Fréttatíminn - 14.09.2012, Síða 76
Í takt við tÍmann Ásgeir trausti tónlistarmaður
Alveg fastur í Temple Run
Hinn tvítugi Ásgeir Trausti Einarsson vakti athygli með lögunum Sumargestur og Leyndarmál
í sumar. Hann var að senda frá sér sína fyrstu plötu, Dýrð í dauðaþögn. Ásgeir Trausti er kvik-
myndaáhugamaður en hann nennir ekki að vera á Facebook.
Staðalbúnaður
Ég klæðist oftast gallabuxum og bol og kannski hettupeysu.
Þægilegum fötum. Ég kaupi mér stundum föt en ég gerði
miklu meira af því áður fyrr. Þegar ég versla fer ég oftast í
búðir eins og Jack & Jones, Sautján og Levi’s. Þegar ég fer út
úr húsi er ég alltaf með síma, veski, tóbak og þannig hluti. Ég
get hins vegar ekki gengið með úr eða aðra aukahluti, ég týni
þeim alltaf samdægurs.
Hugbúnaður
Ég fer mjög oft í bíó, allt að því einu sinni í viku.
Svo var ég að kaupa minn fyrsta flatskjá og er
búinn að vera duglegur að horfa á bíómyndir.
Síðasta sjónvarpsþáttaröð sem ég horfði á
var The Killing. Kærastan mín var alla vega
að segja mér að við hefðum verið að horfa
á hana, ég hlýt að hafa sofið það af mér. Ég
djamma ekkert voðalega mikið, alla vega
ekki síðustu mánuði. Ég er kannski
frekar fyrir að hanga með vinum
mínum og djamma þannig frekar
en að fara niður í bæ. En ef maður
fer þangað endar maður oft
á Prikinu. Ég var á kafi í
lyftingum þangað til ég gaf
mig að tónlistinni. Það hefur
komið mér á óvart að ég sé
ekkert eftir lyftingunum því ég var fastur í
þeim í mörg ár.
Vélbúnaður
Ég kann ekki neitt á græjur en ég á
samt iPhone og Macbook. Ég kann
bara helstu atriði en ekkert meira.
Macbook-inn nýtist þó mjög vel í
tónlistinni til að taka upp demó heima og
svona. Sverrir vinur minn var að benda
mér á Temple Run í iPhone-inum og ég
er alveg fastur í þessu dæmi. Þetta er
svona leikur þar sem maður stjórnar
kalli sem hleypur stanslaust. Mér líður
eins og ég sé fífl. Fyrir utan Temple Run og önnur
öpp hef ég aldrei verið fyrir að spila tölvuleiki. Ég
er með aðdáendasíðu á Facebook en ég er ekki
sjálfur með síðu og hef aldrei verið.
Ég nenni því bara ekki, maður
festist bara í þessu.
Aukabúnaður
Ég er tónlistarkennari í sveitinni
heima, á Hvammstanga og keyri
fram og til baka einu sinni í viku.
Ég keyri um á gömlum BMW, hvít-
um 96 módeli, sem ég keypti daginn
eftir að ég fékk bílprófið. Það er ekki
erfitt að þekkja þennan bíl því ég
sprautaði felgurnar á honum svart-
ar ásamt félögum mínum. Þegar
ég borða úti fer ég helst á Ham-
borgarasmiðjuna á Grensásvegi –
það er „gúddsjitt“. American Style er
líka fínn en ég fer líka á staði eins og
Salatbarinn. Fyrir nokkrum vikum
bauð ég kærustunni á Hereford, það
var mjög gott. Uppáhaldsstaðurinn
minn er Miðfjörðurinn, Hvammstangi
og Laugarbakki. Aðal áhugamál mín eru
íþróttir og myndlist, ég var mikið að teikna
áður fyrr, og svo hljóðfæri og fleira tengt
tónlist.
Ásgeir Trausti heldur þrenna útgáfu-
tónleika á næstu dögum; á Græna hattinum á
Akureyri í kvöld, föstudagskvöld, í Félags-
heimilinu á Hvammstanga sunnudaginn 16.
september og á Faktorý í Reykjavík þriðju-
dagskvöldið 18. september. Ljósmynd/Hari
Brúðkaupið haldið
á rómantískum stað
Gossip Girl stjarnan Blake Lively gekk að eiga leikarann Ryan Reynolds
á sunnudaginn, en þau hafa verið saman í rúmlega ár. Athöfnin fór fram
á þeim rómantíska stað þar sem kvikmyndin The Notebook var tekin upp
á sínum tíma. Það var engin önnur Martha Stewart, eftirsótti brúðkaups-
skipuleggjarinn, sem tók að sér að skipuleggja brúðkaupið.
Brúðurin fékk hátískuhönnuðinn Marchesa til þess að hanna brúðar-
kjólinn, sem var hvítur og alskreyttum demöntum. Hún paraði skó frá
góðvini sínum, Christian Louboutin, við. Brúðguminn valdi sér svört,
klassísk jakkaföt frá tískuhúsinu Burberry og lét vin sinn, Christopher
Bailey, hanna leðuraxlabönd sem bæði hann og svaramenn hans klædd-
ust.
Þetta er fyrsta brúðkaup leikkonunnar, sem varð 25 ára á árinu, en
annað hjónaband Ryans, sem skildi við leikkonuna Scarlett Johansson í
desember 2010, eftir aðeins tveggja ára hjónaband.
68 dægurmál Helgin 14.-16. september 2012