Fréttatíminn - 30.03.2012, Blaðsíða 10
G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 R e y k j a v í k | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | S í m i 5 6 8 6 8 8 0 | w w w. h e y r n a r t æ k n i . i s
Bókaðu tíma í fría heyrnarmælingu í síma 568 6880
og fáðu Intiga til prufu í vikutíma
Intiga eru ofurnett heyrnartæki og hönnuð með það fyrir augum að gera aðlögun að notkun
heyrnartækja eins auðvelda og hægt er. Hljóðvinnslan er einstaklega mjúk og talmál verður
skýrara en þú hefur áður upplifað.
Með Intiga verður minna mál að heyra betur í öllum aðstæðum!
*Í flokki bak við eyra heyrnartækja
sem búa yfir þráðlausri tækni og hljóðstreymingu
Heyrnartækni kynnir ...
Minnstu heyrnartæki í heimi*
Þ að er mikil umhyggja sem liggur í hverjum mola,“ segir Þorgrímur Einar Guðbjartsson, bóndi á
Erpsstöðum í Dalasýslu, en skyrkon-
fekt þaðan, í spenalíki, fékk á dögunum
árleg vöruhönnunarverðlaun tímaritsins
Reykjavík Grapevine. Skyrkonfektið er
skilgetið afkvæmi „Stefnumóts hönn-
uða og bænda“ hjá Listaháskóla Íslands
með það að markmiði að örva bændur
til að skapa nýjar vörur í samstarfi við
hönnuði.
Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir vöru-
hönnuður þróaði verkefnið fyrir Listahá-
skólann ásamt Sigríði Sigurjónsdóttur,
prófessor í vöruhönnun,
og Brynhildi Páls-
dóttur vöruhönn-
uði í samvinnu
við bændurna á
Erpsstöðum, Þor-
grím Einar og konu
hans, Helgu Elín-
borgu Guðmunds-
dóttur. Skyrkonfektið
er hágæða sælgæti,
ljóst súkkulaði fyllt
heimalöguðu skyri frá
bænum.
Á Erpsstöðum er
rekið kúabú með um
60 mjólkurkúm, auk
geldneytis, alls um
200 gripum. Þar er
alhliða ferðaþjónustu-
býli og áhersla lögð
á menningartengda
ferðaþjónustu. Ferða-
menn kynnast ýmiss konar landbúnaði,
heimavinnslu á rjómaís, ostum og skyri.
Bragðtegundir íssins eru margar, meðal
annars hinn einstaki aðalbláberjaís.
Opið er fyrir almenning frá miðjum maí
og fram í september, eftir hádegi alla
daga. Þess utan er tekið á móti hópum
allan veturinn, árshátíðar- og skólahóp-
um, „og við opnum þegar bankað er á
dyrnar,“ segir Þorgrímur og bætir því
við að opið verði um páskana.
Þorgrímur er mjólkurfræðingur að
mennt og hefur unnið hjá MS í Búðar-
dal við framleiðslu á ostum og sýrðum
vörum. Hugmynd bændanna á Erpsstöð-
um byggist á því að framleiða skyr, osta
og ís á bænum og selja beint til neyt-
enda. Þar er móttaka og gestir búsins
geta fræðst um lifnaðarhætti í sveitinni.
„Það er að aukast meðal bænda að fara
út í framleiðslu sjálfir; ekki hröð þróun
kannski, en greinilegt er að aukin eftir-
spurn er eftir þessari vöru. Við erum
ekki að tala um stórframleiðslu, þetta
eru öðruvísi vörur en þær fjöldafram-
leiddu og viðbót á markaði.“
Vel hefur gengið með spenana, skyr-
konfektið. „Það er komið á markað en
aðeins til þeirra sem leitað hafa eftir því.
Við erum að koma spenunum fyrir í flug-
stöðinni, þetta er ekki síst fyrir útlend-
inga. Langflestir erlendir ferðamenn
sem hingað koma og sjá þennan spena
finnst æðislegt að geta keypt sér svo ein-
staka vöru, farið með hana heim og gefið
ættingjum og vinum – eða borðað sjálfir
í góðu tómi,“ segir Þorgrímur. Hægt er
að kaup staka skrautpakkaða konfekt-
spena eða sex saman í öskju, sem heillar
flesta útlendinga, að sögn Þorgríms.
„Þetta er augnayndi,“ bætir hann við.
Rjómaísinn, sem kallast kjaftæði,
ber nafn með rentu, er æði fyrir munn
og maga og aðallega seldur til þeirra
sem eru á ferðalagi og koma við á Erps-
stöðum, eða panta á netinu. Sama gildir
um ostinn. Grikki nefnist hann og er
hugsaður sem meðlæti með mat, salati
eða beint í gogginn. Varan hefur enn
fremur fengist í verslunum Nóatúns
og Samkaupa á Vesturlandi. Ónefnt er
heimagerða skyrið sem er vinsælt, ekki
síst óhrært upp á gamla mátann. Ís, skyr
og ostur frá Erpsstöðum hefur fengist
hjá Frú Laugu á Laugalæk í Reykjavík
og skyrið og osturinn einnig í Íslandi, ís-
búðinni í Suðurveri.
Erpsstaðir eru ein af landnámsjörðum
Auðar djúpúðgu sem nam land í Dölum
vestur. Þegar hún hafði komið sér fyrir
í Hvammi gaf hún nokkrum þrælum
frelsi og jarðnæði. Einum þeirra unni
hún mest, Erpi Meldunssyni. Hann
byggði bæ sinn undir hlíðum Sauðafells
og nefndi Erpsstaði. Búskapur hefur því
verið stundaður þar frá því um 880.
Sjá einnig grein um Stefnumót
hönnuða og bænda á síðu 34.
Skyrkonfekt Spenarnir fengu vöruhönnunarverðlaun
Umhyggja í hverjum mola
Sérhannaðir skyrkonfektmolar frá Erpsstöðum í Dalasýslu hafa slegið í gegn. Útlendingar eru sérstaklega hrifnir af
gómsætum molunum sem eru í líki spena. Ísinn frá ferðaþjónustubýlinu ber nafn með rentu enda sannkallað kjaftæði.
Þorgrímur Einar Guðbjartsson, bóndi á Erpsstöðum, ásamt hönnuðunum Guðfinnu Mjöll,
Brynhildi, Sigríði og Kristínu Birnu.
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
Skyrkonfekt í
líki spena er
fallega inn-
pakkað.
Tæpur helmingur drengja og rúmlega tveir þriðju hlutar stúlkna í
7. bekk í fyrra segjast aldrei spila tölvuleiki á netinu með fólki sem
þau þekkja ekki. 20% stráka og 2% stúlkna segjast oft gera það.
45%
Heimild: Skýrsla Rannsókna og greiningar ehf. um ungt fólk 2011
67%
Umsóknir um þrjár
skólameistarastöður
Umsóknir um stöður þriggja skólameistara fjöl-
brautaskóla liggja nú fyrir. Um skólameistarastöðu
Fjölbrautaskólans við Ármúla sækja sjö: Ágústa
Elín Ingþórsdóttir, Guðrún Ragnarsdóttir, Jóhannes
Ágústsson, Monika S. Baldursdóttir, Ólafur Hjörtur
Sigurjónsson, Steinn Jóhannsson og Svava Kristín
Þorkelsdóttir. Fimm sækja um stöðu skólameistara
Fjölbrautaskóla Suðurlands: Guðrún Ragnarsdóttir,
Gylfi Þorkelsson, Jóhannes Ágústsson, Olga Lísa
Garðarsdóttir og Þórunn Jóna Hauksdóttir. Þá
sækja þrír um stöðu skólameistara Fjölbrautaskóla
Suðurnesja: Anna Kristjana Eyfjörð Egilsdóttir, Jó-
hannes Ágústsson og Kristján Ásmundsson. Miðað
er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi
í stöðurnar til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi,
að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefnda. -jh
Húsleitir og hald lagt á vopn
Lögreglan á
höfuðborgar-
svæðinu og lög-
reglan á Suður-
nesjum handtóku
fyrir síðustu helgi
fjóra meðlimi
Hells Angels og
gerðu í kjölfarið
húsleit á samtals
sex stöðum í
báðum umdæm-
unum, að því er fram kemur á vef lögreglunnar. Lagt var hald á allnokkuð af
vopnum, meðal annars afsagaða haglabyssu, rafstuðbyssu, lásboga, loftbyssur
og hnífa. Lögreglan tók einnig í sína vörslu fíkniefni, eftirlýsta bifreið og talsvert
af munum sem grunur leikur á að séu þýfi, meðal annars bílvélar og loftpressu.
Við aðgerðirnar nutu lögregluliðin tvö aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra og
tollgæslunnar. -jh
10 fréttir Helgin 30. mars-1. apríl 2012