Læknablaðið - 01.09.1948, Page 13
LÆKNABLAÐIÐ
55
fleiri veiktust greinilega í
Hornafjarðarhéraði 1905 en
þeir 5, sem hér eru taldir (sbr.
töflu I), og í Akureyrarhéraði
eru 1914—15 skráðir aðeins 8
sjúklingar, líklega aðeins þeir,
er fengu lamanir, þvi að
starfandi læknir þar (V.
Steffensen, 1938) kveðst
seinna hafa séð 10 sjúklinga
í þessum faraldri og fengu 5
lamanir. Svipuð vanhöld eru að
vísu einnig sýnileg síðar, en
gætir þó sennilega minna.
Á tímabilinu milli þessara
faraldra, þ.e. um 8 ára skeið,
eru engir sjúklingar skráðir.
Næstu 8 árin eftir seinni far-
aldurinn eru og ýmist engir
eða 1—2 sjúklingar skráðir á
ári, en svo kemur stóra bylgjan
1924, og hafa enn ekki verið
skráðir jafnmargir sjúklingar
á einu ári. Eftir að þessi mikla
alda dvínar, koma hinar næstu
1935—36 og 1945—47 (hin síð-
ari greinist þó í tvennt eins og
sjá má af töflu III), eru milli-
bilin lík að lengd og áður, en
eru nú ekki lengur eins hrein,
því að smærri bylgjur má
greina 1932 og 1938 og öll árin,
að einu undanskyldu, eru sjúkl-
ingar skráðir einhversstaðar á
landinu.
Tafla I gefur yfirlit yfir-
fjölda mænusóttarsjúklinga,
sem skráðir eru árlega í hverju
læknishéraði frá 1904—1947.
Er mjög ábex-andi nnmur á
einstökum héruðum og meiri en
svo, að kennt verði ófullkom-
inni skráningu eða mismun á
fólksfjölda. Oftast er veikinnar
getið í Sauðárkrókshéraði; eru
þar skráðir sjúklingar 16 ár af
24 á tímabilinu 1924—47. Næst
koma Reykjavíkui'- og Blöndu-
óshéruð með 12 og 11 skrán-
ingai'ár á sama tímabili, þá
Húsavíkux’- og Rangárvalla-
héruð með 8 o. s. frv. 1 5 hér-
uðum (Flateyjar, ögui', Reykja-
fj., Þistilfj. og Fáskrúðsfjai’ð-
ar) hafa sjúldingar aðeins ver-
ið skráðir eitt ár frá upphafi.
Vii'ðist skv. þessu að frá 1924
hafi mænusóttin verið einna
mest viðloðandi í Skagafii’ði, þó
að fleiri sjúklingar samtals
hafi verið skráðir í öðrum
héruðum, einkum norðanlands.
TAFLA II
Skráðir sjúklingar 1904-1947 Mannfjöldi 1935
Reykjavík 349 34642
Suðui'land 339 21877
Vesturland 300 22613
Norðurland 1086 26602
Austurland 120 10136
Sanxtals 2194 115870
Suðurland: Siðuliérað — Álafoss-
hérað..
Vesturland: Borgarfj. — Hólma-
víkurhérað.
Norðurland: Miðfjarðar — Þistil-
fjarðarliérað:
Austurland: Vopnafj. — Ilorna-
fjarðarhérað.