Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.06.1955, Síða 11

Læknablaðið - 01.06.1955, Síða 11
LÆKNABLAÐIÐ 35 lítill í slíkum tilfellum eða complicationes of margar og alvarlegar. Eftir að farið var að brenna (H. Jacobeus 1913) fjölgaði vissulega þeim sjúklingum, sem hægt var að fá á nægjanlegan collaps með pneumothorax með- ferð. Helztu complicationes við pneumothorax eru: pleuritis serosa, empyema, fistula bron- chopleuralis og pleuritis obli- terans. Packard, 1940, taldi, að pleuritis serosa kæmi hjá 50—70% pneumothorax sjúk- linga, en væri alla jafnast mein- laus. Tvær hættur eru þó fyrir hendi: a. Pleuraþykkni með ó- fullkominni reexpansio á lunga og þar af leiðandi starfsskerð- ingu. b. Empyema tub. Berkla- bakteríurnar geta borizt inn í pleuraholið við það, að sam- vextir rifna eða við ruptur á focus subpleuralis inn í pleura- holið. 1 báðum þessum tilfellum getur komið fistula bronchop- leuralis. Empyematíðni við pneumothoraxmeðferð var talin 5—20% og var það vissulega alvarlegt, þar sem dánartala var um og yfir 40% áður en chemotherapia kom til sögunn- ar. Thoracoplastik er um áratug eldri en pneumothoraxmeðferð- in. Simon, 1869, og Estlander, 1879, gerðu resecito costarum við empyema chron. en Ceren- ville var sá fyrsti, sem notaði slíka collapstherapia við sjúkt lunga. Það tók þó langan tíma að betrumbæta aðferðina unz árangur varð viðunanlegur. Það var John Alexander í Michigan, sem innleiddi þá reglu að gera aðgerðina í tveim eða fleiri lot- um (1936). Séu tilfellin rétt valin fyrir thoracoplastik er dánartala við þá aðgerð víðast hvar innan við 5% og víða inn- an við 1%. Lees taldi, að batahorfur sjúklinga, sem á væri gerð thoracoplastik væru þær, að hjá 65—70% yrði sjúkdómurinn ó- virkur röntgenologiskt og bakt- eríologiskt, að hælismeðferð á eftir lokinni. í sumum skýrsl- um var þetta áreiðanlega hærra. Ef sputum helzt jákvætt í eitt ár eftir síðasta stig höggning- ar má yfirleitt telja aðgerðina ófullnægjandi, svo fremi bakt- eríurnar geti ekki verið komn- ar annarsstaðar að en frá hinu samanfallna lunga. Enda þótt takist að gera sjúklinginn nei- kvæðan með thoracoplastik er ekki alltaf allt fengið með því. Alltof margir af þessum sjúk- lingum eru öryrkjar, annað hvort vegna insufficientia pul- monum eða bronchiectasia resi- dualis. Ævi þessara sjúklinga er ömurleg, þeir hafa stöðugan uppgang, stundum með endur- teknum blóðhósta, eru alltaf að fá hitaköst og lifa í stöðugum ótta við að nú sé sjúkdómurinn að taka sig upp aftur. Þeim,

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.