi, þoku-
kennd hugsun og lág sjálfsmynd.
„Ég finn mikinn mun á því. Ég get
hugsað skýrar og er ákveðnari. Ég
stend á mínu og er ekkert að hafa
áhyggjur af því að næsti maður sé
ekki sammála mér. Þetta er nokkuð
sem ég hef ekki upplifað í áraraðir,“
segir hún.
Engin einkenni þunglyndis
„Ég finn ekki fyrir þessari þreytu
sem fylgir þunglyndi; máttleysi og
framtaksleysi. Ég kom alltaf þreytt
heim úr vinnu en finn að orkan er
orðin miklu meiri.“
Áslaug segir að hún reyni að
forðast ávaxtasykur (frúktósa) og
fæðu með kornsýrópi. „Ég hætti
að drekka gos og vel ávextina úr.
Ég fann á netinu lista yfir magn
af frúktósa í ávöxtum og reyni
að halda frúktósaneyslu undir 15
grömmum á dag,“ segir hún og
bendir á að í apríkósum sé lítill
ávaxtasykur, mikill í appelsínum
og aftur á móti lítill í trönuberjum,
svo að dæmi séu tekin.
Hún byrjaði á því að blanda
þrúgusykrinum (glúkósanum) út
í kúamjólk en fékk þá exembletti
sem hún tengdi við hana. Hún fór
því að drekka hann í hrísmjólk.
„Ég vakna klukkan þrjú á nótt-
unni og drekk þessa blöndu. Svo
fæ ég mér á morgnana og sötra á
leið í vinnuna,“ segir Áslaug, sem
hætti að drekka kaffi og sneri sér
að tei. „Glúkósi er saklaust efni og
ég prófaði þetta því með góðri sam-
visku og sé ekki eftir því. Áhrif-
in eru góð fyrir mig og ég mæli
með því að fólk prófi – það gerist
þá ekki annað en að þetta virkar
ekki.“ - gag
„Ótrúleg áhrif “
Þetta segir Áslaug Bragadóttir sem upplifir breytta líðan eftir
að hún hóf að taka inn þrúgusykur.
Áslaug Bragadóttir er miklu betri eftir að hún nýtti sér ráð Vals Óskarssonar.
É g tel að það megi fullyrða að sú betri líðan sem lýst er eigi sér ekki líffræðilegar skýr-
ingar,“ segir Sigurður Guðmunds-
son, forseti heilbrigðisvísindasviðs
Háskóla Íslands og fyrrum land-
læknir, sem hvetur fólk til að leita
til læknis áður en það ákveður að
hætta á lyfjum og reyna leiðina hans
Vals Óskarssonar.
„Það hafa oft komið fram ýmiss
konar skoðanir, sem ekki hefur ver-
ið hægt að sanna með rannsóknum,
um að þrúgusykur sé gæddur eig-
inleika sem aðrir sykrungar hafa
ekki,“ segir hann.
Sigurður dregur þó ekki í efa að
Val líði betur. „Og þá komum við
að því hvað þunglyndi sem slíkt er
flókið mál. Við höfum í reynd litla
þekkingu á hvað veldur því; hvorki
líffræðilega né að öðru leyti. Við
vitum að það er gríðarlega mikil
breidd í sjúkdómnum, allt frá því að
vera eðlileg depurð, sem stundum
er ofgreind sem þunglyndi, til þess
þunglyndis sem er svo alvarlegt að
það veldur beinlínis líffræðilegum
einkennum: hægum hjartslætti,
hægðatregðu. Fólk kemst ekki úr
sporunum og hefur ekki orku eða
vilja til neins.“
Hann bendir á að hægt sé að gera
margt til að létta sér lífið, séu ein-
kennin væg. „Hreyfing er klassíska
leiðin en ýmiss konar áhugamál –
það má vera hvað sem er; eins og
að borða sérstakan mat – gerir líka
gagn þótt á því sé engin líffræðileg
skýring. Með fullri virðingu fyrir
manninum má sennilega skýra vel-
líðan á grundvelli þessa.“ -gag
Sigurður Guðmundsson, forseti heilbrigðissviðs HÍ.
„Já, gæti virkað“
J á,“ svarar Hallgrímur Magn-ússon læknir spurður hvort hann telji að tilgáta Vals
Óskarsson geti reynst lausn. Mikil-
vægt sé að fasta og gefa þörmunum
hvíld, auk þess sem lifur vinni mest
á kvöldin.
„Hún vinnur frá klukkan átta
og níu á kvöldin til klukkan þrjú
til fjögur á næturnar. Hennar hlut-
verk er að taka til og gera við. Ef við
djöflumst t.d. í líkamsrækt á kvöldin
hefur hún ekki tíma til þess.“
Hallgrímur bendir á að mörg
ráð séu við þunglyndi. „Það eru til
dæmis til mörg hundruð pappírar
sem sýna að þunglyndi er læknað
með því að gefa fólki magnesíum,
d-vítamín og sink.“ Spurður hvers
vegna þessum vítamínum sé ekki
ávísað á fólk í stað þunglyndislyfja
svarar hann: „Ef við förum almennt
að lækna okkur sjálf erum við ekki
með norrænt heilbrigðiskerfi.
Hallgrímur bendir á að ætli fólk
að hætta á þunglyndislyfjum finni
það fyrir fráhvörfum. „Okkur vant-
ar stað þar sem fólk getur lagst inn
og kom ist
yfir lyfjafrá-
hvörfin,“ seg-
ir Hallgrímur.
Þannig deild
segir hann
að sé í Dan-
mörku þar
sem fólk geti
lagst inn í
v iku, undir
handleiðslu
lækna.
„Ef fólk vill
prófa þarf það
að finna sér
fagmann sem
er tilbúinn að
halda í hönd-
ina á því. Sá
sem hef ur
reynt þet ta
getur veit t
upplýsingar
til að hindra
að fólk falli í sömu pytti á leiðinni.
Það hraðar ferlinu.“ - gag
Drykkur Vals
°1/4 bolli nýmjólk
°Sjóðandi vatni hellt yfir
°1/4 teskeið þrúgusykur
°Drekkist eftir átta klukku-
stunda hvíld frá kvöldmat og
gefin góða stund (fjórar klst.)
til að virka. Drekkið hægt.
24 úttekt Helgin 30. mars-1. apríl 2012