Fréttatíminn - 30.03.2012, Blaðsíða 41
LÍFSSTÍLL
Hlustar á hjartað
og hyggjuvitið
Páskaþeytingur
Ljúffengur súkkulaði- og
berjadrykkur, tilvalinn
fyrir krakka um páskana.
Orka úr ofurfæði
Hveitigrasduft er orku-
gefandi, næringarríkt og
getur bætt árangur í
líkamsræktinni.
Holle barnamatur
Góð næring fyrir barnið
úr fyrsta fl okks lífrænt
ræktuðum demeter
afurðum.
Ebba Guðný Guðmundsdóttir
kemur til dyranna eins og
hún er klædd. Einlæg, blátt
áfram og geislar af hlýju. Hún
er tveggja barna móðir og
grunnskólakennari að mennt
en hefur síðastliðin tíu ár ein-
beitt sér að öllu því sem við
kemur góðri næringu barna og
allrar fjölskyldunnar. Bækur
hennar hafa notið mikilla vin-
sælda, hún hefur haldið fjölda
námskeiða og fyrirlestra og
þættir hennar í Mbl sjónvarpi
hafa slegið í gegn. Þetta er
hennar ástríða.
„Ég tek þessa ábyrgð mjög al-
varlega og hef alltaf gert það.
Ég held að manni farnist betur
í svona fræðsluhlutverki ef
maður hefur umburðarlyndi og
virðingu fyrir öðrum að leiðar-
ljósi. Við erum svo misjöfn,
öll svo ólík og það hentar svo
sannarlega ekki eitthvað eitt
öllum,“ segir Ebba.
Ebba segir útgangspunktinn
hjá sér vera að kynna alls
konar valkosti og miðla þekk-
ingu en hvetja svo fólk til að
hlusta á hjartað, eigið
hyggjuvit og líðan og velja úr
það sem því hentar. „Ég hef
sjálf oft verið hrædd um að
vera að gera allt vitlaust. Þá er
gott að geta fengið fræðslu en
ekki síst hvatningu og stuðning
til að hlusta á eigið hyggjuvit.“
Ebba segir mömmu sína og
Sollu Eiríks hafa kennt sér að
treysta innsæinu. „Þegar ég
hlusta á mína innri rödd þá
farnast mér best.”
Apríl 2012 - 1. tölublað - 1. árgangur
Ebba Guðný Guðmundsdóttir
LIFANDI markaður fagnar Grænum apríl með
ýmsum uppákomum og tilboðum í aprílmánuði.
Hápunktur mánaðarins verður grænt partý
fi mmtudaginn 26. apríl kl. 17-19. Afsláttur og
kynningar verða á völdum lífrænum og umhverfi s-
vænum vörum. Dúndurtilboð á Grænu þrumunni,
okkar vinsælasta drykk. Ráðgjafar okkar verða á
staðum og gefa ráð um grænan lífsstíl.
Verið velkomin að fagna með
okkur, njóta léttra grænna
veitinga og lifandi tónlistar.
Auglýst nánar síðar á
lifandimarkadur.is
9
Grænt partý hjá
LIFANDI markaði
8
10
1146
Níu næringargildi
Þorbjargar Hafsteins
Tímarit LIFANDI markaðar
+