Fréttatíminn - 11.05.2012, Page 4
GRILL OG GARÐHÚSGÖGN SEM ENDAST
YFIR 40 GERÐIR
GRILLA Í BOÐI
LANDMANN
eru frábær grill
fyrir íslenskar
aðstæður
44.900
Opið til kl. 16 á laugardögum
12734
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
SuðveStlægur vindur og þungbúið
veStantil. Fremur milt.
HöFuðborgarSvæðið: AlskýjAð og súld
eðA smávægileg rigning.
Hlýr S-lægur vindur og rigning Sunnan- og
veStanlandS.
HöFuðborgarSvæðið: rigning og strekkings-
vindur, einkum frAmAn Af degi.
HvöSS na-átt með Slyddu og Síðar
Snjókomu um meSt allt norðan- og norð-
auStanvert landið.
HöFuðborgarSvæðið: kAlsArigning eðA
slyddA lengst Af dAgsins.
Hret á sunnudag
vorhretið sem búist er við á sunnudag og
fram á mánudag gætti flokkast með þeim
allra verstu. Það kemur til með að hlaða
niður snjó í hvassviðri, sérstaklega á fjall-
vegum á Vestfjörðum, en einkum og sér í lagi
norðan- og austanlands. áður en
veðrið tekur að versna að ráði
verður milt og með úrkomu.
Þannig gæti hiti farið yfir 10
stig austantil á laugardag.
kastinu er spáð fram á
mánudag og áframhald-
andi vorkuldum fram í
vikuna.
7
6 6
9
8 7
6 10 12
8
4
-1 1
3
5
einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Michelsen_255x50_B_0911.indd 1 28.09.11 15:10
Þ rír drengir sátu samtals 27 daga í fangelsi í síðasta mán-uði. Þeir eru 15, 16 og 17 ára
og heita Amin Naimi, Adam Aamer
og Bilal Fathi. Amin og Adam eru
nú vistaðir á Fit Hostel í Keflavík en
Bilal er á fósturheimili í Reykjavík
því hann er þeirra yngstur.
Drengirnir sátu fyrst í gæsluvarð-
haldi og afpánuðu jafnframt dóm
sinn í fangelsi á lögreglustöðinni í
Keflavík og Hegningarhúsinu við
Skólavörðustíg, Amin í 15 daga og
Adam og Bilal í 9 daga. Þeir eru þrír
af fimm börnum sem komið hafa
fylgdarlausir til landsins á árinu.
Þrjú komu í gegnum Keflavíkur-
flugvöll og tvö til Seyðisfjarðar.
Lögreglunni ber lögum samkvæmt
að tilkynna viðkomandi barna-
verndaryfirvöldum ef börn eru
handtekin. Lögreglan á Keflavík-
urflugvelli hafði ekki samband við
barnaverndaryfirvöld í Sandgerði í
einu tilvikanna af þremur, varðandi
Amin Naimi, og því gat barnavernd
ekki gripið inn í.
Amin sat í fangelsi í 15 daga án
afskipta og vitneskju barnaverndar.
Helga Vala Helgadóttir, lögmaður
og sérfræðingur um málefni hælis-
leitenda segir að samkvæmt saka-
málalögum sé óheimilt að setja
börn í gæsluvarðhald nema engin
önnur úrræði finnist. Adam og Bilal
sátu í 9 daga í fangelsi, þar af þrjá
daga í gæsluvarðhaldi. Samkvæmt
upplýsingum frá barnavernd Sand-
gerðis hefur barnavernd engar
heimildir til að taka börn úr haldi
lögreglu. Þó svo að barnavernd ósk-
aði eftir því að svo yrði gert, þyrfti
lögreglan ekki að mæta þeim ósk-
um. Barnavernd vill ekki tjá sig um
hvort slíkar óskir hefðu verið born-
ar fram þar sem hún geti ekki tjáð
sig um einstaka mál. Barnavernd
getur í raun ekkert aðhafst fyrr en
að föllnum dómi. Þá sé fyrst hægt
að koma börnunum á betri stað, að
sögn fulltrúi barnaverndar í Sand-
gerði. Lögreglustjórinn á Suður-
nesjum svaraði ekki fyrirspurn
Fréttatímans sem var svohljóðandi:
“Hvers vegna var ekki farið að ósk-
um barnaverndar í Sandgerði um að
Alsírdrengirnir svokölluðu, Adam
Aamer og Bilal Fathi skyldu settir
á fósturheimili í stað þess að vera
vistaðir í fangaklefa, bæði á meðan
gærsluvarðhaldi stóð og svo þegar
dómur var fallinn, á þeim forsend-
um að þeir væru 15 og 16 ára?”
Helga Vala segist einnig setja
spurningamerki við óskilorðs-
bundinn dóm þessara drengja.
Hér á landi eru fjölmörg dæmi um
skilorðsbundna dóma svona ungra
barna fyrir jafnvel mun alvarlegri
brot, líkamsárásir, fíkniefnainn-
flutning og jafnvel manndráp," seg-
ir hún.
Bragi Guðbrandsson forstjóri
Barnaverndarstofu segist ekki
þekkja nein dæmi þess á Norður-
löndunum að börn hafi fengið óskil-
orðsbundna dóma fyrir brot sem
þessi, sem þau hafi verið látin af-
plána í fangelsi. Barnaverndaryfir-
völd og fangelsisyfirvöld hafi ekki
fengið vitneskju um dóm og afplán-
un Amin Naimi né annarra barna
en Amin og Bilal, Alsírbúana tvo
sem greint hefur verið frá í fréttum
undanfarna daga.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
sagði frá því í fjölmiðlum á miðviku-
dag að grunur léki á um að dreng-
irnir væru eldri en þeir segðust
vera. Þegar þeir eru inntir eftir við-
brögðum við því segjast þeir vonast
til þess að rannsóknir lögreglunn-
ar geti sannað það fyrir yfirvöldum
að þeir hafi sagt satt til um aldur
sinn. Bragi Guðbrandsson segir
að hvorki barnaverndaryfirvöld né
heldur dómstólar hafi séð ástæðu
til að efast um aldur drengjanna og
furðar sig á ummælum lögreglu-
stjórans.
Fréttatíminn hitti þá fjóra flótta-
drengi sem dveljast á Fit og eru þeir
allir mjög ósáttir við að hafa verið
neyddir til að dveljast innan um full-
orðna flóttamenn og óttast þar um
öryggi sitt. Félagsmálayfirvöld í
Reykjanesbæ bera ábyrgð á þremur
drengjanna. María Gunnarsdóttir,
forstöðumaður barnaverndar, seg-
ir að sér hafi fyrst borist til eyrna
óánægja þeirra í gær. „Við munum
boða þá til okkar í næstu viku,“ seg-
ir hún.
Sjá nánar viðtöl á síðum 8 til 11.
Sigríður dögg auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Þrjú börn í fangelsi í
nær þrjátíu daga
Þrír drengir á aldrinum 15-17 ára sátu í fangelsi í nær þrjátíu daga samtals í síðasta mánuði þrátt
fyrir að slíkt sé óheimilt samkvæmt lögum. Barnaverndaryfirvöldum var ekki tilkynnt um hand-
töku eins drengjanna, sem sat í fangelsi í Keflavík og Hegningarhúsinu Skólavörðustíg í 15 daga
og getur ekki aðhafst í málefnum barna fyrr en dæmt hefur verið í málum þeirra.
Fjórir af fimm drengjum sem komið hafa fylgdarlausir til landsins á árinu eru vist-
aðir á Fit þar sem þeir óttast um öryggi sitt. Ljósmynd Hari
„Skiptinemar til sölu“
Skiptinemasamtök AFS á Íslandi þátt í
Fjölmenningadegi Reykjavíkurborgar
sem haldinn verður á laugardaginn, 12.
maí, í fjórða sinn. Þar ætla sjálfboðaliðar
og núverandi skiptinemar sem nú dvelja
hér standa fyrir „SÖLU Á SKIPTINEMUM“
á fjölþjóðlegum markaði. Í lok ágúst á
þessu ári er von á 26 nemum frá 16 þjóð-
löndum til landsins og vinnur Afs nú að
því að finna nemunum heimili. Að sögn
sólveigar ásu tryggvadóttur, starfsmanns
AFS, verða nemarnir ekki seldir í orðsins
fyllstu merkingu. Ekki megi líta á þetta
sem hefðbundin viðskipti, ætlunin sé öllu
heldur að vekja athygli á málstaðnum.
Þeir sem hýsi skiptinema hafi ávallt hag
af því að kynnast nýrri menningu og út
á það gangi „salan“. „Allt sem þarf til að
taka að sér skiptinema,“ segir Sólveig Ása,
„er hjartarými, löngun til að læra eitthvað
nýtt, kímnigáfu og sveigjanleika.“ Þeir sem
vilja kynna sér málin betur eru hvattir til
að mæta í ráðhús Reykjavíkur milli 13.30
og 17.
fundað um afnám
gjaldeyrishafta
Samtök atvinnulífsins efna til opins morg-
unfundar um afnám gjaldeyrishafta á Hilton
Reykjavík Nordica næstkomandi miðviku-
dag, 16. maí klukkan 8.30-10. Á fundinum
verður meðal annars rætt um nýja áætlun
samtakanna um afnám gjaldeyrishafta
en þau telja það brýnasta hagsmunamál
Íslendinga að höftin verði afnumin með
skjótum hætti þar sem þau valdi þjóðinni
sífellt meiri skaða. Áætlunin gerir ráð fyrir
að gjaldeyrishöftin falli niður í árslok og
ráðist verði í sérstakar mótvægisaðgerðir
til að takmarka tjón skuldsettra heimila af
hugsanlegu gengisfalli krónunnar. -jh
Brjóstabollur í boði
Landssamband bakara-
meistara stendur fyrir
sölu á brjóstabollum
í bakaríum um allt
land um helgina,
fram á mæðradaginn, sunnudaginn 13.
maí, til stuðnings við styrktarfélagið
Göngum saman. Félagið styrkir grunnrann-
sóknir á brjóstakrabbameini og úthlutar
styrkjum í október ár hvert, að því er fram
kemur á síðu Samtaka iðnaðarins. Það
var stofnað 2007 og hefur frá stofnun
veitt íslenskum rannsóknaraðilum á sviði
brjóstakrabbameins um 22 milljónir króna.
göngum saman efnir til vorgöngu fyrir alla
fjölskylduna víða um land á sunnudaginn
klukkan 11. Í Reykjavík verður gengið frá
Skautahöllinni í Laugardal. -jh
4 fréttir Helgin 11.-13. maí 2012