Fréttatíminn - 11.05.2012, Síða 47
Helgin 11.-13. maí 2012 heilsa 39
Njóttu lífsins með
heilbrigðum lífsstíl
KEA-skyr er frábær hollustuvara sem einungis er unnin úr náttúrulegum hráefnum.
KEA-skyr er einstaklega næringarríkt, það inniheldur hágæðaprótein og er fitulaust.
KEA-skyr er góður kostur fyrir alla þá sem hafa hollustuna í fyrirrúmi og vilja lifa á
heilsusamlegan hátt.
Fegurð - Hreysti - Hollusta Ný
bragðtegun
d.
Karamella!
–einfalt og ódýrt
VOLTAREN DOLO
50% AFSLÁTTUR
TILBOÐIÐ GILDIR ÚT MAÍ
Spönginni • Hólagarði • Skeifunni • Garðatorgi • Setbergi • Akureyri • www.apotekid.is
50%
AFSLÁT
TUR
inn (heilablæðing). Um 600 Íslend-
ingar fá heilablóðfall árlega.
Til þess að greina áhrif mismun-
andi próteina á hættuna á heilablóð-
falli skiptu rannsakendur fólki upp í
hópa eftir því hversu mikið rautt kjöt,
fisk, fuglakjöt og aðrar tegundir pró-
teina þau neyttu dag hvern.
Karlar sem neyttu meira en tveggja
skammta af rauðu kjöti af dag voru í
28 prósenta meiri hættu á að fá heila-
blóðfall miðað við þá sem neyttu rúm-
lega tveggja skammta af rauðu kjöti
á viku. Munurinn á konunum var 19
prósent.
Í ljós kom að lækka mátti áhættuna
á heilablóðfalli um 27 prósent með því
að skipta út einum skammti af fugla-
kjöti í staðinn fyrir einn skammt af
rauðu kjöti á dag. Með því að skipta
kjötinu út fyrir fisk eða hnetur lækk-
aði áhættan um 17 prósent og um 10
prósent ef kjötinu var skipt út fyrir
mjólkurvörur. -sda
Hægt er að minnka líkurnar á heilablóð-
falli með því að skipta út rauðu kjöti
fyrir fuglakjöt.
Súkkulaði er
ofurfæði
Mikið er rætt um svokallað ofurfæði
(super foods) um þessar mundir og
bætist sífellt við flóruna en nú geta
súkkulaðiunnendur glaðst því súkkulaði,
eða að minnsta kosti kakóið í súkku-
laðinu, telst til þessa heilsubætandi
vöruflokks. Gæta skal þess þó, að
súkkulaðið innihaldi að minnsta kosti
70 prósent kakó og sé lífrænt. Sé svo
getur súkkulaði í hófi minnkað líkurnar
á heilablóðfalli, ristilkrabbameini, bætt
andlega líðan, aukið heilastarfsemi og
síðast en ekki síst: Dregið úr einkennum
fyrirtíðarspennu. Njótið vel!
Granatepli auka
gredduna
Ný rannsókn sýnir að eitt glas af
granateplasafa er nóg til að keyra upp
kynlífið. Rannsóknin var framkvæmd af
Queen Margareth-háskólanum í Edinborg
í Skotlandi og voru þátttakendur 58 á
aldrinum 21 til 64 ára.
Þátttakendur drukku eitt glas af safanum
góða á dag í fjórtán daga og kom í ljós að
testósterónið jókst verulega við það eitt
að bergja á drykknum. Og það var ekki
bara kynlífslystin sem jókst við drykk-
ju granateplasafans; blóðþrýstingur
þátttakenda lækkaði og minnið batnaði.
Og það sem kom einnig í ljós var að eitt
granateplasafaglas á dag kom skapinu í
lag. -óhþ
Kanill allra meina bót
Þótt flestir eigi kanil í kryddhillunni
gerir fólk sér ef til vill ekki grein fyrir
þeim jákvæðu áhrifum sem kanill getur
haft á heilsuna. Kanill er mulinn börkur
algengs trés sem vex í Suður-Asíu og mið-
austurlöndum og er vel þekkt heilsujurt
í Indlandi. Kanill er talinn auka blóðflæði
og einnig auka virkni ýmissa annarra
jurtalyfja. Sérfræðingar í kínverskum
lækningum nota kanil til þess að bægja frá
kvefi og einnig gegn kvillum í nýrum. Kanill
hefur einnig verið notaður sem vörn gegn
vírusýkingum og bakteríusýkingum og
hann hefur lækkandi áhrif á blóðsykur.