Fréttatíminn - 11.05.2012, Síða 16
16 úttekt Helgin 11.-13. maí 2012
Herbergi fullt af
bavíönum
Margrét Tryggvadóttir vakti athygli í vikunni þegar hún líkti samstarfsfólki sínu
á Alþingi við bavíana. Slík ummæli eru ekki einsdæmi því íslensk stjórnmál eru
í eðli sínu átakastjórnmál; stóryrði eru hvergi spöruð á kostnað málefnalegrar
og hófstilltrar umræðu. Sigríður Dögg Auðunsdóttir rifjaði upp ummæli þing-
manna á hinu háa Alþingi sem lýsa ekki sérstaklega málefnalegri umræðu.
P ersónuníð, ómálefna-leg umræða og átaka-gaspur hefur færst í
aukana í stjórnmálaumræðu
á Íslandi síðastliðin 20 ár en
átakahefðina má rekja langt
aftur, líkt og fram kom í máli
sérfræðinga sem rætt var við
í úttekt Fréttatímans sem
birtist í síðustu viku. Eitt af
því sem einkennir umræðuna
er tilhneiging til að mála
hlutina með einföldum tákn-
um, að sögn Ólafs Þ. Harðar-
sonar stjórnmálaprófessors.
Ekki er rætt málefnalega um
leiðir heldur dregin upp sú
mynd að ýmist sé um himna-
ríki eða helvíti að ræða.
Vilhjálmur Árnason heim-
spekiprófessor sagði kapp-
ræðu og klækjaumræðu
Margrét Tryggvadóttir,
þingmaður Hreyfing-
unnar.
Vigdís Hauksdóttir,
þingmaður Fram-
sóknarflokksins.
Þór Saari, þingmaður
Hreyfingarinnar
Birgitta Jónsdóttir,
þingmaður Hreyfingar-
innar.
Unnur Brá Konráðs-
dóttir, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Árni Johnsen,
þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins.
Steingrímur J. Sigfús-
son formaður Vinstri-
grænna.
Davíð Oddsson, þá-
verandi formaður
Sjálfstæðisflokksins.
Ólafur Ragnar Gríms-
son, þáverandi for-
maður Alþýðubandal.
ríkjandi í stjórnmálamenn-
ingunni á Íslandi. „Í stað
þess að taka hinn mál-
efnalega punkt er farið
inn í huga eða bakgrunn
andstæðingsins og mál
hans rakið til einhverra
annarlegra áhrifa eða hags-
muna,“ sagði Vilhjálmur.
Hann bendir á að þessi
umræðuháttur klækjaum-
ræðunnar sé hvergi jafn-
ríkjandi og í stjórnmálum
og er líklega ein megin-
ástæða þess að stjórnmálin
eru rúin trausti. „Í samfé-
lagi þar sem æ fleiri svið
eru lögð undir mælikvarða
fagmennsku og skynsam-
legrar umfjöllunar, sitja
síkarpandi stjórnmálamenn
eftir eins og nátttröll.“
En Samfylkingin
er eins og gamall aftur-
haldskommatittsflokkur
og ætlar sér aldrei að
verða stór
og getur
þess vegna
ekki stutt
verðugt
verkefni
eins og
þetta.
Ég hlýt að líta svo á
og það skal þá standa
að Davíð Oddsson sé
slík gunga og drusla
að hann þori ekki
að koma hér og eiga
orðastað við mig.
Ég hélt satt að
segja ekki, og vona að
mér fyrirgefist að ég
segi það, að svona skít-
legt eðli væri inni í hæst-
virtum forsætisráðherra
[Davíð Oddssyni] en það
kom greinilega hér fram.
(Gripið fram í: Hvað sagði
ræðumaður?) Ég sagði:
svona skítlegt eðli.
Yfirgangur með
fullri aðild að Evrópusam-
bandinu mundi ekki vagga
Íslandi á eðlilegan hátt
inn í framtíðina, mundi
ekki vagga sjálfstæðri
íslenskri þjóð,
heldur gera
okkur að litlu
umsvifalandi
í ríki sem er
stjórnað af ris-
unum í Evrópu.
Það er ekki
gæfulegt, frú forseti,
að bóndinn á bænum
sé svo blindaður af
hatri á fyrri búráð-
endum að hann
sjáist ekki fyrir og
reyti matjurtirnar
upp með arfanum.
Og hingað
er ég komin [á
Alþingi], 10. þing-
maður Suðurlands
og mér líður eins
og ég sé um borð í
Titanic sem sé um
það bil að sökkva
og ég sé að hlusta
á fiðluleikarana
sem spiluðu fram í
rauðan dauðann.
Þetta var
endaslepp fram-
söguræða, sú snubb-
óttasta sem ég hef
heyrt í nokkru máli.
Ég hef það enda
á tilfinningunni að
formaður nefndar-
innar hafi alls enga
tilfinningu fyrir
þessu máli og engan
eldmóð, eins og þetta
er uppsett. Málið er
nefnilega komið alla
leið út í skurð.
„Það að formaður Sjálf-
stæðisflokksins, sjálfur
vafninga-Bjarni eins og hann er
almennt kallaður, skuli leyfa sér
að kasta rýrð á þingmenn vegna
þess að þeir styðja hér þingmál
er náttúrlega hneisa, en er
kannski ekkert óeðlilegt miðað
við það umhverfi sem hann kemur
úr og þá tugi ef ekki hundruð
milljarða sem hafa
tapast á aðkomu
hans og samkrulli
sem stjórnmála-
manns við viðskipta-
líf í landinu.
Frú forseti. Það
er með ólíkindum að
horfa upp á þá kúgun
sem hér á sér stað.