Læknablaðið - 01.09.1948, Síða 26
68
LÆK X A B 1. A Ð I f>
þá fylgzt vel með öðru heim-
ilisfólki í 6—15 daga og brýnt
fyrir því að viðhafa fyllsta
hreinlæti og varúð í meðferð
saurinda. Að sjálfsögðu verður
því ekki alltaf komið við að
einangra sjúklinga á sjúkra-
liúsi, enda er oft mesta smit-
hættan af þeim um garð geng-
in, er þeir eru orðnir greini-
lega veikir. Rétt þykir, að börn-
um frá sýktum heimilum sé
hönnuð skólavist og að forð-
ast sé eftir megni, að þau séu
samvistum við önnur börn, og
fólk frá sýktum heimilum
má ekki l'ást við framleiðslu
eða meðhöndlun (afgreiðslu)
matvæla á nokkurn hátt, nema
það hafi áður verið einangrað
um 2 vikur eða svo. Sund-
laugum og baðstöðum er oft
lokað, er faraldrar ganga, því
að möguleikar eru á smitun
þar, og fólki er ráðlagt að
forðast vosbúð og mikla á-
reynslu. Forðast skyldi og að
taka hálskirtla, er mænusóttar
er von, því að margir telja að
slíkar aðgerðir í hálsi greiði
götu mænusóttar-virus.
Hér hefur verið, hallazt að
því, að snertismitun — og það
oftast frá hálsi — eigi mestan
þátt í útbreiðslu faraldra, þó
að saursmitun geti vissulega
einnig komið til greina, enda
er trúlegt, að milli faraldra
haldist virus við í saur smithera
og að upptök faraldra megi því
einatt rekja til saursmitunar.
Ekkert verður þó fullyrt um
þetta, enda má segja, að þekk-
ing manna í þessum efnum sé
enn sem komið er mjög í mol-
um og skoðanir því skiptar.
Að sumu leyti ætti e. t. v. að
reynast auðveldara að graf-
ast fyrir um upptök veikinnar
og rekja feril hennar hér á
landi en viða annars staðar.
Slíkar rannsóknir þyrfti að
undirbúa vel og samræma og
ekki er þess að dyljast, að þær
mundu kosta mikla vinnu og
fyrirhöfn, en vel væri það þess
vert að reyna. Æskilegt væri
og að taka upp nákvæmari
skráningu, svo að séð verði
m. a. hve margir fá lamanir í
svip og hve margir varanleg-
ar lamanir.
HEIMILDIR:
American Ortlioped. Assoc. 194(5.
J. A. M. A. 131, No 17.
Aycock W. L. & Kessel .1. F. 1943
Ani. J. Med. Sc. 205, 454.
Casey A. E. 1942, J. A. M. A. 120,
805-
Casey A. E. 1945, Am. .1. Dis.
Childr. (59, 152.
Casey A. E., Fishbein W. I. &
Bundesen N. N. 1945, .1. A. M. A. 129.
1141.
Finsen .1. 1874. Iagttagelser an-
gaaende Sygdomsforholdene i Is-
land, Kbh. 1874.
Goldstein D. M., Hannnon W. M. &
Viets H. R. 1940, J. A. M. A. 131, 569.
Guðmundiir Hannesson, Heil-
brigðisskýrslur 1911—1920, bls.
LXXVI.
Heilbrigðisskýrslur 1901—1947.
Horstmann D. M., Ward R. & Mel-
nick .1. L. 1944, J. A. M. A. 126, 1031.