Fréttatíminn - 14.09.2012, Side 71
40 ár frá einvígi aldarinnar
Á laugardaginn verður
þess minnst með málþingi
og risaskákmóti í Laugar-
dalshöll að 40 ár eru liðin
frá því „Einvígi aldarinnar“.
Þá sigraði Bandaríkjamað-
urinn Robert J. Fischer hinn
rússneska Boris Spassky.
Mótið er ætlað börnum á
grunnskólaaldri, auk þess
sem skákmenn 60 ára og
eldri tefla í sérstökum heiðursflokki. Teflt verður í aðal-
sal Laugardalshallar, þar sem hið sögulega einvígi fór
fram. Skákmótið hefst klukkan 13 en klukkan 11 hefst
málþingið. Reykjavíkurborg stendur að skákhátíðinni
í samvinnu við SÍ, Skákakademíuna og taflfélögin í
Reykjavík. Þátttaka í hátíðinni er ókeypis.
Hollywood á stóra sviðinu
Hilmir Snær Guðnason og Stefán Karl Stefánsson
snúa aftur með Fulla vasa af grjóti í Þjóðleikhúsinu á
laugardaginn. Varla er hægt að segja um frumsýningu
að ræða, frekar endur-
komu, en verkið var
fyrst frumsýnt árið 2000
og þá voru 180 sýningar
og yfir 40 þúsund manns
sáu verkið. Nú er tíu ára
sýningarhléi lokið en
verkið fjallar um auka-
leikara í Hollywoodmynd
sem setur allt á annan
enda í litlum smábæ.
Kannski hefur efnið
sjaldan átt eins mikið
erindi á Íslandi.
Aki Kaurismaki á Akureyri
Fyrsta frum-
sýning Leikfélags
Akureyrar í vetur er
Leigumorðinginn
eftir Aki Kaurismaki.
Það er Egill Heiðar
Anton Pálsson sem
leikstýrir þessu
sérstæða verki sem
samkvæmt kynn-
ingarbæklingi Leik-
félags Akureyrar
fjallar um ástina og dauðann og misheppnaða sjálfs-
morðstilraun. Það eru þau Aðalbörg Þóra Árnadóttir,
Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Einar Aðalsteinsson
og Hannes Óli Ágústsson sem leika í verkinu og verður
það frumsýnt í byrjun október.
Ólöf og þjóðararfurinn
Listasafn Íslands opnar á föstudagskvöld klukkan 20
sýninguna Musée Islandique eftir Ólöfu Nordal. Sýning-
in byggir á tveimur nýjustu ljósmyndaröðum hennar;
Musée Islandique og Das Experiment Island Ólöf er
ein af okkar
fremstu
listamönnum
og er þekkt
fyrir að vinna
með þjóðar-
arfinn á sinn
sérstaka og
beinskeytta
hátt.
Sigfríð ÞóriSdóttir ÆviSaga í ljóðum
una eftir heilablæðinguna en
síðan stóð ég á miðjum gangi í
Hveragerði og kallaði allt í einu
eftir blaði og blýanti og þá komu
þessar línur: „Lost in a world of
desktop, without connection to
my meodem of life.“ Síðan hélt
þetta bara áfram að koma og ein-
hverju sinni var ég í Eden þegar
ljóðin gerðu vart við sig og ég
þurfti að fá servíettu og penna í
ofboði,“ segir Sigfríð.
„Það var afskaplega gaman að
fást við að þýða ljóðin yfir á ensku
vegna þess að ég á gamla íslensk/
enska orðabók og valdi flott ensk
orð þegar möguleikarnir voru
fleiri en einn.“
Sigfríð segist hafa ætlað sér að
skrifa ævisögu sína en „þegar ég
var búin að skrifa einhverjar sex-
tíu blaðsíður rakst ég á öll ljóðin
mín í bakka uppi í hillu og ákvað
þá að breyta ævisögunni bara í
ljóðabók.“
Sigfríð segist alltaf þurfa að
vera með blað og penna við hönd-
ina. „Það skjóta oft upp kollinum
stikkorð þegar ég er að horfa á
sjónvarpið. Þá skrifa ég orðin hjá
mér og yrki svo í kringum þau.
Hugmyndin að ljóðinu Dauða-
stundin kom til dæmis bara þegar
ég var að horfa á Nágranna.“
Sigfríð var með brákaða höfuð-
kúpu þegar ljóðin hennar fossuðu
fram í Hveragerði. „Ég býst við
að krafturinn hafi farið upp fyrir
höfuðið á mér þá enda leitar orka
þangað sem mest þörf er fyrir
hana. Það var allt opið þarna uppi
og þess vegna held ég að ég hafi
byrjað að yrkja.“
Bækurnar Ópera sálarinnar
og Opera of the soul eru meðal
annars seldar í verslunum Ey-
mundsson.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Án ofnæmisvaldandi efna
Án efna sem sitja eftir í tauinu
Sérþróað fyrir íslenskt vatn
Í völdum 2 kg pökkum af MILT
þvottadufti eru lukkumiðar sem
innihalda glæsilega vinninga.
Kauptu MILT þvottaduft og þú
gætir dottið í lukkuþvottinn!
Whirlpool þvottavél og Philips
straujárn frá Heimilistækjum,
veglegir balar með frábærum
þvotta- og hreinsiefnum eða
inneign í Skemmtigarðinn
í Smáralind.
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
menning 63 Helgin 14.-16. september 2012