Læknablaðið - 01.09.1948, Side 33
LÆKNABLAÐIÐ
75
ast að jafnaði lengri sjúkrahús-
vistar en bæjarbúar, og verður
legudagafjöldi þeirra fyrr-
nefndu því hlufallslega hærri.
Páll Sigurðsson telur í fyrr-
nefndri grein sinni, að eftir
verði þá aðeins ca. 180 almenn
sjúkrarúm handa Reykvíking-
um og má öllum vera ljóst, að
það er allsendis ófullnægjandi.
Páll Sigurðsson áætlar, í
sinni ágætu greinargerð, að
ekki veiti af 8 almennum
sjúkrarúmum á hvert þúsund
íbúa. Má gera ráð fyrir að svo
mörg sjúkrarúm myndu fyllast
hér, en þó er þetta nokkru
hærri tala en víðast hvar er
talið viðunandi. 1 Stocldiólmi er
talið að þurfi 6,8 almenn sjúkra-
rúm fyrir þúsund íbúa, og á
Bandaríkjaþingi voru í fyrra
samþykkt lög um að verja
skyldi stórfé til þess að stuðla
að því, að í hverju héraði og
fylki kæmu minnst 6,5 almenn
sjúkrarúm á hvert þúsund í-
búa. Ef vér tökum Stockhólms-
áætlunina og gerum ráð fyrir
að íbúar Reykjavíkur verði
60,000 eftir 2—3 ár, þá þyrftu
að vera rúmlega 400 almenn
sjúkrarúm fyrir Reykvíkinga.
Er því nauðsynlegt að reisa
sjúkrahús með um 220 sjúkra-
rúmum.*) En um leið og gerð
er áætlun um að reisa bæjar-
sjúkrahús, er nauðsynlegt að
hafa í huga, að Sjúkrahús
Hvítabandsins og Sólheimar
svara á engan hátt til krafa
nútímans og hlýtur það því að
vera takmarkið að leggja þau
niður áður en langt um liður.
Þá má minna á, að hluti af
St. Jósefsspítala er gamalt
timburhús, sem hlýtur að ganga
úr sér, enda viðurkennt, að
rekstur sjúkrahúss í timbur-
byggingu er viðsjárverður
vegna brunahættu.
Hér skal ekki gerð grein
fyrir því hvaða deildir þyrfti
helzt að reisa. Þess skal þó
getið, að vér erum nokkuð á
annari skoðun en sjúkrahús-
nefndin, sem starfaði um skeið
og skilaði áliti fyrir 2 árum.
og erum vér reiðubúnir til þess
að rökstyðja þá skoðun vora.
Teljum vér það samkrull ríkis
og hæjar, sem gert er ráð fyr-
ir í nefndarálitinu, óheppilegt
af ýmsum ástæðum.
A Norðurlöndum virðist rík-
ið aðeins hafa áhuga fyrir og
telja sér skylt að reisa og reka
almenn sjúkrahús, sem eru
hæfilega stór fyrir læknisfræði-
kennslu við háskólana, og sums
staðar fer kennslan meira að
segja að nokkru eða öllu leyti
fram í bæjar eða héraðssjúkra-
húsum. Er hætt við, að læknar
og sjúklingar yrðu langeygir
að bíða þess, að úr rættist
sjúkrahússkortinum, ef höfuð-
borgin tæki það ráð að varpa
öllum sínum áhyggjum upp á
ríkið, i þeirri von, að Lands-
+) Auðkennt af Lbl.