Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.05.2012, Qupperneq 10

Fréttatíminn - 11.05.2012, Qupperneq 10
G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 R e y k j a v í k | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | S í m i 5 6 8 6 8 8 0 | w w w. h e y r n a r t æ k n i . i s Njóttu þess að heyra betur með ósýnilegu heyrnartæki! Intigai eru fyrstu ósýnilegu heyrnartækin frá Oticon. Intigai eru sérsmíðuð og liggja svo djúpt í eyrnagöngunum að enginn mun sjá þau eða átta sig á því að þú sért með heyrnartæki. Intigai eru fullkomlega sjálfvirk og aðlaga sig að því hljóðumhverfi sem þú ert í hverju sinni. Bókaðu tíma í fría heyrnarmælingu í síma 568 6880 og fáðu heyrnartæki til prufu í vikutímaStærð á Intigai í samanburði við kaffibaunir A min Naimi er 17 ára og er frá Af-ganistan. „Ég veit ekki hvenær ég er fæddur. Það er ekkert mikilvægt í Afganistan.“ Hann hefur verið á Íslandi í mánuð en fór frá Afganistan fyrir rúmlega hálfu ári. Hann vill ekki ræða ástæðurnar fyrir því að hann flúði heimaland sitt. Amin flúði frá Afganistan til Grikklands og þaðan til Ítalíu og svo upp til Danmerkur og loks til Svíþjóðar. Hann kom til Íslands með flugi frá Svíþjóð og framvísaði fölsuðu vegabréfi. Fyrir vikið var hann handtekinn og látinn sitja í fangelsi í 15 daga. „Ég skil ekki fyrir hvað ég var settur í fangelsi. Drap ég einhvern hérna? Er ég glæpamaður?“ Hann sat í fangelsi í lögreglustöðinni á Suðurnesjum í 7 daga og í 8 daga í Reykja- vík. Þegar hann er spurður hvort hann hafi fengið einhverja hjálp svarar hann: „Þeir gáfu mér mat og ég fékk lögmann í rétt- inum. Lögmaðurinn útskýrði ekkert fyrir mér. Hann sagði bara að ég myndi þurfa að fara í fangelsi í 30 daga en ég þyrfti bara að vera í 15 af því að ég væri útlendingur. Ekkert meira. Ég hitti hann fyrst daginn fyrir réttarhöldin og talaði við hann í mjög stuttan tíma.“ „Ég hef ekki fengið neina aðstoð, það hefur enginn hjálpað mér með neitt. Þegar ég kom hingað var ég bara með fötin sem ég var í, þunna skyrtu og buxur. Enga peysu eða yfirhöfn, engin aukanærföt. Félagsmála- yfirvöld sögðu mér að kaupa mér föt í Rauða krossinum en þar voru til dæmis ekki til skór sem pössuðu á mig. Ég er í allt of litlum skóm en þegar ég sýndi félagsráðgjafanum mínum skóna sagði hún að þeir væru alveg nógu góðir fyrir mig.“ Amin lýsir því að fyrsta kvöldið á Fit Hos- tel villtist hann. „Ég rataði ekkert og ráfaði um götur Keflavíkur frá 11 um kvöldið til 4 um morguninn. Ég gat ekki spurt til vegar því ég tala enga ensku og enginn skildi mig. Svo rakst ég á tvo lögregluþjóna og bað þá að hjálpa mér á Fit Hostel en þeir hundsuðu mig og skildu mig eftir á miðri götu um miðja nótt. Mér var ískalt því ég var bara klæddur í þunna skyrtu því ég átti engin önnur föt. Hvert á ég að snúa mér til að kvarta undan lögreglunni?“ Hann segir að honum hafi verið talin trú um að hann ætti að fá að fara til íslenskrar fjölskyldu. „En svo hefur ekkert gerst. Ég veit ekki af hverju fjölskyldan kom ekki. Ég er ennþá barn og það eru reglur um svona hluti. Af hverju sögðuð þið að þið mynduð senda mig til fjölskyldu ef þið gerið það svo ekki?“ Amin segist ekki hafa fengið að hringja í fjölskyldu sína í Afganistan í heilan mánuð. Fyrst eftir að hann kom hafi hann fengið símakort sem hann hafi notað til að láta vita að hann væri heill á húfi og á Íslandi. „En mamma mín hefur ekki heyrt frá mér í mán- uð og ég fæ ekki annað símakort. Hvernig heldur þú að móður líði ef hún heyrir ekki frá barninu sínu í mánuð?“ Amin segist hræddur um öryggi sitt á Fit Hostel. „Ég get ekki þolað þetta lengur. Ég vil bara fá að vita hvað ég þarf að vera hérna lengi. Hvað á ég að bíða lengi? Ég veit ekkert. Ég held að ég sé með lögmann, ég fékk lögmann þegar ég sótti um hæli en svo veit ég ekki meir. Það var farið með okkur á Fit Hostel og svo gleymdumst við. Það eru drykkjumenn á Fit Hostel og ég er hræddur við þá. Þar er mikið um ofbeldi og menn stela hver frá öðrum. Við eigum ekki að vera vistaðir með fimmtugum drykkjumönnum. Ef þú ættir hund myndi hann búa við betri skilyrði en við. Það ætti að breyta nafninu á Fit Hostel í Guantanamo.“ A dam Aamer er 16 ára Alsírbúi og kom hingað 25. apríl frá Svíþjóð með millilendingu í Noregi. Við komuna til Keflavíkur voru Adam og 15 ára vinur hans hand- teknir fyrir að framvísa fölsuðu vega- bréfi. Þeir kynntust í Finnlandi þar sem þeir sóttu um hæli í mars síðast- liðnum. Hann segist hafa neyðst til að flýja Finnland því þeir félagarnir hafi lent upp á kant við marokkóska klíku sem hafi hótað þeim lífláti. Adam flúði Alsír í nóvember 2011 með því að gerast laumufarþegi í stóru flutningaskipi. Hann faldi sig undir flutningabíl sem keyrði um borð í skipið. Skipið sigldi til Ítalíu en þaðan fór Adam til Belgíu og svo til Svíþjóðar áður en hann fór til Finn- lands. Adam er móðurlaus og bjó með föður sínum úti í sveit. „Faðir minn drakk mikið. Ég fékk lítið að borða. Ég gagnrýndi hann oft fyrir að drekka, því Múslimar mega ekki drekka. Og sagði honum að kaupa mat frekar en áfengi en þá barði hann mig bara. Ég varð að fara burt.“ Þegar Adam og vinur hans lentu í Keflavík tóku lögregluþjónar á móti þeim og báðu þá um að sýna vegabréf- in sín. Þeir framvísuðu fölsuðum skil- ríkjum og voru því handteknir. „Það var farið með okkur á lögreglustöð- ina á flugvellinum þar sem fingraför voru tekin af okkur og þar óskuðum við eftir hæli. Þá vorum við fluttir á lögreglustöðina í Keflavík þar sem við vorum í fangelsi í níu daga. Fyrst vorum við í þrjá daga en þá vorum við leiddir fyrir dómstóla. Við fengum lögmann og túlk.“ Spurður um aðstoð lögmannsins segir Adam að hann hafi bara sagt honum að segja „Yes“ þegar Adam væri spurður að einhverju. „Ég vissi ekkert um hvað var að gerast í réttar- salnum en ég sagði „Yes“ þeg- ar ég var spurður að ein- hverju,“ segir hann. „Lögmaðurinn sagði mér að ég hafi fengið 30 daga fangelsis- dóm en að dómurinn hefði verið lækk- aður í 15 daga af því að ég er útlend- ingur.“ „Svo var farið með okkur aftur í fangelsið þar sem við vorum í sex daga í viðbót. Ég var mjög hræddur. Við vorum hafðir í sitthvorum klef- anum, vorum einir í klefa og gátum ekki talað við neinn. Eftir átta daga gátum við ekki meir og fórum að kalla á milli. Þegar lögreglan heyrði það var okkur leyft að vera saman í klefa. Eftir níu daga komu félagsmálayfir- völd og tóku vin minn og fóru með hann til íslenskrar fjölskyldu af því að hann er 15 ára. Það var farið með mig á Fit Hostel. Af hverju fékk ég ekki að fara til fjölskyldu? Hver er munurinn á því að vera 15 og 16 ára? Ég vildi að ég gæti fengið að vera með vini mínum og ég vildi óska að ég gæti fengið að vera hjá fjölskyldu. Ég kann ekki einu sinni að elda.“ Adam segist dreyma um að fá að ganga í skóla. „En fyrst verð ég að læra íslensku.“ Hann veit ekki hvað hann langar að verða þegar hann verður stór. „Ég veit ekki hvað mig langar að læra, ég er ekki búinn að ákveða það. Ég veit bara að mig langar að læra eitthvað.“ A lhawari Agukourchi er 16 ára og er frá Líbíu. Hann flúði stríðið í landinu í ágúst 2011, fór með litlum báti yfir til Ítalíu, leið sem þús- undir annarra flóttamanna hafa flúið og ótal margir látið lífið. „Ég vissi vel að það var lífshættulegt að fara með litlum báti yfir Miðjarðarhafið. Ég vissi hins vegar líka að ef ég yrði áfram í Líbíu biði mín ekkert nema dauðinn,“ segir Alhawari. Hann missti föður sinn í stríðinu. „Ég veit ekki hvernig hann lét lífið. Okkur var bara tilkynnt það einn daginn að hann væri dáinn. Mamma mín var heilbrigð fram að því en áfallið við dauða föður míns reyndist henni um megn. Hún varð aldrei söm.“ Alhawari var einbirni og þurfti að skilja móður sína eftir í Líbíu. „Ég fékk ekki einu sinni tækifæri til að segja henni að ég væri að fara burt.“ Alhawari þræddi sig upp Evrópu og dvaldist í Danmörku í mánuð en fór síðan til Sví- þjóðar þar sem hann var í hálft ár. Þar kynntist hann Azzadene og ákváðu þeir saman að freista gæfunnar á Íslandi. „Já, ég myndi vilja búa hér,“ segir hann aðspurður. „Mig langar mikið að fá að ganga í skóla og myndi vilja verða bifvélavirki, vinna við að gera við bíla. Ég get þó ekki hugsað mér að búa við þær aðstæður sem við búum við núna. Ég hélt að hér væru mannréttindi virt. Ég vildi óska að svo væri.“ Alahawari og Azzadene áttu að mæta til lög- reglunnar í Reykjavík fyrir fáeinum dögum og fara í skýrslutöku. Þeir neituðu að mæta. „Félagsráð- gjafinn okkar sagði okkur að við ættum að fara í rútuna og fara til Reykjavíkur og hitta lögregluna. Við vissum ekkert af hverju og fannst við ekki hafa neinn rétt. Við neituðum að fara. Við vorum eiginlega að mótmæla því að fá ekki að vita neitt. Við vissum ekkert um hvað málið snerist. Við vorum ekki spurðir um neitt. Þá hótaði félagsráðgjafinn okkur því að okkur yrði sparkað út af Fit Hostel ef við færum ekki og hittum lögregluna. Ég varð svo hræddur um að lenda á götunni að ég fór að gráta. Hvar ættum við þá að sofa? Okkur var samt ekki sparkað út sem betur fer.“ Alhawari Agukourchi Fór að gráta vegna ótta Adam Aamer Þráir að fá að ganga í skóla Amin Naimi Vistaðir með drykkjumönnum Ég hélt að hér væru mannrétt- indi virt. Ég vildi óska að svo væri. 10 fréttaskýring Helgin 11.-13. maí 2012
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.