Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.12.1942, Side 10

Læknablaðið - 01.12.1942, Side 10
84 LÆKNABLAÐIÐ sjúkdóma, en 57% á almenn sjúkrahús og sjúkraskýli. Allmörg sveitahéruö og önnur fámenn lækniishéruö eiga sjúkraskýli eöa sjúkrahús til aö sjá borgið brýn- ustu þörfunrhéraðsbúa. Allir kaup- staöir landsins, nema Reykjavík, Hafnarfjöröur og Akranes, eiga og reka sjúkrahús fyrir almenna sjúkdóma. Reykjavik á aö vísu farsóttahús meö 35 rúmurn, en nokkur hluti þeirra er notaður i þágu ríkisins fyrir berklasjúkl- inga. Á Noröurlöndum reka bæjar- og sveitarfélög almenn sjúkrahús og farsóttahús, og er sú skylda lögð á meö lögurn í Svíþjóð. Alls staðar er þeirri reglu fylgt, aö ákveöa dag- gjöldin mjög lág, en halli sjúkra- húsanna er síöan greiddur af al- mannafé. Stefna bæjar- og sveit- arfélaga, er reka sjúkrahús hér á landi, er hins vegar sú, aö reka beri sjúkrahúsin hallalaust, og eru því daggjöld ákveöin svo há, aö líkur séu til, aö þaö takist. Hið sama gildir vitanlega um einka- sjúkrahúsin. Um skipun sjúkrahúsmálanna má segja í stuttu máli, að sæmileg- ur kostur sé á sjúkrarúmum, og hefir sú hliö málsins ráðizt all- vel, en þaö.er einkamál sjúkling- anna, hversu þeim tekst aö kljúia kostnaöinn. Bæjar- og sveitarfé- lögin hafa y.firleitt eigi talið sér skylt aö létta þeirn verulega róð- urinn, þótt þau heföu á valdi sínu að gera þaö, en þriðjungur lands- manna á þess engan kost, að hafa beina íhlutun um sjúkrahúskostn- aöinn, þar eö forsjón þeirra sér þeim eigi fyrir sjúkrarúmum. Af því, sent* sagt hefir verið hér aö framan, er ljóst, aö byrðar þær, er hlutu aö hvíla á einstak- lingnum vegna sjúkdóma, voru næsta þungar. Þyngstar voru þær í þéttbýlinu, þar senr dýrast var aö lita, en atvinnuskilyrði hins veg- ar eigi þeim mun betri en annars staöar almennt. Þar viö bættist, aö opinber aðstoð einstaklingunum til handa vegna heilsuleysis var þai minnst, bæði til að leita læknis- hjálpar og njóta umönnunar i sjúkrahúsum. Það er þvi engin furöa, aö margir urðu aö leita hjálpar annarra. Aðstoðin, sem maður gat veitt manni, hrökk skammt, þegar um var að ræða al- varleg, langvinn veikindi, og þvi varð það æ almennara, aö bæjar- og sveitarfélög uröu að hlaupa undir bagga. Þetta ástand var a engan hátt æskilegt eða viðunandi, og var því eölilegt, að hugmyndin um almennar sjúkratryggingar fengi byr undir vængi. Sú hugmynd var þó ekki ný. Áriö 1911 voru sett lög um sjúkra- samlög. Samkvæmt þeim voru sjúkrasamllögin frjáls samtök, er nutu nokkurra opinberra fríöinda. Þau náöu þó litlum vexti, og að- eins um 5% þjóöarinnar höfðu tryggt sig í sjúkrasamlögum af frjálsum vilja áriö 1936. Þetta tómlæti almennings um sjúkra- tryggingu spáði ekki góðu um viö- horf hans til skyldutryggingar, og bætti það ekki úr, að umræður um máliö lentu í ljónsgini stjórnmála- þrefs og flokkadrátta. Árið 1936 voru sjúkratrygging- ar geröar aö skyldu í öllum kaup- stöðum landsins, og náði þá trygg- ingin til nærri helmings lands- manna. Öörum sveitarfélögum var gert heimilt aö stofna sjúkrasam- lög meö sömu réttindum til opin- berra fríöinda. Nauðsyn sjúkra- trygginga var óvefengjanleg. En hitt gat verið vafamál, hversit víð- tækar þær skyldu vera. Sjúkra- trygging veröur helzt að uppfyíla tvö meginskilyröi. Hún veröur aö

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.