Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.09.2012, Qupperneq 43

Fréttatíminn - 14.09.2012, Qupperneq 43
6 ÍSLENSKT GRÆNMETIHAUST 2012 Vissir þú ... að hvítkál geymist best í plastpoka í ísskáp ? ... að hvítkál er mjög ríkt af C-vítamíni ? ... að hægt er að hressa upp á kál sem orðið er slappt með því að leggja það í ísvatn í 30 mínútur ? ... að í hvítkáli eru mjög fáar hitaeiningar ? ... að ystu blöðin á hvítkálshausnum eru næringarríkust ? ... að áður fyrr var hvítkál notað til að spá fyrir um framtíðina með því að sjóða kálhaus og lesa úr kálblöðunum ? Hvítkálssalat með sinnepssósu Spergilkál kartöflur Kartaflan er upprunin í norður hluta Suður-Ameríku og hefur verið mikilvæg matjurt á þeim slóðum í þúsundir ára. Hún þótti það mikilvæg fæða hjá Inkum að hún var tekin í guða tölu. Kartaflan barst til Evrópu í kjölfar landafundanna á 16. öld og breiddist fljótt út um álfuna, þar sem hún varð ein mikilvægasta fæðutegundin. Áður en kartaflan barst til Evrópu var brauð og hnúðmeti af öðru tagi mikilvæg fæða. Enska heitið „potato“ er komið úr indíánamáli þar sem kartaflan kallast „batat“ eða „patat“ en það síðarnefnda er notað í mörgum tungumálum, bæði um kartöflur og sætar kartöflur. Kartaflan er næringarrík og fremur auðveld í ræktun við íslenskar aðstæður. Þó er hún nokkuð viðkvæm fyrir ýmsum sjúkdómum af völdum veira, baktería og sveppa. Einn slíkur sjúkdómur, kartöflumygla, olli algerum uppskerubresti á Írlandi á árunum eftir 1840, en á þeim tíma var kartaflan orðin undirstöðufæða fátækra smábænda þar í landi. Mikil hungursneyð varð í kjölfarið og þúsundir manna urðu hungrinu að bráð. Þúsundir fluttust vestur um haf til Ameríku. Margir vestuarfaranna settust að í ríkjunum Maine og Idaho, en þar stendur kartöflurækt í miklum blóma enn þann dag í dag. Kartafla myndar jarðstöngulhnýði. Hún tilheyrir náttskuggaætt (solanaceae) og er náskyld mörgum þekktum plöntum eins og eggaldini, tómötum, papriku, stjörnualdini (carambola) og tóbaki. Allar tegundir náttskuggaættar mynda eiturefnið sólanín, í mismiklum mæli þó. Í kartöflu er það í öllum grænum plöntuhlutum sem notið hafa birtu. Það eyðist ekki við suðu: fjarlægið því alla græna hluta kartaflna áður en þeirra er neytt. Þegar kartaflan barst til Evrópu var henni tekið með nokkurri tortryggni. Það var fyrst eftir að hún var almennt tekin í sátt í Englandi, Írlandi, Frakklandi og síðast en ekki síst í Þýskalandi, að kartaflan fór að vera mikilvæg matjurt á Norðurlöndum. Hún barst fyrst til Íslands á ofanverðri 18. öld. Séra Björn Halldórsson í Sauðlauksdal ræktaði hana fyrstur Íslendinga. NæriNgargildi Kartaflan er næringarrík, full af vítamínum og steinefnum. Í kartöflum eru fáar hitaeiningar, aðeins 88 (kcal) í 100 gr. Þar sem flestir borða kartöflur nánast daglega eru þær með mikilvægustu uppsprettum B- og C-vítamíns í fæðunni. Einnig eru kartöflur ríkar af járni, kalki, fosfór og trefjum. Í þeim er mikið mjölvi sem gerir þær mettandi þó þær séu ekki mjög hitaeiningaríkar. Æskilegt er að sjóða kartöflur með hýðinu, annars tapast mikið af næringarefnum út í suðuvatnið. Séu þær afhýddar fyrir suðu ber að nota eins lítið vatn við suðuna og kostur er og nota síðan vatnið í sósur eða til brauðgerðar til að nýta næringarefnin sem skolast hafa út. geymSla Kartöflur á að geyma við 4-6° C og mikinn raka en við slík skilyrði geymast þær í allt að 6 mánuði án þess að dragi úr gæðum. Mjög snemmsprottnar kartöflur geymast þó skemur. Góð loftræsting þarf að vera í kartöflugeymslu til að leiða burt koltvísýring sem myndast við öndun, þó má kaldur dragsúgur ekki leika um þær. Etýlen sem kartöflurnar mynda í geymslunni getur ýtt undir að þær spíri. Þær mega ekki vera í birtu, þá myndast í þeim sólanín og hnýðin verða græn. Af þessari ástæðu er best að geyma kartöflur í bréfpokum eða öðrum ógegnsæjum umbúðum. Ef kartöflur eru hafðar í pappírssekkjum minnkar einnig hættan á að raki setjist utan á hnýðin og valdi bakteríu eða sveppasjúkdómum. gæðamat Kartöflur eiga að vera þurrar, hreinar og þéttar í sér, lausar við áverka, sprungur og spírur auk þess sem þær mega ekki vera grænar. Kartöflum sem pakkað er í plastpoka eiga að vera jafnar að stærð og gæðum. Á veturna þarf að fylgjast vel með kartöflum sem geymdar hafa verið við lægri hita en 4° C en það ýtir undir niðurbrot mjölva þannig að bragðið versnar, þær verða of sætar. Fyrstu heimildir um ræktun spergilkáls við norðanvert Miðjarðarhaf eru í ritum ítalska náttúrufræðingsins og rithöfundarins Pliníusar, sem var uppi 23-79 f.Kr. Hann segir að Rómverjar hafi ræktað og neytt spergilkáls frá því á 1. öld fyrir Krist. Á tímum rómversku keisaranna var það vel metið og bændur nefndu það hina grænu fingur Júpíters. Frá Ítalíu dreifðist þekkingin um ræktun á spergilkáli til Hollands og þaðan til Englands á 17. öld. Ítalskir innflytjendur komu með spergilkálið til Bandaríkjanna og var það orðið nokkuð útbreytt árið 1920. Ítalir nefna spergilkálið brokkolí, en það er dregið af feiritöluorðinu broccolo, sem vísar til blómgunar kálsins. Spergilkál er ræktunarafbriði garðakáls og er náskylt blómkáli. Í grænmeti af krossblómaætt t.d. í spergilkáli, blómkáli, næpum, rófum og hvítkáli er mikið af efnasamböndum sem styðja við ónæmiskerfi líkamans. Eitt þessara efnasambanda er sulforaphane sem virkar örvandi á andoxunarefni, sem vinna gegn öldrun fruma og hefur jákvæð áhrif á ónæmiskerfi líkamans. NæriNgargildi Spergilkál er afar hollt grænmeti og vegna hollustunnar er það oft nefnt ofurkálið meðal grænmetistegunda. Neysla þess getur hjálpað til við að lækka kólesterólmagn í blóði. Spergilkál er ríkt af vítamínum og steinefnum. Eins og í blómkáli er stór hluti næringargildsins fólginn í stilknum og blöðunum. Spergilkál er trefjaríkt og járnríkt. Það er auðugt af A, B og C vítamíni. Í 100 g. eru aðeins 42 (kcal) hitaeiningar. geymSla Litur knúppanna má ekki vera mjög ójafn, en hann getur verið ólífugrænn yfir í fjólublátt, allt eftir því hvaða yrki er um að ræða og hvar það hefur verið ræktað. Blómvísarnir eiga að vera alveg lokaðir og hvorki með mislitum eða innföllnum dökkum blettum. Spergilkál geymist vel í grænmetisskúffunni í ísskápnum. Upplagt er að frysta soðið spergilkál. Bls. 6 Vissir þú Uppskriftir Í guðatölu hjá Inkum – kartaflan barst til Evrópu í kjölfar landafundanna. Spergilkál Viðtal við Bryndís Björk Reynisdóttur Bls. 7 Uppskriftir Kínakál Blómkál boðar gæfu í draumi 1/2 íslenskt hvítkálshöfuð, meðalstórt – nýtt og grænt 1 grænt epli 1 msk dijonsinnep 2 msk rauðvínsedik nýmalaður pipar salt 5 msk ólífuolía Hvítkálið skorið í fjórðunga, stilkurinn fjarlægður og kálið síðan skorið í þunnar ræmur. Eplið kjarnhreinsað og skorið í litla bita. Sinnep, edik, pipar og salt hrært saman í stórri skál og olíunni þeytt saman við smátt og smátt. Eplabitarnir settir út í og velt upp úr sósunni og síðan er kálið sett út í og blandað þar til það er þakið sósu. Salatið hentar vel með lamba- og svínasteik, fuglakjöti, villibráð o.fl. - NR kartaflan í guðatölu hjá inkum Hinir grænu fingur Júpíters Spergilkál er gott fyrir ónæmiskerfið 7ÍSLENSKT GRÆNMETIHAUST 2012 Kínakál var nánast óþekkt hér á landi þar til fyrir um 20 árum en er nú ein algengasta káltegundin á borðum landsmanna. kínakál blómkál Vissir þú ... að kínakál hentar vel til frystingar ef það er soðið í eina mínútu og sett strax í frysti þegar það hefur kólnað ? ... að kínakál er mildara á bragðið en aðrar káltegundir og hentar þess vegna einkar vel í salöt ? ... að nauðsynlegt er að pakka kínakáli í plast ef það hefur verið skorið niður til að varna vökvapapi ? ... að ræktun á kínakáli hófst á Íslandi árið 1975 ? ... að best er að skera ½ cm neðan af stilknum á kínakálinu og borða allt annað ? ... að kínakál er kallað pe-tsai á kínversku sem var þýtt kínakál á íslensku ? Kínakál er ættað frá Kína eins og nafnið gefur til kynna. Kínakál hefur verið ræktað í um 6.000 ár, en frá þeim tíma hafa fundist fræ af kínakáli. Heimildir herma að kínakál hafi verið algeng fæða í suðurhluta Kína á 5. öld. Kínakál er enn þann dag í dag talið ómissandi í flesta austurlenska rétti. Elstu rituðu heimildir um kínakál í Evrópu eru frá 1751, en talið er að það hafi borist mun fyrr með trúboðum sem komu frá Austurlöndum. Kínakál er mjög mikið notað í austurlenska rétti. Það náði þó ekki almennri hylli í Evrópu fyrr en eftir síðari heimsstyrjöldina. Kínakál var nánast óþekkt hér á landi þar til fyrir um 20 árum en er nú ein algengasta káltegundin á borðum landsmanna. Kínakál er afar mikilvæg matjurt í Austur-Asíu, meðal annars í Japan. Þar hafa verið gerðar miklar kynbætur á kínakáli sem meðal annars hafa gefið af sér yrki sem henta til ræktunar á norðlægum slóðum. Ræktun kínakáls hefur aukist jafnt og þétt hér á landi enda kunna landsmenn vel að meta það. Kínakál er mildara á bragðið og í því er minna af trefjum en í öðrum káltegundum. Það hentar vel í ýmsa hráa rétti eins og salat. Til eru margar gerðir af kínakáli sem eru mismunandi að lit og lögun. Þyngd hausanna er einnig breytileg en oftast 0,5 – 1,5 kg. næringargildi Kínakál er næringarríkt og ódýr uppspretta fyrir A og C vítamín ásamt steinefnum. Eins og gildir um káltegundir almennt þá eru það ystu blöðin sem eru hvað næringarríkust. Í grænu blöðunum er bæði meira af steinefnum og vítamínum en í þeim ljósari. Þar sem kínakál er ekki eins trefjaríkt og annað kál er það betur hæft til að nota hrátt. Við suðu tapast ætíð nokkuð af vítamínum og steinefnum. Kínakál er hitaeiningasnautt, aðeins 18 hitaeiningar (kcal) í 100 g. geymsla Kínakál geymist fremur vel við 0-2°C, en er þó afar næmt fyrir áhrifum etýlens. Mikilvægt er að geyma það ekki nálægt vöru sem myndar mikið etylen eins og eplum, tómötum og perum. Gott er að geyma kínakálið í plasti til að halda í því raka. Boðar gæfu í draumi Blómkál er af krossblómaætt (brassicaceae) og er upprunnið í Asíu. Það var ræktað á Ítalíu og í Tyrklandi allt frá því 600 f.Kr og var frá upphafi afar mikilvæg grænmetistegund. Það barst snemma til Litlu-Asíu og Grikklands, þar sem það hefur verið þekkt í um 2000 ár. Blómkál barst þó ekki til annarra landa fyrr en á 16. öld þegar Frakkar tóku að rækta það og þar naut það mikilla vinsælda. Frá Frakklandi barst blómkál áfram um alla Evrópu. Á 17. öld var ræktun þess útbreidd í Evrópu en það er ekki fyrr en á síðustu öld sem ræktun hefst hér á landi. Latneskt heiti blómkálsins þýðir kálblóm eða blómstrandi kál sem er tilkomið vegna þess að höfuðið er í raun blómskipun umkringd af grænum blöðum. Flestar káltegundir eru tvíærar og blómstra því ekki fyrr en á seinna ári, en blómkál myndar hins vegar höfuð strax á fyrsta ári. Blómkálshöfuðið er afar fallegt grænmeti. Það þykir minna á fallegan brúðarvönd og að sögn fylgir því mikil gæfa að dreyma blómkál. Nota má blómkál ósoðið í flesta salatrétti. Höfuðið má sjóða í heilu lagi eða brjóta það í blómvendi áður en það er soðið. Vatnið á að sjóða áður en blómkálið er sett í pottinn og á að sjóða í 10 til 20 mínútur. Lengd suðutímans er nokkuð háð smekk. Ofnbakað blómkál með niðurskorinni papriku, skinku og ostasósu er ódýr aðalréttur sem fljótlegt er að útbúa og hentar við ýmis tækifæri. Blómkál er einnig gott í súpu. næringargildi Í blómkáli er mikið af vítamínum og steinefnum. Það er ríkt af A, B og C vítamíni og járni. Í 100 g. eru aðeins 30 hitaeiningar (kcal). Blómkál er eins og annað kál mjög trefjaríkt.Þær eru ómeltanlegur eða að hluta til ómeltanlegur hluti plantna og má finna í öllu grænmeti. Trefjaneysla landsmanna hefur eins og annarra vestrænna þjóða verið langt undir ráðleggingum næringarfræðinga. Neysla á grænmeti er mjög mikilvæg til að bæta meltinguna. geymsla Blómkál geymist afar vel ef skilyrði í geymslunni eru góð. Rakinn þarf að vera mikill og hitinn lágur 0 – 2 gráður. Blómkál ætti alls ekki að geyma nálægt öðru grænmeti eða ávöxtum sem mynda etýlen t.d. eplum, tómötum og perum. Það má frysta blómkál, en áður er það skorið í vendi og snöggsoðið. Einnig ætti að nota hrein græn blöðin sem umlykja höfuðið en þau þarf einnig að snöggsjóða fyrir frystingu. Frá kína til íslands með viðkomu í Japan Það þykir minna á fallegan brúðarvönd og að sögn fylgir því mikil gæfa að dreyma blómkál. Ofnbakaður sumarréttur með rófum og eplum 3 stórar rófur, skrældar, skornar þversum og síðan í ½ cm þykkar sneiðar 3 græn epli sama aðferð og með rófurnar 2 laukar sama aðferð Smá olía ásamt sítrónusafa, eplasafa og rifnum engifer ½ tsk kanill, gróft salt ½ msk tamari sósa (soyasósa) Þegar búið er að skera grænmetið og eplin er því raðað í eldfast mót og smá olíu og salti stráð yfir. Bakað í ofni við 200°C í 30-40 mín. Blanda saman olíu, eplasafa, tamarisósu, kanil og salti og strá yfir þegar rétturinn er tilbúinn til að bera hann fram og skreyta með söxuðum kóríander. - HM
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.