Fréttatíminn - 14.09.2012, Page 56
Helgin 14.-16. september 201248 tíska
Karlmannsklæðnaður er
ekki aðeins fyrir karlmenn
Ég er ein af þeim sem er frekar frjálsleg þegar kemur
að fatakaupum og hef ég tekið eftir því að ég hef
mikla tilhneigingu til að kaupa mér föt sem ætluð
eru karlmönnum. Þetta finnst mér alls ekki slæmur
hlutur, heldur er þetta mjög hentugt fyrir stelpur
eins og mig sem finnst fátt betra en víðar og þægi-
legar flíkur. Ég hef þó oftar en ekki verið spurð af
starfsfólki hvort ég sé að kaupa handa kærastanum
en ég er alveg ófeimin við að segja þeim að ég ætli að
klæðast fötunum sjálf.
Mín uppáhaldsbúð er Urban Outfitters en þar get
ég tapað mér bæði í stelpu- og strákadeildinni. Ég
fór með pabba mínum til New York fyrr á árinu og
kynnti hann fyrir þessari búð og er síðan búin að
sjá eftir því að hafa ekki keypt sömu flíkur og hann.
Það er þó alltaf gott að eiga pabba sem vill lána
manni fötin sín! Topman er einnig mjög ofarlega á
strákabúðalistanum mínum og finn ég mér oft skart-
gripi þar ætlaða karlmönnum. Einnig er mikið um
aukahluti svo sem húfur, trefla, belti og jafnvel skó í
þessum búðum sem mér þykja gríðarlega fallegir og
ég gæti hugsað mér að ganga í.
Í vetur munu þykkar peysur, mynstraðir bolir og
skyrtur, og fallegar yfirhafnir koma sterkar inn og
hvet ég allar stelpur til að koma við í karladeildinni
næst þegar þær versla og athuga hvort þær finni ekki
eitthvað við sitt hæfi!
Gestapistla-
höfundur
vikunnar er
Ingileif
Friðriksdóttir
tískubloggari á babilja.
blogspot.com
Elskar að koma
fólki á óvart
Hinni nýju tískubiblíu fyrrum
Vogue ritstýrunnar, Carine
Roitfeld, hefur loksins verið
dreift til sölu eftir margra
mánuða bið. Glamúr-
fyrirsætan Kate Upton prýðir
forsíðuna, mörgum til mikilla
undrunar. „Það bjóst enginn
við að sjá forsíðu eins og
þessa á nýja tímaritinu mínu.
Ég elska að koma fólki á
óvart og þess vegna valdi
ég fyrirsætu eins og Kate.
Hún er ekki þessi dæmigerða
hátískufyrirsæta sem allir
voru að búast við,“ segir
Carine í viðtali við The Daily
Beast á dögunum.
MTV endurgerir vinsælan tískuþátt
Vinsæli tískuþátturinn House of Style, sem sjónvarpstöðin MTV
sjónvarpaði á árunum 1989 - 2000, mun hefjast á nýjan leik þann 9.
október næstkomandi. Fyrirsæturnar og vinkonurnar Karlie Kloss
og Joan Smalls munu leiða áhorfendur inn í heim tískunnar og feta
þá í fótspor fyrirsætna á borð við Cindy Crawford, Rebecca Romijn
og Mollie Sims. Þættirnir verða sýndir tvisvar í viku á sjónvarpstöð-
inni og munu þær grennslast fyrir um nýjustu tísku, taka viðtöl við
hátískuhönnuði og annað áberandi fólk innan tískuheimsins.
Nýtt tískutímarit frá Dior
Franska hátískufyrirtækið Dior setti í sölu sitt fyrsta prentaða
tískutímarit þann 10. september síðastliðinn, 110 blaðsíður
af tískutengdu efni. Tímaritið vinna starfsmenn vefsíðunnar
Diormag.com sem lengi
hefur verið
einn vinsælasti
tískuvefurinn og
hefur blaðið nú
verið gefið út á
sjö mismunandi
tungumálum.
Franska leikkonan
Marion Cotil-
lard er forsíðu-
fyrirsæta fyrsta
tölublaðsins og
klæðist hún klass-
ískri hönnun frá
Dior sem hönnuð
var árið 1947.
Stígur upp úr hverSdagSleikanum í SparidreSSið með Sömu flíkinni
Buxurnar sem
passa við allt
Hversdagsdressið
Vintage –
frá London
Vivienne Westwood
Vintage – frá London
CTZ
Sparidressið
Underground
Vivienne
Westwood
Vivienne Westwood
Hermannabuxurnar frá hátískuhönnuðinum Vivienne Westwood hafa komið að góðum notum hjá Sindra
Snæ Einarssyni, 21 árs, sem leikur sér að lífinu þessa stundina. Buxurnar keypti hann í London í janúar
síðastliðnum og hafa þær gegnt þýðingarmiklu hlutverki, bæði hversdags og einnig þegar hann puntar sig
upp í sparidressið. „Mér finnst þessar buxur ganga við allt, sem er mjög þægilegt. Þær eru allra handa. Þetta
army-þema er líka í miklu uppáhaldi hjá mér þessa stundina og finnst mér litirnir, sniðið og efnið koma vel
saman. Ég elska hvernig ég get breytt þeim, aðeins með því að skipta um „átfitt“, sem nær að draga þær
fram á ólíkan hátt. Ég hef mjög fjölbreyttan fatastíl, sem er ótrúlega margbreytilegur og það kemur sér vel að
eiga flík sem ég get notað við allt. Sama fyrir hvaða stíl ég fæ æði fyrir, þá eru þær alltaf í uppáhaldi.“
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
á Facebook
Full búð
af flottum
fötum,
fyrir flottar konur.
Stærðir 40 – 60