Læknablaðið - 01.06.1955, Blaðsíða 47
L Æ K N A B L A Ð I Ð
Tafla 3
Flokkun glákusjúkra efitir aldri og kyni.
71
Aldur Karlar Konur Samtals % í aldurs- flokkum Skoðun 1948 %
60—69 0 0 0 0 || 5
70—79 2 7 9 8,2 || 7
80—89 1 12 13 12 | 25
90 og yfir 2 3 5 26,3 | 45,5
Samtals 5 22 27 | ||
teljast þó ekki blindir. Sjón
hinna 5 er meira eða minna
skert.
Atrophia nervi optici. Einn
af þessum sjúklingum (kona 60
ára) hefir rýrnun á sjóntaug
vegna sclerosis multiplex (heila-
og mænusigg). Er hún á mörk-
um þess að vera starfsblind, en
er þó ekki talin í þeim flokki.
Hjá hinum tveimur var orsökin
óþekkt.
III. AÖ7'ir augnsjúkdómar
(Alii morbi oculi) :
i. Glaucoma simplex (gláka) 27
j. Amblyopia ex anopsia
(starfræn sjóndepra) 2
k. Anophthalmos artificialis
(augnnám) ............. 5
l. Phttisis bulbi post trauma
(augnarýrnun vegna
slyss) ................ 1
Glaucoma simplex. Með
þenna sjúkdóm, sem er mestur
blinduvaldur allra augnsjúk-
dóma á fslandi, voru 9,5% allra
vistmanna eftir sextugt, en
17,5% við skoðunina árið 1948.
Tafla 3 sýnir, að glákan er
algengust í elztu aldursflokk-
unum. Af hinum 27 glákusjúku
voru 18 það sjóndaprir, að þeir
teljast blindir eins og að fram-
an getur. Er athyglisvert hversu
margir eru blindir, þrátt fyrir
glákuaðgerðir og sýnir þetta
bezt hve gálkan hér er illkynja
sjúkdómur. Af hinum 9 gláku-
sjúku, sem ekki teljast blindir,
hafa allir nema einn gengið
undir skurðaðgerð). Flestir
hafa meira eða minna ský á
augasteini (cataracta com-
plicata) og hefir lens extractio
verið gerð á 2 sjúklingum. Af
hinum 9 glákusjúku, sem ekki
teljast blindir, eru 8 blindir á
öðru auga.
Við skoðunina fannst lítið
aukinn augnþrýstingur eða
þrýstingur á efri mörkunum hjá
11 vistmönnum. Þeir eru ekki
skráðir hér sem glákusjúkling-
ar, en fylgst verður með augum
þeirra.
Um aðra augnsjúkdóma þarf
ekki að fjölyrða.
Lokaorð.
Skýrsla þessi sýnir helztu
augnsjúkdóma meðal gamal-
menna og ennfremur að augn-