Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.09.2012, Qupperneq 46

Fréttatíminn - 14.09.2012, Qupperneq 46
Fjársjóðurinn mikli B Barnabörn eru dásamleg fyrirbrigði, ljúf og góð við ömmu og afa og sækjast, sem betur fer, eftir vist hjá okkur enda dekrum við talsvert við þau, einkum amman. Hún er uppáhalds – og afinn nýtur góðs af. Áttunda barnabarn okkar hjóna bættist í hópinn í vikubyrjun, fallegur drengur, yndi okkar eins og öll hin. Það er mikill fjársjóður sem við höfum eignast á tæplega áratug, frá því í janúar 2003 er við fengum heiðursnafnbótina amma og afi. Aðrir titlar komast ekki í hálfkvisti við þær nafngiftir og hlutverkið sem fylgir. Þessi fríði hópur, börn okkar, tengdabörn og barnabörn mynda stórfjölskyldu okkar, með lang- ömmu, langöfum og systkinum – það fólk sem næst okkur stendur og skiptir okkur mestu. Ömmu og afa leyfist því, þegar nýtt barnabarn bætist í hópinn, að staldra við og gleðjast yfir því undri sem hvert barn er og líta um leið fram á veg. Ábyrgðin er auðvitað foreldranna en amma og afi eru á kantinum, veita stuðning og aðstoð eftir getu. Það vita foreldrarnir. Því gegna amma og afi mikil- vægu hlutverki og fá ríkulega umbunað fyrir fram- lag sitt með ljúfu viðmóti upprennandi kynslóðar. Hvert barn er sérstakt og dásamlegt er að líta það augum í fyrsta sinn, sjá hverjum það líkist, föður, móður eða eldri systkinum. Sem betur fer eru þau sjálfum sér lík og persónuleikann eiga þau ein. Hverju barni kynnumst við og lærum á er tímar líða – og þau læra með sama hætti á okkur. Þegar barna- börnin koma í heimsókn, eftir að þau eru aðeins komin á legg, ganga þau að hlutunum vísum heima hjá okkur. Þau vita hvar mynddiskana með barnaefn- inu er að finna, hvar bílarnir og dúkkurnar eru, lita- bækurnar, litirnir, púslin, samstæðuspilin og allt það dót sem geymt er fyrir litlar manneskjur. Skoppa og Skrítla lifna við á skjánum, Bubbi byggir og byggir og bílarnir í kvikmyndinni Cars, Bílar, þjóta áfram. Og vegna þess að Disney gamli, þótt löngu dauður sé, Legó og fleiri í þessum bransa, kunna sitt mark- aðsfag vitum við að kaupa ber í afmælis- og jólagjafir dráttarbílinn Krók og sportbílinn Leiftur McQueen, að ógleymdum þeim kumpánum í brúðugervi, Bósa og Vidda, úr kvikmyndinni Toy Story, Leikfanga- sögu. Gott ef ekki eru komnar þrjár myndir í þeirri seríu og tvær um baráttu bílanna. Ungviðið veit líka hvar barnabækurnar er að finna þegar komið er til lengri dvalar hjá afa og ömmu. Þess vegna las amman um Öskubusku klukkan að ganga þrjú um nótt þegar þriggja ára stúfur kom í vistina, rétt áður en hann tók á sig þá ábyrgð að verða stóri bróðir. Hann fékk líka að heyra um ævintýri Bangsimons og Eyrnaslapa vegna þess að það getur tekið tíma að sofna aftur ef maður er vakinn um miðja nótt þegar mikið stendur til. Það er leyfilegt að vera lítill, jafnvel þótt maður sé stóri bróðir. Barnabörnin vita líka, þau sem komin eru til vits og ára, að amma geymir apa- ís í kassa neðst í hillu frystiskápshurð- arinnar, við hlið kæliskápsins. Þau laumast stundum í þessa íspinna. Það er ekki víst að það kæti foreldrana sérstaklega, sem kjósa kannski að eitthvað hollara fari í litla kroppa, en svo verður að vera. Ömmum, og jafnvel öfum, leyfist að láta það eftir börnunum sem foreldr- arnir gera ekki – á meðan það er í hófi. Amman tekur því líka með jafnaðargeði þótt borð, skápar og speglar verði kámug af ísfingrum og bráðnu súkkulaði og þótt reynt sé að passa spari- húsgögnin í stofunni er hugsanlegt að sömu kámfingur nái þangað líka. Og af því að amman er með snert af áhættufíkn er hugsanlegt að hún setji endrum og eins græna, gula eða rauða frostpinna í íshilluna neðst í fyrrgreindum skáp. Þeir bráðna og bragðast vel í litlum munnum en lita meira en apaísinn. Það er ekki víst að frostpinninn, hvort heldur er eiturgrænn, sólgulur eða berjarauð- ur lendi allur ofan í maga. Sumt fer á hendurnar, annað út á kinnar og hluti beint á gólfið. Klístraðir litir regnbogans verða því stundum eftir í gardínum eða á húsgögnum. Það er enn og aftur á ábyrgð ömmu, og jafnvel afa, sem verða þá að finna til hreinsiefnabrúsann og stufkústinn. Endi meirihluti græns frostpinna í fötum barnanna líta amma og afi hins vegar framhjá slíkum listaverkum og treysta því að þvottavélar foreldranna ráði við vandann. Það er gefandi að fá að fylgjast með uppvexti barnabarna og taka þátt í lífi þeirra. Staðan er önnur en þegar við eignuðumst okkar börn. Við tókumst á við það verk- efni eins og það kom fyrir á þeim tíma – móðir barnanna raunar fremur en faðirinn að þeirra tíma sið. Það hefur sem betur fer breyst. Feður koma mun meira að umönnun og uppeldi barnanna en þá var. Ábyrgð og önnum er betur dreift milli foreldranna. Að því leyti hefur heimurinn batnað. Jafnvel afinn hefur lært og hefur stöku sinnum verið treyst fyrir ung- barni – það er að segja einum og án aðstoðar ömmunnar – með bleiu- pakka og pela. Það hefur gengið bærilega, þótt hinn sami afi segir sjálfur frá. Batnandi manni er besta að lifa. Hinir seinþroska þroskast líka. Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL Te ik ni ng /H ar i Deildarstjóri vísitöludeildar Vísitöludeild reiknar ýmsar verðvísitölur eins og vísitölu neysluverðs, byggingarvísitölu og vísitölu framleiðsluverðs. Þá er í deildinni unnið að alþjóðlegum verðsamanburði, landbúnaðartölfræði og rannsókn á útgjöldum heimila. Deildarstjóri er í faglegu forsvari fyrir verkefni deildarinnar, ber ábyrgð á þeim og skipuleggur þau. Í því felst meðal annars að sjá um alþjóðleg samskipti og önnur samskipti, svo sem við hagsmunaaðila. Þá skipuleggur hann rannsóknarverkefni deildarinnar. Umsóknarfrestur er til og með 17. september 2012 Hæfniskröfur 3 Háskólapróf í hagfræði, viðskiptafræði, stærðfræði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi. 3 Þekking á vísitölufræðum. 3 Stjórnunarfærni. 3 Góð almenn tölvuþekking; þekking á gagnagrunns ­ vinnslu (SQL) er kostur. 3 Reynsla af tölfræðilegri vinnslu. 3 Nákvæmni og skipulögð vinnubrögð. 3 Reynsla af alþjóðlegum samskiptum er kostur. 3 Góð málakunnátta, a.m.k. í ensku. 3 Samskipta­ og skipulagsfærni, þolinmæði og álagsþol. Hagstofa Íslands óskar eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman starfsmann Hagstofa Íslands er sjálfstæð stofnun sem gegnir forystu hlutverki á sínu sviði. Hún samhæfir opinbera hagskýrslugerð á Íslandi og er virkur þátt takandi í alþjóðlegu samstarfi. Hagstofan sinnir rannsóknum og safnar, vinnur og miðlar áreiðan­ legum hagtölum sem lýsa samfélaginu. Stofnun in stuðlar að upplýstri umræðu og faglegum ákvörðunum með því að tryggja öllum sama aðgang að upplýsingum. Um er að ræða fullt starf og er æskilegt að þeir sem ráðnir verða geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjara­ samningi fjármálaráðuneytis og hlutað eigandi stéttar félags. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Póstáritun Hagstofa Íslands, starfsumsókn, Borgartúni 21a, 150 Reykjavík Netfang starfsumsokn@hagstofa.is Upplýsingar Ólafur Arnar Þórðarson [olafur.thordarson@hagstofa.is] Hagstofa Íslands · Borgartúni 21a · 150 Reykjavík Sími: 528 1000 · Bréfasími: 528 1099 · Vefur: www.hagstofa.is EVRÓPSKA HAGSKÝRSLU- SAMSTARFIÐ Atvinnuauglýsing í Fréttatímann frá Hagstofu Íslands Birting: Föstudagur 14. september 2012 Tengiliður: Brynjólfur Ólason (símar: 528-1105 / 867-1857) Stærð: 255mm x 200mm 38 viðhorf Helgin 14.-16. september 2012
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.