Læknablaðið - 01.09.1948, Side 37
LÆKNABLAÐIÐ
79
sem dóu í Rv., að hafa verið
úr öðru héraði, til þess að jafna
metin.
Skortur á ljósmæðrum. Skv.
Hbrsk. 1944 telur höf. fjölda
Ijósmæðra í Reykjavík 16 og
fæðingar 1355 (skv. töflu XIII
1348) og komi því 85 fæðingar
á hverja ljósmóður, en það
telur hann allt of mikið, því
að 60 ættu að nægja, ef öllum
ætti að gera góð skil. Hér er
þó þess að gæta, að talsverður
hluti fæðinganna eða ná-
lægt 600 munu hafa farið fram
á fæðingardeildinni, en þar
munu starfa 2 af þessum 16
ljósmæðrum. Skal ég ekki
leggja dóm á það, hvort of
mikið sé lagt á ljósmæður
fæðingardeildarinnar (þar
munu þó fleiri til aðstoðar),
en á hinar 14 Ijósmæður hér-
aðsins koma þá varla nema
rúml. 50 fæð. á hverja og ætti
það ekki að vera þeirn ofviða.
Mæðradauði (banamein, er
stafa af barnsþykkt eða barns-
burði, Nr. 140—150 á dánar-
meinaskrá). Mæðradauðann
segir B. .1. 2—3 sinnum hærri
hér en í Englandi, því að hér
hafi hann verið 2,7—4,5 af þús-
undi miðað við fædd börn ár-
in 1940—44, en í Englandi 1,5
1,9 árin 1944—’46. Lægsta
talan hér á þessum árum var
raunar 2,0 (1940) miðað við
1000 lifandi og andvana fædd
hörn og hin hæsta 4,8 (1941),
en það skiptir ekki miklu máli
í Jiessu sambandi.
Árin 1936—1940 var meðal-
tal mæðradauðans hér á landi
2,4%0 og mun þá óvíða hafa
verið lægri; í Englandi var
hann þá 3,24%. A 5-árabilinu
1940— 1944 var hann um nokk-
ur ár óvenjulega hár hér á landi
og var meðaltalið þá 3,2%0 en
í Englandi var hann 2,4%0 á
þessu tímabili að meðaltali;1)
næstu tvö árin mun hann hafa
verið um 2%0 hér. Er munur-
inn því ekki mikill, þegar þess
er gætt, að árssveiflur geta á-
vallt orðið talsvert miklar hér
vegna fámennis, og það svo,
að 5 ára meðaltöl nægi ekki
til að jafna þær.Skal þó ósagt
látið um það, hvort hin ó-
venjulega hækkun á árunum
1941— 43 (einkum 1941) verði
skýrð á þann hátt. En vel má
taka undir það með höf., að
mæðradauðinn ætti að geta
lækkað enn hér á landi; má
í því sambandi benda á það,
að ungbarnadauðinn hefur um
langt skeið verið og er enn tals-
vert lægri hér en í Englandi.
Að lokum vil ég taka undir
það með B. J., að drátturinn
á útgáfu mannfjöldaskýrslna
Hagstofunnar er mjög haga-
legur.
1) Skv. heilbrigðisskýrslunum
ensku, Ministry of Health: Publ.
Health during tlie 6 years of war.,
en þær ná aðeins til órsloka 1944.