Læknablaðið - 01.05.1957, Blaðsíða 38
24
LÆKNABLAÐIÐ
um. Phenylhydantoin og myso-
lin má líka nota saman með
ágætum. Eins og gefur að skilja
erverra að nota saman lyf, sem
öll hafa sefandi verkun (my-
solin, mesantoin, fenemal).
Sé um lireint petit mal að
ræða eru reynd einhver lyfin
úr oxazolidin flokknum, eða
Prenderol ásamt efnum, sem
dreifa verkun þess.
Sé hins vegar um hvort
tveggja að ræða hjá sama
sjúkl. getur vandazt málið, því
þau efnin, sem verka hezt á
hvort um sig, geta gert hina
myndina verri (plienylhydan-
toin getur æst upp petit mal,
tridion hins vegar grand mal
og jafnvel framkallað það,
lejmist það með petit mal).
Við psvkomotoriska epilepsi
mun helzt að reyna phenyl-
hydantoin eða mysolin. Phen-
uron þyrði ég ekki að ráðleggja
neinum, nema þá í ýtrustu
neyð, væri útilokað að beita
kirurgiskri meðferð.
Við fokal og Jackson’s ejii-
lepsi mun hezt að reyna fyrst
phenylhydantoin eða fenemal
og mysolin. Mesantoin getur
líka komið til greina. Þar sem
augljósar eða sennilegar vef-
rænar breytingar eru fyrir
hendi má reyna Gemonil (sem
er barbiturat).
Við vegetativ, eða autonom,
thalamo-hvpothalamus, eða
diencephal epilepsi má nota
plienylhydantoin, fenemal eða
mysolin.
Sé sjúklingurinn einkenna-
laus mvndi maður kannske
freistast til að minnka við
hann lyf, sé hann á mjög stór-
um skömmtum. Séu hins vegar
engin merki um eiturverkanir
og sé sjúkl. óþægindalaus, eða
-litill, er engin ástæða til þess
og ekki er neitt slíkt gerlegt án
þess að laka heilarit, því verið
getur að þar sjáist epileptisk
truflun, þó það gefi ekki klin-
isk einkenni og væri þá frekar
ástæða til þess að aulca
skammtinn heldur en hitt (shr.
það sem sagt var liér að fram-
an)-.
Svo kemur aftur liitt vanda-
málið, hvenær á að hætta gjöf
krampastillandi lyfja. Það er
því miður ekki svo oft, sein
þarf að gera það upp við sig,
en flestir eru sammála um, að
þá skuli sjúkl. hafa verið án
klinislcra einkenna í a. m. k. 3
— sumir segja 5 ár, heilarit sé
eðlilegt og lyfjagjöf sé hætt
sinám saman, helzt skipti sá
tími mánuðum, og fylgst sé
með sjúkl. með heilaritum.
Eg vil leyfa mér að síðustu
að laka hér upp næstum orð-
rétt niðurstöður Meyer Perl-
stein í grein hans um epilepsi
meðferð i heftinu The Medical
Glinics of North America í
marz 1954.
1. Fenemal er ákjósanlegast