Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.09.1948, Blaðsíða 28

Læknablaðið - 01.09.1948, Blaðsíða 28
70 LÆKNABLAÐIÐ minnist mjög margra ánægju- stunda frá skólaferðum okkar og sex ára samvera í latínu- skólanum. Hann var hinn bezti og öruggasti félagi í hvívetna. Námsmaður var hann sam- vizkusamur og ötull, enda góð- um gáfum gæddur og stúdents- prófi lauk hann með mjög góðri fyrstu einkunn vorið 1896, og embættispróf við há- skólann í Khöfn vorið 1902 sömuleiðis með fyrstu einkunn. Dvaldi hann svo á sjúkrahús- um við framhaldsnám, fór með Austur-Asíufél. skipinu „Prins Valdemar“ til austurlanda okt. 1903 til apríl 1904. Næstu þrjú ár var hann ýmist staðgengill héraðslæknanna á Akureyri eða Reykjavík, eða liann brá sér til útlanda (1906) til frekara náms. Loks settist hann að sem hér- aðslæknir á Akureyri árið 1907 og varð embættisferill hans þar 30 ár, sagði af sér embætti 1937 og dvaldi síðustu ár ævi sinnar í Danmörku — lengst af sem starfandi læknir í Nexö á Borgundarhólmi. Hann var mjög ástsæll af héraðshúum sínum, samvizkusamur og fljótur til að veita lið. Skurð- læknir þótti liann með þeim beztu hér á landi í sinni tíð, sjúkrahússlæknir á Akureyri alla sína embættistíð, röskur í ferðalögum er hann vitjaði sjúkra út um sveitir, oft langt út fyrir sitt hérað, glaður og hress kom hann inn til sjúkl- inganna og vakti hjá þeim von og traust. Steingrímur gaf sig lítt að stjórnmálum, en heilbrigðis- og mannúðarmálum var hann hin bezta stoð, t. d. formaður Rauða-kross deildar Akureyrar og Slysavarnafélagsins þar. — Menntamálum unni hann einn- ig, var ætíð fús á að veita fræðslu og gegndi stundum kennslustörfum við Mennta- skóla Akureyrar í fox-fölluin skólastjóra, og var prófdómari við þann skóla í mörg ár. Hann var söngelskur og hafði laglega söngrödd, skemmti oft á sam- komum með söng og ræðum, því hann var tækifærisræðu- maður með afbrigðum, hug- myndaflugið minnti á föður hans, tilvitnanir á reiðum höndum og gamanyrðin léku honiun á tungu. Á embættisár- um sínum ferðaðist hann mjög oft til útlanda, til að sjá og heyra nýtt í mennt sinni og lagði hann víða land undir fót, bæði í Evrópu og Ameríku, enda var hann fjölfróður svo af bar. Steingrímur Matthíasson var sem næst meðalmaður á hæð, vel á sig kominn, fríður sýnum, ljós yfirlitum, hvatlegur í hreyfingum og hinn kurteisasti og geðfeldasti í allri framkomu, glaður og gestrisinn heim að sækja og vildi hvers manns vandræði leysa, þeirra er til hans sóttu. Smekkmaður var

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.