Fréttatíminn - 14.09.2012, Side 8
bbbb
P B B / F R T M
bbbb
P B B / F R T M
www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu
T ry l l ingsl eg
e n d a l o k
H u n g u r l e i k a n n a !
Hermiskaði , þriðja og síðasta
bókin í Hungurleikaþríleiknum
á
íslensku!
einnig Fáanleg
innBundin
M e T s ö l u B æ k u R
Hraðvirkt bólgueyðandi verkjalyf
ibuxin rapid
fæst án lyfseðils í apótekum
ibuprofen
Notkunarsvið: ibuxin rapid inniheldur ibuprofen sem er lyf sem dregur úr verkjum og hita (flokkur:
bólgueyðandi gigtarlyf sem ekki er steri). ibuxin rapid er notað við vægum til miðlungi miklum verkjum,
svo sem höfuðverk, tannverk, tíðaverk, bráðum mígrenihöfuðverk, hita og verkjum vegna kvefs. Ekki má
nota ibuxin rapid: Ef þú ert með ofnæmi fyrir ibuprofeni eða einhverju öðru innihaldsefni ibuxin rapid. Ef
þú hefur fundið fyrir mæði, astma, nefrennsli, þrota eða ofsakláða eftir notkun acetylsalicylsýru eða
annarra bólgueyðandi gigtarlya sem ekki eru sterar (NSAID). Ef þú ert með óútskýrða blóðmyndunar-
truflun. Ef þú ert með eða hefur haft endurtekin sár (ætisár) eða blæðingu í maga/skeifugörn. Ef þú hefur
fengið blæðingu eða rof í meltingarvegi við fyrri meðferð með bólgueyðandi gigtarlyum (NSAID). Ef þú
ert með blæðingu í heilaæðum eða aðra virka blæðingu. Ef þú ert með alvarlega skerðingu á lifrar- eða
nýrnastarfsemi. Á síðustu 3 mánuðum meðgöngu. Ef þú ert með kransæðasjúkdóm eða alvarlega
hjartabilun. Ef þú þjáist af verulegri ofþornun. Gæta skal sérstakrar varúðar við notkun ibuxin rapid:
Ef þú ert með arfgengan blóðmyndunarsjúkdóm (bráða porfýríu með hléum). Ef þú ert með ákveðna
sjálfsnæmissjúkdóma (rauða úlfa og blandaðan bandvefssjúkdóm). Ef þú ert með sjúkdóma í
meltingarfærum eða langvinna bólgusjúkdóma í þörmum (sáraristilbólgu, Crohn´s sjúkdóm). Ef þú ert
með skerta nýrna- eða lifrarstarfsemi. Ef þú þjáist af ofþornun. Ef þú ert með eða hefur haft háþrýsting eða
hjartabilun. Ef þú ert með ofnæmi (t.d. húðviðbrögð við öðrum lyum, astma, ofnæmiskvef ), langvarandi
þrota í slímhúðum eða langvarandi teppusjúkdóm í öndunarfærum. Ef þú ert með storkutruflun í blóði.
Strax eftir stórar skurðaðgerðir. Meðganga og brjóstagjöf: Þú mátt aðeins nota ibuxin rapid á fyrstu 6
mánuðum meðgöngu eftir að hafa ráðfært þig við lækninn. Ekki má nota ibuxin rapid síðustu 3 mánuði
meðgöngu. Yfirleitt er ekki nauðsynlegt að gera hlé á brjóstagjöf við skammtíma notkun í ráðlögðum
skömmtum. Algengustu aukaverkanir: Sár, rof eða blæðing í meltingarvegi, stundum lífshættuleg,
einkum hjá öldruðum, geta komið fram. Ógleði, uppköst, niðurgangur, vindgangur, hægðatregða,
meltingartruflanir, kviðverkur, sortusaur, blóðuppköst, sáramunnbólga, versnun ristilbólgu og Crohn´s
sjúkdóms hafa komið fram. Skammtastærðir: Fullorðnir og unglingar yfir 40 kg: 200 mg – 400 mg
skammtar, að hámarki 1.200 mg á sólarhring. Börn og unglingar: Hámarksskammtur af ibuprofeni á dag
er 30 mg á hvert kg líkamsþyngdar, skipt niður í 3 til 4 staka skammta. 20-29 kg: 200 mg skammtar, að
hámarki 600 mg á sólarhring. 30-39 kg: 200 mg skammtar, að hámarki 800 mg á sólarhring. Ekki skulu líða
minna en 6 klst. á milli skammta. ibuxin rapid skal aðeins nota hjá börnum sem eru a.m.k. 20 kg að
þyngd. Lesið vandlega leiðbeiningar í fylgiseðli sem fylgir lynu. Júlí 2012.
HÖFUÐVERKUR - TANNVERKUR - TÍÐAVERKUR - MÍGRENI - HITI
Ári eftir að Fréttatíminn upplýsti að Samkeppniseftir-
litið skoðaði hvort bankar, Íbúðalánasjóður og fast-
eignasalar hefðu með sér samantekin ráð um að stýra
fjölda íbúða inn á markaðinn til að halda verði þeirra
uppi er staðan óbreytt.
„Staðan á málinu er sú að við erum enn að afla
sjónarmiða á vettvangi fasteignasala. Í ljósi sumarleyfa
fengu menn nokkuð rúman frest,“ svarar Páll Gunnar
Pálsson, forstjóri eftirlitsins, fyrirspurn í tölvupósti.
Forstjórinn sagði í septemberlok í fyrra mjög mikil-
vægt við aðstæður sem þessar að stórir aðilar á mark-
aðnum, og þeir sem höndli með fasteignaviðskipti,
hafi ekki samráð sín á milli sem miði að því að stýra
framboði. Slíkt gæti klárlega verið alvarlegt brot á sam-
keppnislögum: „Það voru vísbendingar,“ sagði hann.
Sala fasteigna jókst um 40% í fyrra miðað við árið á
undan. Þrátt fyrir á landsmönnum hafi fjölgað um ríf-
lega fimmtíu þúsund frá 1994 seldust 220 færri eignir í
fyrra en þá eða 6.600 eignir. Salan gæti orðið dræmari
í ár en um 3.600 eignir hafa selst fyrstu átta mánuði
ársins.
Íbúðalánasjóður á tæplega tvö þúsund íbúðir. Búið
er í 800 þeirra. 270 íbúðir eru á byggingarstigi og 830
standa auðar. 250 eru í sölu og aðrar 250 á leið í sölu.
Sjóðurinn hefur selt um 400 íbúðir frá hruni. Í upp-
hafi árs áttu viðskiptabankarnir og þrír sparisjóðir
samtals 633 íbúðir og Drómi ríflega 200.
Fasteignir rannsókn á hugsanlegu alvarlegu samkeppnisbroti
Enn beðið svara frá fasteignasölum
n úna eru sjö konur hjá okkur í Kvenna-athvarfinu og sex börn,“ segir Sig-þrúður Guðmundsdóttir, fram-
kvæmdarstýra Kvennaathvarfsins,
en í vikunni hófst fjáröflunarátak
Kvennaathvarfsins en markmið-
ið er að komast í stærra hús-
næði. Átakið fer fram þannig
að í helstu verslunum liggja
frammi litlar tölur sem seldar
eru á þúsund krónur og renn-
ur allt andvirðið til söfnunar-
innar. Átakið stendur fram á
sunnudag í næstu viku.
Á hverju ári dvelja yfir
hundrað konur í athvarf-
inu ásamt börnum sínum.
Árlega koma að auki á þriðja
hundruð kvenna í ráðgjafar-
og stuðningsviðtöl og sam-
kvæmt upplýsingum Sigþrúð-
ar eru þá ótaldar þær konur sem
taka þátt í sjálfstyrkingarhópum
og hringja í neyðarsíma athvarfsins, 561 1205, en hann
er opinn allan sólarhringinn.
Týpískur starfsdagur í Kvennaathvarfinu er eril-
samur að sögn Hildar Guðmundsdóttur, vaktstýru í
Kvennaathvarfinu. „Að mörgu er að huga á stóru heim-
ili og mörg viðtöl yfirleitt á dagskrá. Á dæmigerðum
degi hringja nokkrar konur og það þarf að aðstoða þær
konur sem hér búa að komast í samband við lögfræð-
ing og þvíumlíkt,“ segir Hildur þegar hún er beðin um
að lýsa degi í athvarfinu. Kvöldin geta tekið á en það
þarf að koma öllum litlu englunum í háttinn og þegar
Hildur er beðin um að kíkja í dagbókina sína og segja
sögu eins slíks útskýrir hún:
„Síminn hringir, það er kona í þörf fyrir ráðgjöf.
Maðurinn hennar hafði lagt á hana hendur síðastliðna
nótt en þau eiga þrjú ung börn. Henni finnst erfitt að
hugsa um að brjóta upp heimilið með öllu sem
því fylgir,“ segir Hildur og umrætt kvöld
þegar allt heimilisfólk er sofnað hringir
lögreglan um hálf eitt og biður um
skjól fyrir konu með tvö börn. Þá
tekur við undirbúningur við
komu konunnar og barnanna
en engum er vísað frá en
starfsfólk athvarfsins neyðist
til að búa um litlu fjölskylduna
í stofunni en þar er svefnsófi.
Grípum aftur niður í dagbók
Hildar: „Fjölskyldan kemur
í fylgd lögreglunnar, konan
grætur mikið og er í miklu
ójafnvægi. Börnunum líður
greinilega illa, þau eru óörugg
og hrædd enda búin að heyra
og sjá atburði sem ekkert barn
á að þurfa að upplifa. Starfs-
kona reynir að hlúa að konunni
sem best hún getur til að hún geti
sinnt börnunum. Hitar handa henni
te og ræðir rólega við hana. Eftir tvo tíma er fjölskyld-
an komin í ból.“
Aðspurð um hvernig austurríska leiðin hafi gagnast
hér á landi, en í júní í fyrra voru þau lög samþykkt en
með þeim er hægt að láta fjarlægja ofbeldismanninn
á heimilinu í stað þess að konan þurfi að flýja með
börnin, segir Sigþrúður að framkvæmdin hafi valdið
vonbrigðum.
„Mér vitanlega hefur þessu úrræði tvisvar verið
beitt. Við erum ekki að nota það nógu vel,“ segir hún
og bætir því við að lokum að hún voni að Íslendingar
taki erindi Kvennaathvarfsins vel og kaupi tölu til
styrktar athvarfinu.
Mikael Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is
FjáröFlunarátak kvennaathvarF saFnar Fyrir stærra húsnæði
Yfir hundrað konur með
börn á ári í Kvennaathvarfi
Í dag eru sjö konur og sex börn í Kvennaathvarfinu. Illa hefur gengið, samkvæmt talsmönnum
athvarfsins, að nýta austurrísku leiðina svokölluðu en það er ný lög sem samþykkt voru í fyrra og
heimila lögreglu og dómstólum að fjarlægja ofbeldismanninn af heimilinu.
Frægir leggja fjáröflunarátaki
Kvennaathvarfsins lið.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
8 fréttir Helgin 14.-16. september 2012