Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.06.1955, Page 18

Læknablaðið - 01.06.1955, Page 18
42 LÆKNABLAÐIÐ Hver gangur sjúkdómsins verður er auðvitað komið undir mörgu, svo sem aldri sjúklinga og mótstöðu, virulens bacterí- anna o. fl. Það væri mjög þýðingarmikið ef röntgenmyndir gætu sagt okkur, hve vel hin necrotisku svæði væru afmörkuð, en það er því miður ekki oft reyndin. Þeir, sem telja réttmætt að resecera þessar sjúkdómsleyfar (residua) rökstyðja það með eftirfarandi: 1. Allmargar af þessum leyfum verða virkar á ný er tímar líða og geta þess vegna orðið hættulegar fyrir sjúklingana. 2. Berklabakteríur finnast iðu- lega við vefjarannsókn þess- arra leyfa, enda þótt sjaldn- ar takist að rækta þær. 3. Hættan við aðgerðina er mjög lítil. 4. Sjúkdómstíminn er styttur. 5. Horfur eru betri, þ. e. færri sýkjast á ný af þeim, sem hafa fengið chemotherapia eða chemotherapia + collaps- aðgerðir. Það er óhagganleg staðreynd, að þessar sjúkdómsleyfar inni- halda oft lifandi berklabakterí- ur mörgum mánuðum eftir að sjúklingarnir urðu einkenna- lausir og neikvæðir og sjúk- dómurinn var talinn óvirkur eða stöðvaður samkvæmt endurtekn- um röntgenmyndum. Við höfum því engan öruggan mælikvarða á það, hvenær sjúk- dómurinn sé stöðvaður til fulls og því miður mörg dæmi til þess, að sjúkdómurinn hafi tek- ið sig upp á ný mörgum mánuð- um og jafnvel árum eftir að hann var talinn stöðvaður sam- kvæmt röntgenmynd. Steele í Milwaukee rannsak- aði hinn sjúka vef, sem skorinn var burt hjá fjölda sjúklinga eftir langvarandi chemothera- piu. 88% sjúklinganna voru já- kvæðir áður en chemotherapía var hafin. Af 21 sjúkling, sem höfðu fengið 2 eða fleiri lyfja- lotur fyrir aðgerð tókst að rækta frá 5, þ. e. tæplega 25%. Lyfja- lotan var 4—18 mánuðir hjá þeim, sem tókst að rækta frá, en 2 sjúklingar höfðu fengið lyfjagjöf lengur en 18 mánuði og ekki ræktaðist frá þeim. Af 125 sjúkl., sem höfðu fengið aðeins eina lyfja- lotu fyrir aðgerð fundust bakt- eríur við vefjarannsókn hjá 79, eða 63,2%, en ræktun eða nag- grísapróf jákvætt hjá aðeins 11 eða 8,8%. Sjúklingar þessir fengu lyfin í 4—24 mán. Aðeins 2 sjúkl. fengu lyfjagjöf í lengri tíma en 24 mán. og tókst ekki að rækta bakteríur úr hinum sýkta vef, sem reseceraður var hjá þeim. Þessar rannsóknir sýna, að bakteríurnar finnast miklu oftar við vefjarannsókn heldur en tekst að rækta þær úr hinum reseceraða vefi og vekur það auðvitað þá spurningu, hvort bakteríurnar eru raun-

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.