Bændablaðið - 01.08.2013, Síða 2
2
Fréttir
Hömlur á fasteigna-
kaupum ríkisborgara
innan EES afnumdar
Hefja á heildarendurskoðun á
lögum og reglum um rétt útlend-
inga til að eignast eða öðlast
afnotarétt af fasteignum hér á
landi. Hanna Birna Kristjánsdóttir
innanríkisráðherra hefur fellt
úr gildi reglugerð forvera síns,
Ögmundar Jónassonar, um höml-
ur á fasteignakaupum útlendinga
hér á landi.
Reglugerðin
fól í sér að borg-
arar búsettir
á Evrópska
efnahags svæðinu
(EES) þurftu að
sækja um heim-
ild til ráðherra
til að kaupa
fasteign hér á
landi, hefðu þeir
ekki þörf fyrir
slíka eign vegna
búsetu eða atvinnustarfsemi. Eftir
sem áður gilda óbreyttar reglur um
ríkisborgara utan EES sem áfram
þurfa að sækja um heimild vegna
fasteignakaupa.
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA,
gerði athugasemdir við reglugerð
Ögmundar og dró lögmæti breyt-
inganna í efa. Óskað var eftir rök-
stuðningi um hvernig reglugerðin
stæðist EES-samninginn. Með
breytingu Hönnu Birna er ljóst að
ekki er lengur þörf á slíkum rök-
stuðningi.
Engin haustslátrun
í Borgarnesi
Norðurlandameistaramótið í
eldsmíði fer fram á Safnasvæðinu
á Akranesi dagana 14.-18. ágúst.
Keppt verður í fjórum flokkum;
byrjendur, eldsmiðir, hópakeppni
og meistarar. Það er Guðmundur
Sigurðsson, formaður Íslenskra
eldsmiða og Sambands Norrænna
eldsmiða, sem kemur að
skipulagningu keppninnar ásamt
fleirum. Þetta er í þriðja sinn sem
keppt er, en hin tvö mótin fóru fram
í Svíþjóð og Noregi.
„Hin gamla iðn eldsmíðin hefur
smám saman verið að eflast hér á landi
undanfarin ár. Til hliðar við mótið
verða opnar vinnustofur, fyrir lestrar
og sýnikennsla sem er hönnuð til að
kveikja áhuga fólks á hand verkinu.
Á svæðinu verður hægt að kaupa
eldsmíðaðar afurðir þeirra smiða sem
koma á mótið og taka með sér varning
því handverksmarkaður verður einnig
á staðnum,“ segir Guðmundur.
Eldsmiðja reist á Akranesi
Á Safnasvæðinu að Görðum á
Akranesi er verið að reisa eldsmiðju
í tengslum við eldsmíðamótið þar
sem eldsmiðir geta hist um ókomin
ár bæði til að smíða og að læra hver af
öðrum. „Um 40 erlendir þátttakendur
hafa boðað komu sína og svo er annað
eins af íslenskum keppendum. Fólki
er velkomið að koma og fylgjast með
og það verður nóg af afþreyingu á
svæðinu,“ segir Guðmundur. Hann
segir eldsmíðina vera að breiðast út
meðal listhandverksfólks og þróast
sem listiðnaður. „Engir skólar kenna
eldsmíði sem sjálfstætt fag á Íslandi í
dag, heldur er eldsmíði aðeins kynnt
fyrir þeim sem nema önnur fög í
framhaldsskólum. Þá er hið norræna
samstarf afar mikilvægt til þess að
kunnátta sem hefur haldist á einum
stað megi gagnast fleirum,“ segir
Guðmundur.
Eldsmiðir halda
Norðurlandamót
„Eigendur hesta í hólfum við
bæinn vilja stýra því hvað
hrossin éta mikið á dag,“ segir
Elfa Ágústsdóttir, dýralæknir hjá
Dýraspítalanum í Lögmannshlíð.
Hrossaeigendur sem halda hross
í hólfum á leið suður að Hömrum
og í Kjarnaskóg hafa gripið til
þess ráðs að afþakka hey af lóðum
bæjarbúa, en nokkur brögð eru að
því að íbúar hafi farið með gras af
lóðum sínum eftir slátt og gefið það
hestum sem eru þar á beit.
Elfa segir að hestar í þessum
hólfum séu notaðir til útreiða og
ferðalaga og því sé offóðrun alls
ekki holl fyrir þá. „Hross hafa
tilhneigingu til að éta yfir sig og slá
aldrei hendinni á móti freistandi töðu.
Þess vegna geta hross í hólfum þar
sem raðbeitt er, þ.e. rafmagnssnúra
sem flutt er til daglega í hólfinu til
að takmarka átið, virst mjög svöng
þótt þau fái hæfilegt magn á beit alla
daga,“ segir Elfa.
Hross þola illa snöggar
fóðurbreytingar
Það getur verið hættulegt að gefa
hrossum lóðahey, það er til að mynda
mun sterkara en gras sem vex í
hrossahólfum, „og ef hross komast
skyndilega í mikið magn af þannig
heyi geta þau veikst hastarlega af
meltingartruflunum,“ segir hún og
bætir við að hross þoli mjög illa
snöggar fóðurbreytingar. Elfa nefnir
líka að gras af lóðum við heimahús
sé oft geymt í plastpokum og oft
hendi að það hitni vel í því og það
skemmist því mjög fljótt.
„Þeir sem velja að gefa sínum
eigin hrossum lóðahey gefa þeim lítið
fyrst og venja þau við,“ segir hún. Þá
nefnir hún einnig að ef nokkur hross
séu saman í hólfi og fái eina hrúgu
af lóðaheyi sem ekki nægi öllum séu
líkur á að þau fari að slást með þeim
hugsanlegu afleiðingum að þau meiði
hvert annað. /MÞÞ
Grænmetisbændur búast við
ágætisuppskeru haldist tíð góð
Akureyringar beðnir um að fóðra ekki hross með lóðaheyi
Geta veikst hastarlega af meltingartruflunum
Hey af lóðum bæjarbúa er mun sterkara en það gras sem vex í beitarhólfum
þau í mikið magn af slíku heyi. Mynd / MÞÞ
Margir eiga góðar minningar úr heyskap fyrri tíma þegar
nær allir fjölskyldumeðlimir höfðu einhverju hlutverki
að gegna. Baggatínsla, keyrsla heyvagna eða það að
hirða dreifarnar með hrífu voru allt mikilvæg embætti
sem þurfti að sinna. Heyskaparkaffið er ekki lítill hluti af
minningum kynslóðanna og því er áreiðanlegt að myndin
fyrir ofan frá Gunnarsstöðum í Þistilfirði veki ánægju og
yl. Margir bændur binda ennþá hluta af uppskeru sinni í
litla bagga. Á Gunnarsstöðum heyja bændurnir í kringum
450 bagga sem notaðir eru þegar líður á veturinn í fé og
hross. Ástæðan er sú að gott er að gefa baggaheyið því
það er skraufþurrt og létt – gott í bland við annað fóður.
Bændur á Gunnarsstöðum ásamt fjölskipuðu aðstoðarliði kasta mæðinni í heyskapnum. Þarna eru Jóhannes
Sigfússon, Júlíus Þröstur Sigurbjartsson og Axel Jóhannesson ásamt börnum og tveimur vinnukonum frá Þýskalandi,
þeim Maríu og Fenju. Mynd / Sigríður Jóhannesdóttir
Heyskapur hefur gengið með
ágætum í Eyjafirði og útlit fyrir að
heyfengur verði víðast hvar góður.
Margir bændur og þá sérstaklega
þeir sem búa í Eyjafjarðarsveit
eru að hefja annan slátt um þessar
mundir eða þegar komnir af stað
með hann.
Sigurgeir Hreinsson, fram-
kvæmda stjóri hjá Búnaðar sambandi
Eyjafjarðar, segir að vel hafi gengið í
heyskap á svæðinu og þá einkum og
sér í lagi hjá kúabændum sem gátu
hafið slátt snemma. „Almennt hefur
heyskapartíð verið góð þó að fyrri
hluti júlímánaðar hafi verið heldur
skúrasamur, spretta hefur verið
mjög góð og það lítur allt út fyrir að
heyfengur verði góður,“ segir hann.
Tvísýnt á verstu kalsvæðunum
Þau tún sem verst urðu úti vegna
kals í vor voru mörg hver unnin upp
og er útlitið misjafnt eftir svæðum
og hvenær menn voru að vinna þau
upp. Þar sem verið var að vinna tún
fram eftir júní hamlaði þurrkur því
að spírun færi af stað. „Og þar getur
útlitið vissulega verið tvísýnt, þetta
fór fremur seint af stað á ákveðnum
svæðum,“ segir Sigurgeir.
Slá jafnvel þrisvar
Bændur í innanverðum Eyjafirði
eru margir hverjir að fara af stað
með annann slátt. Útlit er fyrir
að einhverjar spildur þurfi að slá
þrisvar og því er ekki eftir neinu að
bíða þegar svo vel sprettur sem raun
ber vitni. Huga verður að gæðunum
og láta gras ekki spretta úr sér segir
Sigurgeir. „Í heildina má segja að
heyskapur gangi mjög vel og bændur
eru ánægðir með það,“ segir hann.
/MÞÞ
Búskapur er heyskapur
Fyrirtaks sprettutíð
fyrir norðan
Útlit er fyrir góðan heyfeng víðast í
Mynd / MÞÞ
Íslenskt útiræktað grænmeti
er eilítið seinna á ferðinni en í
venjulega en gangi allt að óskum,
m.a. að tíðarfar verði skaplegt, má
búast við ágætisuppskeru.
„Það er bjart fram undan og
horfur bara góðar myndi ég segja.
Ég held að uppskera verði síst lakari
en í fyrra,“ segir Guðjón Birgisson
á Melum á Flúðum. Guðjón og
Sigríður Helga Karlsdóttir kona
hans eru með umfangsmikla
grænmetisræktun á Melum, þau eru
stærstu tómataræktendur á landinu
og framleiða m.a. bæði stóra og litla
heilsutómata.
Auk tómatanna er útirækt á
Melum en þar er ræktað kínakál,
blómkál, brokkólí og hnúðkál ásamt
fleiri tegundum. Gæði og ferskleiki
eru höfð í fyrirrúmi á Melum og
er þannig allt grænmetið handtínt
og handskorið, og handvalið í
neytendapakkningar. Það fer svo
samdægurs til neytenda og frá Melum
fara daglega sendingar.
Guðjón segir að grænmetið sé um
það bil viku seinna á ferðinni en var
t.d. í fyrrasumar. Meðalhiti yfir nætur
í júní var fremur lágur, „hitinn var oft
nokkuð góður yfir daginn en næturnar
voru frekar kaldar og það dró úr
vaxtarhrað. Nú eftir að tíð batnaði er
allt á fullri ferð, grænmetið vex og
vex dag frá degi og við erum byrjuð
að senda frá okkur inn á markaðinn.
Mér sýnist uppskeruhorfur vera góðar
haldist tíð áfram góð, heildaruppskera
verður síst verri í sumar en í fyrra, en
kemur viku seinna á markaðinn en
þá,“ segir Guðjón. / MÞÞ
Mynd / SFG
Guðmundur Sigurðsson er formaður
félags Norrænna eldsmiða auk þess
að fara fyrir íslenska félaginu.
Mynd / TB
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Sláturhús Vesturlands í Borgar-
nesi mun ekki slátra sauðfé í haust
og óvíst er hvort takist að hefja
starfsemi þess á árinu.
Þetta segir Guðjón Kristjánsson,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins, en
starfsemi þess strandar á breytingum
á aðalskipulagi. Samkvæmt breyttu
aðalskipulagi var gert ráð fyrir
íbúðarbyggð í Brákarey en slík
landnotkun kom hins vegar aldrei
til. Áður hafði verið skipulagt
iðnaðarsvæði í eynni. Því fékkst ekki
starfsleyfi frá Skipulagsstofnun fyrir
sláturhúsið.
Sláturhús Vesturlands átti að
leggja áherslu á að þjónusta bændur
sem eru þátttakendur í Beint frá býli,
en mikil þörf er á slíkri þjónustu.
Guðjón segir að þrátt fyrir allt ætli
menn sér að koma fyrirtækinu á
lappirnar, hvenær sem það gerist.
„Það skal,“ sagði Guðjón í samtali
við Bændablaðið. /fr
Mynd / BBL