Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.09.2012, Page 60

Fréttatíminn - 14.09.2012, Page 60
Helgin 14.-16. september 201252 tíska Fatastíllinn breytist eftir skapi A R G H !!! 0 10 91 2 #4 Rekkjan ehf ≤≥ Ármúla 44 ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16 CORSICA King Size rúm (193x203 cm ) FULLT VERÐ 3 40.200 kr. ÚTSÖLUVERÐ 170.100 kr. BALFOUR King Size (193x203 cm) FULLT VERÐ 321.000 kr. ÚTSÖLUVERÐ 160.500 kr. QUIET DAWN DUAL Queen Size (153x203 cm ) FULLT VERÐ 340.458 kr . ÚTSÖLUVERÐ 207.679 kr. ALLURE King Size rúm (193x203 cm) FULLT VERÐ 264.200 kr . ÚTSÖLUVERÐ 132.100 kr. 50% AFSLÁTTUR 50% AFSLÁTTUR 50% AFSLÁTTUR H E I L S U R Ú M AFSLÁTTUR! ÚTSALA REKKJUNNAR 30-70% BIG SALE! SKIPTI- OG SÝNINGARRÚM Á TILBOÐI! 39% AFSLÁTTUR á Quiet Dawn dual rúmdýnu sem hentar fólki sem þarf mismunandi stífleika. Dýnan er millistíf öðru megin og stíf hinum megin. SÉRSTAKT TILBOÐ SÍÐUSTU DAG R! Hvert sækir þú helst innblástur í tísku? Innblástur minn í tísku sæki ég helst á netið, á síður eins og weheartit.com, tumblr.com, stum- bleupon.com og Facebook. Ég fæ innblástur við að skoða fólk úti á götu og umhverfið mitt, yfir höf- uð. Sjálfstæðar hugmyndir fæðast í kollinum á mér og svo melti ég þær ómeðvitað og sameina margar hugmyndir í eina. Á netinu er mað- ur ekki bara að skoða fólk og föt heldur einnig ýmislegt annað eins og landslagsmyndir og innanhús- hönnun þar sem ákveðið andrúms- loft er í gangi og maður skapar sér hugmynd að nýjum karakter. Ákveðin atriði í umhverfi mínu eins og maturinn sem ég borða, tónlistin sem ég hlusta á og veðrið sem er úti gefa mér hugmynd um hvernig orku ég vil gefa frá mér frá degi til dags því ég klæði mig oft í það sem mér finnst vera í takt við umhverfið, t.d. ef ég ákveð að borða mjög hollt einn daginn þá klæði ég mig öðruvísi en vanalega og ef ég ákveð að eyða deginum á kaffihúsum að lesa blöðin þá klæði ég mig öðruvísi, þetta fer örugg- lega bara eftir tilfinningu. Það má segja að ég klæði mig í karakter. Mér finnst gaman að detta í nokk- urskonar hlutverk, einn daginn vil ég bara vera í öllu svörtu en hinn daginn kýs ég að klæða mig eins og ég sá af 19. öldinni. Ég er frekar „over the top“ og heillast frekar af grófum hlutum en fínum. Stundum vil ég vera stelpuleg en oftast er ég strákaleg og finnst best að vera í þröngum gallabuxum og köflóttri hettuskyrtu. Mér finnst að hár geti skipt mestu máli í „outfitti“ og þess vegna breyti ég oft um háralit þeg- ar ég hef fengið ógeð af þemanu í daglegu átfittunum mínum. Ef ég ætti að velja mér eitt uppáhalds tímabil í tísku væri það „late“ 70’s þar sem pönkið var upp á sitt besta. Agnes Björt Andradóttir, söngkona vinsælu hljóms- veitarinnar Sykurs, hefur vakið mikla athygli fyrir fatasmekk, sem einkennist af fjölbreytilegu klæðavali í bland við hressilegar hár- greiðslur. Það má segja að hún hafi hugmyndaflugið í lagi og elski að detta í ný hlutverk, þar sem fatastíllinn er margbreytilegur frá degi til dags.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.