Læknablaðið - 01.09.1948, Qupperneq 14
56
LÆKNABLAÐIf)
Auðsætt er, að langmest hef-
ur borið á veikinni norðan-
lands, þótt einnig þar sé tals-
verður munur á héruðum, kem-
ur þetta greinilega fram í töflu
II, þar sem fjöldi sjúklinga á
öllu tímabilinu cr flokkaður
eftir landsfjórðungum, að öðru
leyti en því, að Reykjavíkur-
hérað er talið sér, en ekki með
Suðurlandi. Næstum því helm-
ingur allra sjúklinganna eða
1086 af 2194 eru á Norðurlandi
þótt mannfjöldi þar nemi ekki
fjórðungi íbúatölu alls landsins.
Fæstir eru hlutfallslega skráð-
ir í Reykjavík og þá á Austur-
landi, en annars er munurinn
á landshlutunum, öðrum en
Norðurlandi, ekki meiri en svo,
þegar miðað er við fólksfjölda,
að vafasamt er, hvort mark
sé á takandi, því að sýnilega er
skráningin víða mjög ófull-
komin og illa samræmd, sem
von er til. Munu sumir lækn-
anna, einkum framan af, aðeins
telja þá, er greinilegar lamanir
fá, en aðrir telja mismunandi
mörg af hinum vægari tilfellum
án lamana, sem að jafnaði eru
miklu fleiri. 1 Akureyrar hér-
aði 1924 virðast l. d. aðeins
taldir þeir, sem lamanir fengu
(þótt ekki væru alltaf varan-
legar) en í Svarfdælahérðaði
eru einnig skráð vægari til-
fellin, sem læknir sá (Sigurjón
Jónsson, 1924), og mun það
að jafnaði gert nú orðið, er
faraldrar ganga, en annars er
ekki alltaf sýnilegt, hvor hátt-
urinn er hafður á.
Árstíðamunur.
Tafla III sýnir fjölda skráðra
sjúklinga eftir mánuðum árin
1924—1947.* 1) Fyrir 1924 er
mánuður sjaldnast tilgreindur
og er því sleppt hér. Siunman
sýnir mikla aukningu i júní
með hámarki í október, þó
þannig, að lítill munur er á
mánuðunum ágúst, sept. og
október, en alls nær bylgjan
fram til jan.—febrúar og nær
því yfir 8—9 mánuði. Er þetta
óvenjulegt um mænusótt, því
að venjulega er talið, að aukn-
ingin byrji ekki fyrr en síðla
sumars eða að hausti og dvíni
er kenmr fram á vetur, en auð-
séð er af töflunni (shr. og
2. mynd), að það er faraldur-
inn 1924, sem hér veldur mestu
um. Þessi mikli landsfaraldur
er m. a. sérstæður, að því
leyti, hve snemma hann gengur
yfir. Hann hefst mjög geist í
júní, nær hámarki í júlí og
er að mestu um garð genginn
í ágústlok. Sé hann ekki talinn
með verður heildarsvipurinn
annar, aukningin hefst þá ekki
fyrr en í ágúst og nær hámarki
í októhcr. Annars mætti lika
1) í Hbrsk. 1928 er ekki niánaða-
skrá og frumskýrslur eru glataðar.
1 sjkl. vantar á mánaðarskrá hvort
áranna 1927 og 1935 og auk þess
vantar þá 2, sem dóu 1926, en voru
ekki skráðir, sbr. ath. við töflu I.