Fréttatíminn - 30.03.2012, Blaðsíða 30
Opið kl. 9 -18 • laugardaga kl. 11 - 16 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • eirberg.isVerslaðu á vefnum Frí sending að 20 kg 1 árs skilaréttur
Rodalon sótthreinsun
• Gegn myglusveppi • Eyðir lykt úr fatnaði
Gunn og tóku lag úr söngleiknum. „Við
hljótum að hafa staðið okkur vel í þættinum
því að í framhaldinu höfðu samband við mig
skuggalegir menn úr hljómsveitinni Strips-
how og réðu mig sem söngvara. Ég söng
með hljómsveitinni nokkur misseri og lifði
draum ungs sveitapilts til fullnustu,“ segir
Hallgrímur en hann er fæddur og uppalinn
á Bíldudal.
Stripshow varð ansi áberandi í rokk-
heimi Reykjavíkur og hélt ótal tónleika. „Á
þessum tíma átti ég nokkurri kvennhylli
að fagna, sem kom mér í opna skjöldu enda
löngum verið lúði. Ég var því feiminn og
þurfti iðulega að drekka í mig kjark og
kunni mér ekkert hóf, hvorki í víni né vífi,“
segir Hallgrímur en á þessum tíma átti
hann von á barni með sambýliskonu sinni
og hann hætti á toppnum. „Mig langaði
að skrifa og einnig fannst mér ég þurfa að
syngja eins og röddin bauð. Ég hætti því í
hljómsveitinni þegar plötusamningur var
loksins í höfn.“
Kafað ofan í ástina
Það var á þessum tíma – fyrir sautján árum
– sem hann fékk þá hugmynd að gera
þemaplötu sem skyldi fjalla um ástina og
tilfinningaflóðið í kringum hana. „Það er
mörgu ungu fólki mikil raun þetta blessaða
barnalán og við barnsmóðir mín vorum þar
engin undantekning. Það tók okkur nokk-
urn tíma að ná eðlilegum samskiptum og
tilfinningarússíbaninn fór illa með sálar-
tetrið. Ég lagðist í þunglyndi og upp úr því
fæddist fyrsta hugmyndin að plötunni,“ segir
Hallgrímur og segist líta á þetta tímabil sem
dýrmæta reynslu. Og vinnan við plötuna
hélt áfram. „Hugmyndina vann ég með-
fram ýmsum störfum og hún tók á sig ýmsar
myndir. Til dæmis var ein fyrsta hugmyndin
að láta hægra og vinstra heilahvelið takast á
í ljóðaformi. Ég verð að viðurkenna að ég er
manna fegnastur að sú útgáfa hafi ekki kom-
ist áleiðis enda keyrði melódramatíkin þar
fram úr öllu hófi. Alltaf var þó sama megin-
þemað í gangi; tilfinningarússíbaninn sem á
sér stað í gegnum öll ástarsambönd, frá upp-
hafi til enda.“
Persónulegar sögur
Hallgrímur varð aldrei nógu ánægður með
textasmíðina. Hann byrjaði því aftur og aftur
en gafst aldrei upp. „Mér fór þó mikið fram í
textagerð og þess vegna þurfti að semja allan
textann upp aftur í allnokkur skipti. Þegar
þeirri vinnu var lokið þurfti maður að vinna
til að fjármagna plötuna – og þegar fjármagn
fékkst þurfti auðvitað að vinna allan textann
upp á nýtt þar sem ég var aftur kominn
fram úr mér í textagerð. Þannig gekk þetta
í sautján ár,“ segir Hallgrímur og aðspurður
segir hann langt í frá að hann sé þreyttur á
plötunni. „Mér þykir mjög vænt um þessa
plötu enda hef ég lagt sálina í hana í bókstaf-
legum skilningi. Það sjá allir sem heyra og
lesa textana,“ segir hann alvarlegur í bragði,
en á útgáfutónleikunum sló hann á létta
strengi á milli laga. Hann sagði sögur. „Hverju
lagi fylgir saga og ég var óhræddur við að segja
sögurnar í kringum hvert lag. Þær eru margar
mjög persónulegar og sumar alveg bráðfyndnar,“
segir hann brosandi.
Ánægður með dómana
Hallgrímur er ánægður með útkomuna og er
ánægður með það einvala lið sem hann hefur
kynnst frá því hann byrjaði að vinna að plötunni
fyrir sautján árum. „Ég hef í gengum þessa
vinnu kynnst mörgum hæfileikamönnum sem
hafa komið við sögu með einum eða öðrum
hætti; í tvígang byrjað hljóðversvinnu sem og
jafn oft hætt. Nú er eins og öll púslin hafi hrein-
lega raðað sér sjálf og hver snillingurinn á fætur
öðrum gengið inn í verkið – og allt í einu var
platan tilbúin. Þeir Halldór Gunnar Pálsson,
kórstjóri Fjallabræðra, og Önundur bróðir hans
hafa reynst mér eins og Sansjó Pansa í þessari
krossferð. Báðir hafa þeir komið tvisvar að upp-
tökum og Halldór Gunnar í raun komið við sögu
í öll skiptin sem efnið hefur ratað í hljóðver,“
segir Hallgrímur en platan, Einfaldlega flókið,
hefur fengið góða dóma, bæði í Fréttablaðinu
og Morgunblaðinu, þar sem hún fékk fjórar
stjörnur.
Og hann er strax farinn að huga að næstu
plötu. „Ég er nú loks eitthvað byrjaður að
þreifa fyrir mér í nýju efni og vonast jafnvel til
að koma næstu plötu út fyrir sextugsafmælið,
enda stendur hugurinn til áframhaldandi tón-
listargerninga. Þó gæti það hraðað ferlinu ef ég
sleppti þemanu á næstu plötu.“
ritstjorn@frettatiminn.is
Á útgáfutónleikum í
Fríkirkjunni í Reykjavík.
Halldór Gunnar, kórstjóri
Fjallabræðra, stóð þétt
við bakið á Hallgrími
við útgáfu plötunnar og
á tónleikunum sjálfum.
Ljósmynd/Grétar Þór.
Ég var því
feiminn og
þurfti iðulega
að drekka í
mig kjark og
kunni mér
ekkert hóf,
hvorki í víni
né vífi.
Plata Hallgríms hefur fengið góða dóma. Hann er strax farinn að huga að þeirri næstu.
30 viðtal Helgin 30. mars-1. apríl 2012