Fréttatíminn - 30.03.2012, Blaðsíða 94
SíSýey eyþórSdætur feta nýja Slóð
Nýlega kom bók Eiríks Arnar Norðdahl,
Eitur fyrir byrjendur, út í Svíþjóð. Eiríkur
fagnaði útgáfunni með Svíunum og var út-
gáfupartíið haldið í uppstoppaðri steypireiði
á náttúrugripasafni í Gautaborg. Bókin hefur
fengið glimrandi góða dóma í Svíþjóð; í
sænska ríkisútvarpinu og sjónvarpinu, Da-
gens Nyheter og ýmsum smærri dagblöðum.
Á meðal þess sem hefur verið sagt um
bókina er að hún sé heillandi skáldsaga sem
fái mann til að gleyma stað og stund. Einnig
er bókinni líkt við kvikmyndina Notting Hill.
Eini munurinn sé sá að bókin sé skrifuð af
frönskum tilvistarsinna sem hafi lært í Tíbet í
staðinn fyrir Hollywood.“
Útgáfupartí í steypireiði
Heildarútgáfa
á Hjálpum þeim
Föstudaginn 30. mars hefst sérstakt söluátak
á Heildarútgáfu Hjálpum þeim 1985-2011
sem var gefin út fyrir síðustu jól til stuðnings
Hjálparstarfi kirkjunnar í A-Afríku. Eftirtaldir
aðilar verða með Heildarútgáfuna til sölu í
verslunum sínum: ELKO, Fjarðarkaup, Hag-
kaup, Krónan, Melabúðin, Penninn, Skífan og
bensínstöðvar Skeljungs. Þessi fyrirtæki taka
enga söluþóknun þannig að rúmlega 2.100
krónur af útsöluverðinu, sem er 2.490 krónur
á hvert eintak, skilar sér til málefnisins.
Landsbankinn er bakhjarl og fjárgæsluaðili
útgáfunnar.
Róleg sala á stór-
tónleika
Miðasala á tónleikana Poppstjörnur
í Hörpu á sumardaginn fyrsta, sem
Einar Bárðarson stendur fyrir,
hefur farið rólega af stað. Eftir
því sem Fréttatíminn kemst næst
eru nokkur hundruð miðar af eitt
þúsund og fimm hundruð seldir.
Miklu er tjaldað til á tónleikunum,
sem eiga að höfða til yngri kyn-
slóðarinnar, og fram munu koma
Páll Óskar og Friðrik Dór, sem
syngja dúet, Jón Jónsson, Steindi
jr. og Bent, Blár Ópal, Ingó
veðurguð og Eurovision-fararnir
Greta Salóme og Jónsi. Á meðan
uppselt er á heldri tónlistarmenn
frá útlandinu vekur athygli hversu
dræm miðasala er á tónleika með
þessum helstu stjörnum íslenskrar
tónlistar. -óhþ
Þetta er
svolítið nýtt
fyrir þeim og
það tók alveg
smá tíma að
koma þessu í
gang.
Carmen, Sigga, Beta, Elín og Friðfinnur plana 18. apríl. „Við vitum að það er fullt af fólki orðið rosaspennt fyrir þessu og
þetta verður rosastuð. Þetta er ekkert risahúsnæði og það er frítt inn,“ segir Carmen þannig að þeir sem vilja ekki missa af
Siggu, Elínu og Betu syngja diskóskotið house ættu að taka daginn frá strax. Ljósmynd Hari.
Carmen fékk systurnar til að
spreyta sig á house-tónlist
Systurnar og tónlistarkonurnar Sigríður, Elín og Elísabet Eyþórsdætur hafa komið víða við í
tónlistinni en vinna nú í fyrsta sinn markvisst saman að verkefni sem í ljósi sögu þeirra er
óneitanlega nokkuð framandi. Að undirlagi og með Carmen Jóhannsdóttur hafa þær myndað
bandið Sísýey og ætla að flytja diskóskotna house-tónlist.
É g myndi segja að Carmen væri límið í þessu,“ segir Sigríður Ey-þórsdóttir. „Við systurnar erum
allar svo miklir sveimhugar og allt situr
á hakanum þegar við ætlum að gera eitt-
hvað þrjár saman. Það má segja að hún
sé líka pródúsentinn okkar og klárlega
verkefnisstjórinn í þessu. Hún er eigin-
lega umboðsmaður og meðlimur í band-
inu og sér bara um allt sem við myndum
aldrei geta séð um og semur líka með
okkur og allt.“
„Ég fékk þessa hugmynd fyrir svona
rúmum tveimur árum,“ segir Carmen.
„Ég var að vinna með Elínu þegar hún
gaf út fyrstu plötuna sína og er búin að
þekkja þessar stelpur í nokkur ár. Mér
fannst geggjað að fá þær þrjár saman til
að syngja house og diskó. Þetta er svo-
lítið nýtt fyrir þeim og það tók alveg smá
tíma að koma þessu í gang.“
„Já, þetta er mjög frábrugðið því sem
við höfum fengist við,“ segir Sigga. „Ég
hlustaði samt mikið á svona tónlist á ung-
lingsárunum en ég er elst okkar systra.
Þetta er svona 90´s house-tónlist. Við
höfum auðvitað oft sungið saman áður
en þetta er í fyrsta skipti sem við erum
markvisst að vinna að einhverju saman.
Þetta er mjög gaman og það hefur komið
mér á óvart hversu vel við náum saman í
þessu þótt við komum að viðfangsefninu
úr ólíkum áttum.“
„Þetta small bara strax saman,“ grípur
Carmen inn í. „En það var eitthvað sem
ég vissi svo sem alveg fyrir. Við byrjuð-
um svo á að finna einhvern til að vinna
með okkur og enduðum með að plata
Friðfinn Oculus og við erum bara öll
saman í að pródúsera þetta og semja.
Friðfinnur sér um allan undirleik og býr
alla tónlist til með hugmyndum frá okk-
ur. Við erum öll saman í þessu alveg á
fullu,“ segir Carmen og bætir við að öll
taki þau verkefnið mjög alvarlega. „Unn-
steinn úr Retro Stefson er svo með okkur
í einu lagi. Það verður skemmtilegt upp
á stelpufílinginn i söngnum að fá einn
svona gestakall í sjóið,“ segir Carmen.
Nafn hljómsveitarinnar Sísýey er
óneitanlega sérstakt en Sigga er með
skýringuna á tilurð þess. „Það var mjög
erfitt fyrir okkur að finna nafn á bandið.
Við erum náttúrlega allar Eyþórsdætur
og eigum ömmu sem hét Sigríður og var
kölluð Sísí.“
Sísýey ætlar að kynna og frumflytja
efni sitt á gamla La Primavera miðviku-
daginn 18. apríl. „Við höfum fókuserað
meira á að vera með sjó frekar en að gera
plötu þótt hún muni auðvitað koma,“
segir Carmen.
toti@frettatiminn.is
Sebastian Studnitzky.
Gengið hefur verið frá því að Orri
Páll Ormarsson, blaðamaður á
Morgunblaðinu, skrifi ævisögu
Hermanns Gunnarssonar. Óvíst er
hvenær bókin lítur dagsins ljós en
ljóst er að það verður ekki á þessu
ári. Óhætt er að segja að Hermann,
betur þekktur sem Hemmi Gunn,
sé einhver ástsælasti núlifandi Ís-
lendingurinn. Hemmi hefur lifað við-
burðaríku lífi. Hann var á sínum tíma
einn allrabesti knattspyrnumaður
landsins, var vinsælasti sjónvarps-
maður Íslands, tónlistarmaður af
guðs náð og almennur gleðigjafi og
búast má við því að kappinn hafi frá
mörgu skemmtilegu að segja. -óhþ
Bækur æviSaga áStSælS íSlendingS
Orri Páll skrifar ævisögu Hemma Gunn
Markmið:
Ný
tt
Sk
yr
.is
Ert þú með markmið?
Segðu frá því á www.skyr.is. Þú gætir unnið flug
og gistingu fyrir tvo innanlands eða gjafabréf. PRÓTEINRÍKT OG FITULAUST
AÐ KEPPA Á ÓLYMPÍU-
LEIKUNUM Í LONDON
Í SUMAR
Jakob Jóhann Sveinsson
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
1
2
-0
3
5
3
Harpa djaSStónleikar á Sunnudaginn
Upphitun fyrir tónleikaferð til Bremen
Djasstónleikar verða haldnir í Hörpu á sunnudaginn, 1. apríl. Þeir eru
öðrum þræði upphitun fyrir tónleikaferð íslenskra djassleikara til Bre-
men í Þýskalandi í lok apríl, en þar leika fjórar íslenskar hljómsveitir á
tónleikum í tengslum við stærstu djassstefnu í Evrópu – Jazzahead.
ADHD, Raddir þjóðar og Tríó Sunnu Gunnlaugs koma fram á sér-
stökum Íslandstónleikum í hinum margfræga útsendingarsal vestur-
þýska útvarpsins, Sendesaal Bremen, en þar hafa margir af frægustu
tónlistarmönnum heims hljóðritað tímalausar perlur. Stórsveit Samúels
J. Samúelssonar kemur síðan fram í nýstofnuðum djassklúbbi sem
stofnaður verður í umbreyttu anddyri hins glæsta tónlistarleikhúss í
Bremen.
Stórsveit Reykjavíkur leikur í Silfurbergi Hörpu klukkan 14 úrval
verka sem samin hafa verið sérstaklega fyrir hljómsveitina á síðustu
árum. Klukkan 17 spinna Raddir þjóðar þeirra Sigurðar Flosasonar og
Péturs Grétarssonar í frjálsu falli með aðstoð framliðinna Íslendinga.
ADHD hefur vakið ahhygli fyrir íhugula og ágenga tónlist. Þá stígur
afróbítið ölduna í N-Atlantshafinu
í útfærslu Stórsveitar Samúels
J. Samúelssonar. Stórsveitin
hefur vakið mikla athygli víða um
heim fyrir sérlega persónulega
útfærslu á stórsveitarhugtakinu.
Tríó þýska trompetleikarans
Sebastians Studnitzky
leikur klukkan 20. Sebastian hefur
síðustu ár verið trompetleikari
Mezzoforte. Þá leikur Tríó Sunnu
Gunnlaugsdóttur en gagnrýnandi
austurríska tímaritsins Concerto
gaf síðustu plötu tríósins, Long
Pair Bond, fimm stjörnur.
78 dægurmál Helgin 30. mars-1. apríl 2012