Fréttatíminn - 14.09.2012, Síða 6
Lyfjaval.is • sími 577 1160
Bílaapótek Hæðasmára
Mjódd Álftamýri
15%
afsláttur
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
LAMPAÚRVAL
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Akureyri
Húsavík
Vestmannaeyjum
Ryco LCB-T5003 T5 lampi
13W með 1,8 m snúru 59 cm
2.590Ryco LDL-MD418A lampi m.grind 4x18W T8 62x60x8
cm án peru
7.990
Ryco LDL-MD236A
lampi m.grind 2x36w T8
122x30x7,5cm án peru
6.990
Ryco LCL-M1036 T8/G13
lampi 36W 122 cm
2.490m/peru
Ryco lampi án peru
hvítur spegill 2x36W
4.690
Ryco LCL-M2 T8 lampi
2x36W 113 cm IP30
7.990
Lækkun á yfirborði Tjarnarinnar getur skaðað lífríkið næst bökkunum nái þeir að þorna upp.
Umhverfismál lækkUn yfirborðs Tjarnarinnar
Slæm áhrif á lífríkið
Sigríður
Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
Yfirborð Tjarnarinnar í Reykjavík var
lækkað í nokkra daga í síðustu viku
vegna viðgerða við kant og göngustíg
meðfram Tjörninni. Lækkun yfirborðs-
ins getur haft slæm áhrif á lífríki Tjarn-
arinnar, að sögn Þórólfs Jónssonar, garð-
yrkjustjóra Reykjavíkurborgar, og skal
því einungis grípa til í neyðartilfellum.
Stjórnendur verksins lækkuðu yfir-
borðið án þess að hafa um það samráð
við þar til bæra aðila, að sögn Þórólfs,
en um leið og ábending barst var yfir-
borðið hækkað á ný. Lækkun á yfir-
borði Tjarnarinnar getur skaðað lífríkið
næst bökkunum nái þeir að þorna upp.
Að sögn Þórólfs gerðist það þó ekki í
síðustu viku því mikil úrkoma var, enda
hafi verið brugðist við um leið og hægt
var. „Þegar Harpan var í byggingu var
þetta gert í tvígang og í mun lengri
tíma. Það hafði slæmar afleiðingar fyrir
lífríkið, sérstaklega ungana sem nærast
á fæðu við bakkana. Við lærðum af því
og gerum þetta helst ekki aftur,“ segir
Þórólfur.
Á Tjörninni er yfirfall sem rennur í
gamla Lækinn sem nú er orðinn hluti af
fráveitukerfi borgarinnar. Með því að
lækka yfirfallið lækkar yfirborð Tjarnar-
innar.
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
Fyrsti Prius Plug-in afhentur
Toyota Prius Plug-in
var frumsýndur um
síðustu helgi og fyrsti
bíllinn hefur verið
afhentur kaupanda.
Prius Plug-in er eins
og venjulegur Prius
en auk þess má aka honum allt að 25 kílómetra á
rafmagni eingöngu. Bensínnotkun er því í lágmarki,
frá 2,1 lítra í blönduðum akstri. Um 90 mínútur tekur
að hlaða rafhlöðu bílsins og dugar hleðslan flestum
sem búa í þéttbýli í daglegum akstri. Þegar búið er að
aka á hleðslunni tekur venjuleg bensínvél við. Margrét
Emilsdóttir tók við bílnum hjá Toyota í Reykjanesbæ.
Með henni á myndinni eru Ævar Ingólfsson og Elías
Jóhannsson frá Toyota. Í tilkynningu umboðsins kemur
fram að fleiri Prius Plug-in verða afhentir á næstu
vikum. - jh
Gunnar predikar
í Austurbæ
Hósanna, hópur kristinna
karla og kvenna, stendur
fyrir ókeypis gospelhátíð í
Austurbæ á sunnudaginn,
kl. 20. Þar predikar Gunnar
Þorsteinsson, sem áður stýrði
Krossinum, á ný. Gospelhljóm-
svitin GIG flytur tónlist og
Jónína Benediktsdóttir vitnar.
Hlaðborð verður í Silfurtungl-
inu, veitingastað á efri hæðinni
í Austurbæ, að þakkargjörðinni
lokinni. Gospelhátíð verður
enn fremur í Austurbæ sunnu-
dagana 23. og 30. september
næstkomandi. - jh
b örn bæði á Suðurnesjum og höfuðborgar-svæðinu sem bjuggu við alvarlegan vanda fyrir kreppu standa, að mati
starfsmanna heilsugæslustöðva svæðanna,
verr í dag. Það er einnig mat starfsmanna
meirihluta heilsugæslustöðva á Suðurlandi og
Norðurlandi eystra um þeirra krakka.
Lýsingar starfsfólks heilsugæsl-
unnar á Suðurlandi eru sláandi. Skóla-
hjúkrunarfræðingar verði varir við að
líkamlegar kvartanir; svo sem höfuð-
verkur, magaverkur, verkjakvartanir og
erfiðleikar við að sofna, séu tíðari núna.
Tannheilsu hafi farið aftur. Nesti sé
ekki eins næringarríkt og áður og orðin
algeng sjón að börn komi með pakkan-
úðlusúpur fyrir hádegismat. Börnin séu
óhreinni og ekki eins vel hirt.
„Í ungbarnaverndinni tökum við
eftir því að inn á heimilin vantar ýmsan
nauðsynjabúnað fyrir ungbarnið, svo
sem vagna, bílstóla, þvottavélar og þess
háttar. Við tökum líka eftir að úrræða-
leysi og framtaksleysi foreldra í erfið-
leikum er meira en var og finnum við
fyrir uppgjöf á meðal þeirra. Við viljum
þó taka fram að hópur þeirra sem á
erfitt er orðinn miklu stærri og ekki er
einungis hægt að einblína á þau börn
sem áttu erfitt áður en hrun varð,“ segir
í svörum heilsugæslustarfsmanna við
fyrirspurn Velferðarvaktarinnar sem
sett var á fót 2009 af velferðarráðuneyt-
inu og skilaði ítarlegri skýrslum um
málið á dögunum.
Í niðurstöðunum segir að bið eftir úrræðum fyrir
börn sem eigi við vanda að stríða sé of löng.
Einkum aðgengi að geðheilbrigðis- og sál-
fræðiþjónustu. Ýmsir bentu á að eftirspurn
eftir þessari þjónustu hafi aukist meðan
framboð hafi minnkað sökum þess að
jafnmargir eða færri starfsmenn sinna
þjónustunni en áður. Einnig kom fram
að niðurskurður í skólum hafi bitnað
á börnum. Bekkir séu fjölmennari og
dregið hafi úr aðkeyptri sérfræðiþjón-
ustu.
Þá er staða barna af erlendum upp-
runa bág, að mati starfsfólks heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðisins. Undir það
taka starfsmenn barnaverndarnefnda
á höfuðborgarsvæðinu: „Mál þeirra og
fjölskyldna þeirra eru að mörgu leyti
erfiðari í vinnslu og úrræði sem ís-
lenskum börnum og fjölskyldum þeirra
bjóðast, nýtast oft ekki vegna tungu-
málaerfiðleika.“
Velferðarvaktin skipaði þrjá hópa til
að fara yfir vandann sem birtist í fyrri
skýrslunni 2011 og leggja til lausnir.
Hóparnir töldu vandann ekki hafa lagast
og sögðu skorta heildræna sýn fyrir
málefni barna og barnafjölskyldna í erf-
iðri stöðu. Auka mætti samvinnu milli
kerfa og samræma stuðning sem standi
til boða í skólum. Þá þyrfti að jafna að-
gengi að sál- og geðheilbrigðisþjónustu.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
velferð börn sem höfðU það slæmT hafa það nú verra
Börn sem höfðu það vont fyrir kreppu hafa það verra núna. Heilbrigðisstarfsfólk segir börnin
óhreinni en áður, tannheilsuna verri, framtaksleysi foreldra meira, öryggisbúnað vanti inn á heim-
ilin; líka þvottavélar. Börnin fái pakkanúðlur með sér í skólann. Vegna þessara niðurstaðna fyrir
ári gripu yfirvöld til þess að rýna betur í niðurstöðurnar. Sérfræðingar telja ástandið ekki breytt.
Börnin óhreinni, líður verr
og fá pakkanúðlur í mat
Hvernig fer barnið þitt í skólann? Sum fara óhrein og með núðlusúpupakka í hönd. (Myndin tengist ekki efni greinarinnar) Mynd/Hari
Vantar að sam-
ræma þjónustuna
Guðbjartur Hannesson vel-
ferðarráðherra segir brýnt
að fara í gegnum hvaða
þjónustu sveitarfélögin
bjóða upp á. Þjónustan sé
misjöfn og ríki og sveitar-
félög þurfi að vinna saman
að því að bæta hana þar
sem á hana skorti og
samræma. Spurður um
hundrað barna biðlistann
á BUGLi segir hann það
skipulagsverkefni innan
þjónustunnar. Hann bendir
á að barnabætur séu að
hækka, fæðingarorlof
einnig. Ríkisstjórnin hugi
að barnafólki til að bæta
stöðu þess.
6 fréttir Helgin 14.-16. september 2012