Læknablaðið - 01.05.1957, Blaðsíða 33
LÆKNABLAÐIÐ
19
(confusio) eða ofskynjunum.
Komi fram útþot eða það-
an af meiri eiturverkanir er
ráðlegast að hætta alveg við
fenylhydantoin og sé það der-
matitis hæmorrhagica er talið
contraindicerað að taka það
upp aftur. Þetta efni verkar
hezt á grand mal, all vel á
psychomotor epilepsi, Jacksons
og fokal epilepsi, liefur vafa-
sama verkun á mvoklon epilepsi,
en getur gert illt verra í petit
mal. Algengur skanuntur fyrir
fullorðna 10 ctg. 3svar ádag,
með mat, því þetta efni getur
haft ertandi verkun á maga-
slímhúð. Oft er fenemal gefið
með, t. d. 10 ctg. að kvöldi, sér-
staklega fvrir þá, er hafa noct-
urnal epilepsi (og enda fleiri,
því margir telja krampaþrösk-
uldinn lægri í svefni, og ætli
það þá að vera i samræmi við
það, sem Gibbs heldur fram, að
meiri líkindi séu til þess að
finna óeðlilegt heilarit í svefni)
Hjá enn öðrum er þörf á að
nota bæði lyfin saman á dag-
inn líka. Nokkuð algengt er
hjá börnum (um 19%) að þau
fái með venjulegum krampa-
stillandi skammti af diphenyl-
hydantoin liypertrofi á tann-
iioldi, sem getur orðið all fer-
leg, jafnvel svo að tennur losni,
sé gagnráðstafana ekki gætt í
tíma. Draga má úr þessari of-
holdgun, eða tefja fyrir lienni
með nuddi. Sé lyfið ómissandi
fyrir sjúklinginn er liugsanlegt
að gripa til þess að nema burt
eitthvað af ofholdinu.
Annað efni þessu skylt kom
fx-am um 1945: 3methyl-5,5fen-
yl-ethylhydantoin (Mesantoin-
Sandoz). Það hefur íiokkra
sefandi verkun. Krampastill-
andi verkun hefur það bezla
á grand mal og fokal epilepsi,
en vafasamari verkun á aðrar
tegundir, nokkra þó á petit
mal. Engin eða sára lítil of-
holdgun í tannholdi kemur
fram við notkun þess, en það
getur hafl aðrar aukaverkanir
og verri. Ca. 10% eru ofnæmir
fyrir Mesantoin og kemur það
fram 10—14 dögum eftir að
hvrjað er á meðferðinni, jafn-
vel þó afar varlega sé farið af
stað með gjöfina. Getur það
lýst sér með hita eða eitla-
stækkun (greinilegust á
hnakka og hálsi) eða exant-
hemi sem líkist mislingum eða
skarlatssóttar-útþotum og sést
bezt á hrjósti og á ofanverðu
haki. Sé Mesantoin gjöf hald-
ið áfram þrátt fyrir slík ein-
kenni getur komið fram granu-
locvtopeni—agranulocylosis. —
Telja verður sjálfsagt að láta
sjúklinga, sem taka Mesantoin
að staðaldri ganga reglulega í
hlóðrannsókn. Sé strax breytt
um lyf, þegar fyrst koma fram
eitrunar-einkenni, hverfa þau
á nokkrum dögum og má þá
jafnvel byrja aftur varlega með
sama lyf, ef þurfa þykir, sé
blóðmyndin eðlileg.