Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.09.1948, Qupperneq 38

Læknablaðið - 01.09.1948, Qupperneq 38
80 LÆKNABLAÐIÐ IJr erlendum læknaritum. Nýjar leiðir í meðferð ofdrykkju. Antabus er tetraætyltiuramdisul- fid. Framkvæindar voru þvagrann- sóknir, lifrarstarfsprófanir, blóð- talningar og lijartarit tekin á 300 sjúklingum, sem fengið höfðu lyfið í lengri og skemmri tima, allt að niu mánuðum, án þess að nokkurntima fyndust sjúklegar breytingar. Allt að tveggja gr. dagskammtur veldur engum óþægindum, en eí' neytt er áfengis, jafnvel í mjög smá- um mæli, koma ávallt óþægindi: roði í andlit, hitatilkenning, hraður hjartsláttur, ógleði og stundum upp- köst. Þessu er samfara mikil óþæg- indatilkenning. Óþægindum þessuni veldur acetaldehyd, sem myndast við alkoholbrunann í fóllci, sem fengið hefir lyfið. Óþægindin standa i %—4 klukku- stundir. Þegar áfengið er farið úr líkanianum nær sjúklingurinn sér að fullu aftur. „Ofnæmið“ fyrir alko- lioli byrjar nokkrum klukkutimum eftir neyzlu lyfsins, og helzt venju- lega að einhverju leyti í marga daga. Sjúklingur fær í byrjun 150—200 ctg. af antabus. 75—100 ctg. að morgni næstu daga. Honum er skýrt frá því hvernig fari ef hann bragði áfengi, en jafnframt sagt að fá sér nokkur glös lieima hjá sér að kveldi þriðja dags. Ef sjúklingur varð illa haldinn er leitað eftir hæfilegum „viðhaldsdosis", þannig að aðeins komi fram byrjunareinkenni eftir neyzlu áfcngis. Skammturinn er venjulega 50—75 ctg. að morgni. Sjúklingurinn er varaður við lyfjum sem alkohol er i. Ef búast á við góðum árangri, verður læknirinn að láta sjúkling- inn koma til sín við og við til skrafs og ráðagerða, hjálpa honum þjóðfé- lagslega og vera í sambandi við að- standendur hans. Þá hefur „Alco- holics anonymous“ hreyfingin gef- izt vel. 50 fyrstu sjúklingarnir hafa verið til meðferðar í G mánuði eða meira. Margir ])eirra voru mjög illa farnir, t. d. liafði 21 verið á sjúkrahúsum einu sinni eða oftar til „afvötnunar“ með mjög litlum eða enguin árangri. Eftir notkun antabus höfðu 35 náð sér að fullu eða voru miklu betri .15 hættu við lyfið af ýmsum orsökum. O. Mortensen-Larsen. Ugekrift for Læger, 110. árg. no. 43. 21. okt. 1948. J. B. Pneumonectomia á barni. f Nord. Med. nr. 19, 1947, bls. 1092, er sjúkrasaga, frá lungna-skurðdeild Eyrarsundsspitalans í Kaupmanna- höfn. Skýrt er frá dreng, sem vinstra lungað var tekið úr, þegar hann var 1 árs og 9 mánaða gamall. Sjúkdóm- urinn var meðfætt blöðrulunga. Að- gerðin var gerð í janúar 1946, og er þetta þá talinn vera yngsti sjúk- lingurinn, sem lunga liefir verið numið burtu úr. Ári síðar var dreng- urinn frískur, ekki mæðinn, engin aflögun á hrygg, lék sér eins og aðrir jafnaldrar lians. Ó. G. Afgreiðsla og innheimta Læknablaðsins er i Félagsprentsmiðjunni h.f., Reykjavik. Sími 1640. Pósthólf 757. FélagsprentsmiÖjan h.f.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.