Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.09.2012, Qupperneq 74

Fréttatíminn - 14.09.2012, Qupperneq 74
Lítið hefur borið á þjóðlegri tónlist frá Suð-Austur Evrópu á Íslandi en félagarnir í hljómsveitinni Skuggamyndir frá Býsans ætla sér að breyta því. Hljómsveitin sækir í gríska, tyrkneska og búlgarska hefð og hefur vakið lukku með tónleik- um sínum á Cafe Haiti. Í vor gaf sveitin síðan út geisladiskinn New Road sem gefur ágætis þver- snið af efnisskrá sveitar- innar. „Við erum að reyna að kynna þetta fyrir Ís- lendingum,“ segir Ásgeir Ásgeirsson, gítarleikari, en hann og Haukur Grön- dal, klarínett- og saxófón- leikari, eru forsprakkar sveitarinnar. „Það eru nú ekki margir hérna sem hafa farið til þessara landa beinlínis til þess að læra, frá fyrstu hendi, að spila þessa tónlist.“ Ásgeir segir Íslendinga líklega fyrst og fremst þekkja „sígaunataktinn“ úr Euorovision-lögum frá þessum heimshluta og svo kannist margir við dans Grikkjans Zorba sem er einkennandi fyrir grísku hefðina. „Þetta er dans- og partítónlist þessara landa, eins og salsa, og byggir á gömlum hefðum á Balkan- skaganum. Við erum allir djasstónlistarmenn en ég kynntist þessu aðeins í Hollandi og Haukur í Danmörku. „Haukur fór svo til Búlgaríu og kynntist tónlistarfólki þar. Eitt leiddi svo bara af öðru og allt í einu átti maður vini í Búlgaríu sem buðu okkur að koma og læra þetta almennilega. Auðvitað er lang skemmtilegast og sjarmerandi að læra þetta frá fyrstu hendi og kynnast fólkinu í löndunum.“ Búlgarski harmoníkuleikarinn Borislav Zgurovski, sem þykir einn sá fremsti í heimalandinu, leikur með strákunum á disknum. „Hann er líka einhvers konar gæðastjóri og aðstoðar okkur við að komast eins nálægt upprunanum og hægt er en við komum að sjálfsögðu líka með okkar hefð inn í þetta.“ Þórarinn Þórarinsson toti@frettatimann.is Það varð aldrei úr því að við færum. Nú er spurning hvort við tökum ekki Moses með og tökum Japans- markað? Ungu mennirnir í Moses Hightower voru ekki fæddir þegar Helga Möller og Jóhann Helgason trylltu landsmenn með Þú og ég. Sveitirnar troða upp saman í Iðnó í kvöld, föstudagskvöld. Ljósmynd/Hari  Tónleikar Moses HigHTower Treður upp Með Þú og ég í iðnó Spila Gleðibankann í diskótakti Hin vinsælda hljómsveit Moses Hightower treður upp í Iðnó á föstudagskvöld. Áhorfendur fá veglegan bónus því þegar sveitin hefur lokið sér af leika meðlimir hennar undir hjá hinni goðsagnakenndu diskósveit Þú og ég sem var uppi á sitt besta áður en liðsmenn Moses Hightower fæddust. Þ að var enginn okkar fæddur þegar þau voru upp á sitt besta. Danni gítarleikari fæddist ekki fyrr en tíu árum eftir að Ljúfa líf kom út,“ segir Andri Ólafsson, einn liðsmanna hljómsveitar- innar Moses Hightower. Sveitin treður upp ásamt hinni goðsagnakenndu diskóhljómsveit Þú og ég í Iðnó í kvöld, föstudagskvöld. Moses Hightower og Þú og ég leiddu fyrst saman hesta sína á Innipúkanum um verslunarmannahelg- ina og þótti það svo vel heppnað að ákveðið var að endurtaka leikinn. Moses-liðar troða upp með eigin efni en leika svo undir hjá Þú og ég, þeim Helgu Möller og Jóhanni Helgasyni. „Þau eru fagmenn fram í fingurgóma og ákaflega viðkunnanlegt fólk,“ segir Andri um samstarfið. Önnur breiðskífa Moses Hightower kom út á dög- unum og hefur fengið afar góðar viðtökur. Andri játar því að meðlimir sveitarinnar séu hæstánægðir. „Við getum ekki verið annað en mjög ánægðir með allan þennan byr í seglin.“ Helga Möller lætur vel af samstarfinu við ungu mennina. „Þetta eru algjörir snillingar. Við smellum vel saman. Þetta eru vandvirkir og flottir tónlistar- menn. Svo eru þeir með góðan húmor sem er ekki verra.“ Og Helga er hrifin af tónlist Moses Hightower. „Ég er með diskinn þeirra í bílnum og syng með. Ég er orðinn aðdáandi númer eitt,“ segir hún. Helga viðurkennir þó að fyrri plata Moses Hightower hafi farið framhjá henni og hún hafi ekki þekkt til sveitarinnar þegar fyrst var talað um að bandið myndi leika undir hjá Þú og ég. „Ég sagði bara, Mo- ses Hightower, er það einhver bygging? Ætla þeir að fara að spila diskó undir hjá okkur? En svo varð bara einhver gjörningur í Iðnó með þeim og blásurunum. Þetta var algjör snilld.“ „Við höfum fengið spilun í Búlgaríu og þar trúir fólk því ekki að þetta séu Íslendingar að spila og halda að við séum Búlgarar. Það eru býsna góð með- mæli,“ segir Ás- geir. Með honum á myndinni eru félagar hans í bandinu, þeir Haukur Gröndal, Þorgrímur Jónsson og Erik Qvick.  skuggaMyndir frá Býsans BalkanTónlisT Spila eins og innfæddir Tónlistarfólkið hefur æft stíft í vikunni fyrir tón- leikana í Iðnó. Mun fleiri Þú og ég-lög verða á efnis- skránni en á Innipúkanum. „Og sitthvað fleira. Það er aldrei að vita nema við spilum Gleðibankann í diskótakti,“ segir Helga leyndardómsfull. Þú og ég sendi frá sér jólalag í fyrra og um þessar mundir vinna þau Helga og Jóhann að nýju lagi. Helga segir það langt komið og útilokar ekki að það komi út fyrir jólin. Á sínum tíma naut tónlist Þú og ég nokkurra vinsælda í Japan. Sveitin fór aldrei til Japans til að fylgja velgengninni eftir en Helga segir að grínast hafi verið með það á æfingum með Moses Highto- wer að nú ættu þau að kýla á það. „Það varð aldrei úr því að við færum. Nú er spurning hvort við tökum ekki Moses með og tökum Japansmarkað?“ segir Helga og hlær dátt. Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is 66 tónlist Helgin 14.-16. september 2012
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.