Læknablaðið - 01.09.1948, Side 29
LÆKNABLAÐIÐ
71
hann um allan húsbúnað og
vildi skreyta umhverfi sitt með
blómum og trjárækt, þar sem
því varð við komið.
Steingrimur var góður og af-
kastamikill rithöfundur, reit
meðal annars nokkrar bækur
um læknisfræðileg efni, t. d
„Heilsufræði. Alþýðubók og
skólabók“ Ak. 1914. „Mann-
skæðasta sóttin“ Ak. 1919., —
„Hjúkrun sjúkra, hjúkrunar-
fræði og lækningabók“ Ak. 1923
og ýmsar fleiri og svo fjölda
ritgerða í útlend og innl. tíma-
rit og blöð. Auk þess gaf hann
út, eða sá um útgáfu á ýmsum
ritum eftir föður sinn og rit-
aði um bann. Hér er ekki tæki-
færi til að telja upp eða tala
nánar um ritverk Steingríms. 1
bókinni: „Læknar á lslandi“ eru
þau talin upp. Yfirleitt bafa rit
hans fengið góða dóma, efnið
skráð ljóst og létt, en þó af
þekkingu og samvizkusemi.
Árið 1906 kvongaðist Stein-
grímur mætri konu: Kristínu
dóttur Þórðar læknis Thorodd-
sen, börn þeirra, sem upp kom-
ust —- 4 drengir og 2 stúlk-
ur — náðu öll góðum þroska og
eru lifandi og starfandi hér á
landi. Þegar hjónin böfðu
slitið samvistum og börnin voru
farin og tekin að vinna sjálf-
stætt, undi Steingrímur ekki
lengur á Akureyri og flutti þá
til Danmerkur, sem áður er
sagt, en þegar hann fann að
lífinu var að verða lokið, not-
aði hann síðustu kraftana til
að komast heim og dó á Land-
spítalanum þann 27. júlí þ. á_
Um þennan mæta mann
mætti rita langt mál og eflaust
verður minningu hans gerð
betri skil áður langt um líður.
Hinir mörgu sem nutu hjálpar
hans minnast hans með hlýhug
og þakklæti, og við vinir hans
söknum hans sem góðs félaga.
Eg sakna skemmtilegu bréf-
anna hans, er bárust mér alltaf
við og við á sjötta tug ára eða
frá því skólasamverunni lauk.
Bréfin voru, eða setningarnar,
spriklandi af fjöri og full af
skemmtilegum tilvitnunum og
glepsum úr öllum mögulegum
bókum og fyi’irbærum, en það
einkennilega var að aldrei var5
þess vart, svo ég viti, að hann
gerði tilraun til að semja skáld-
verk, hvorki í hundnu né ó-
bundnu máli og virtist hann þó
hafa bæði gáfur og hugarflug
til slíkra hluta, en glampar af
listeðlinu hrutust þó fram og
birtust á öðrum sviðum.
Við samherjar Steingríms
minnumst hans með þakklæti,
virðingu og söknuði.
Rvík 31. ágúst 1948.
Ing. Gíslason.
Penicillin-þolnir klasasýklar.
Á Hammersmith sjúkrahúsi i Lon-
don var staphylococcus pyogenes
ræktaður úr sárum 100 sjúklinga, og
prófað penicillin-þol sýklastofn-
anna. í 38 sjúkl. kom i ljós, að sýkl-
arnir voru ekki penicillin-viðkvæm-